blaðið - 10.08.2006, Page 20
28
FIMMTUDAGUR 10. ÁGÖST 2006 blaöiö
matur
r -) i
matur@bladid.net
Vel fóðruð ruslatunna
„Næst þegar þú ferð að kvarta yfir einhverju, mundu þá að
ruslatunnan þín er betur fóðruð en þriðjungur mannkyns."
Robert Orben
Grasnytjar í
Grasagarði
Þeir sem vilja fræðast um
hinar ýmsu grasnytjar sem
rækta má hérlendis ættu að
leggja leið sína í Grasagarð
Reykavíkur klukkan n á laug-
ardag. Þá ætlar Hildur Hákon-
ardóttir, höfundur bókarinnar
Ætigarður sem kom út á síðasta
ári, að segja frá því hvernig hún
nýtir kúmen, túnfífil, njóla og
fleiri grasnytjar. Að fræðslunni
lokinni verður boðið upp á
íslenskt jurtate.
Saltfiskvöfflur
á Dalvík
Dalvíkingar bjóða upp á
saltfiskvöfflur og fleiri sjávar-
rétti á Fiskideginum mikla sem
haldinn verður í sjöunda sinn nú
á laugardag.
Saltfiskvöfflurnar eru meðal
nýjunga sem bryddað er upp á
í ár. Önnur er sú að götur bæj-
arins verða nefndar upp á nýtt.
Þannig eiga vegfarendur eftir að
fara um Risarækjuveg, Blálöngu-
torg og Lúðubraut svo dæmi séu
tekin. Gömlu heitin fá þó líka að
standa uppi svo fólk ætti ekki að
villast.
Saltfiskvöfflurnar sem minnst
var á að framan eru einn fjórtán
rétta á matseðlinum. Auk þess
verður boðið upp á nýja bleikju
og sushi. Þá verður reynt að slá
Islandsmet þegar framreidd
verður asísk fiskisúpa í stærsta
súpupotti landsins.
Hið gamla er hið nýja nýja:
Staðið á blístrinu á Parísarbístrói
Fyrir nokkrum árum var allt útlit fyrir að
gamla bístrómenningin í París væri að láta
undan skyndibitamenningu þeirri er fylgir
nútímavæðingunni. Fusion matargerð og létt-
ari bitar ógnuðu einnig hinni rótgrónu bístró-
menningu en nú hefur dæmið snúist við.
Nýja kynslóðin með peningana, unga og ríka
fólkið, sem vakti upp gömlu svefnhverfin með
endurnýjun húsnæðis og lífstíls keyrði upp eft-
irspurn eftir gömlu bístróunum á mettíma.
Ungir og metnaðarfullir kokkar voru ekki
lengi að sjá tækifæri í niðurníddum veitinga-
stöðum sem höfðu farið á hausinn auk þess
sem heilsuvakningin opnaði augu fólks fyrir
óhollustu skyndibita og verksmiðjuframleidds
matar. Frönsku bístróin hafa því átt óvænta end-
urkomu á veitingahúsasenuna síðustu fjögur
árin og nú fer varla nokkur maður til Parísar
lengur án þess að koma við á nokkrum af
þessum allra vinsælustu bístróum enda getur
það gerst að þar sé hlutfall íslenskra gesta und-
arlega hátt. Sums staðar er þó erfitt að komast
að og nauðsynlegt að panta borð með góðum
fyrirvara.
Vaudeville
Jafnvel þó Veudeville sé stór og
líflegur staður og skemmtilegt
að koma þar í hádeginu til-
heyrir hann kannski ekki
þessari nýju kynslóð bí-
stróa. Hann er arfleifð
fyrri tíma. Vaudeville
á sína fastagesti eins
og almennileg frönsk
Bístró. Litrík eldri
kona, sem var
eins og minnis-
varði um horfna
tíma, reyndist nægilega
vinaleg til að blanda sér í
samræður við útlendinga á næsta
borði. Það var gott að fá álit slíks
sérfræðings á matseðlinum sem
bauð að sjálfsögðu upp á það
helsta sem náttúran framleiddi þá
árstíðina. Vaudeville gefur gestum
sínum tilfinningu fyrir því að þeir
séu í stanslausu partíi og það er
erfitt að hætta að panta.
29, rue Vivienne - Paris
00 33 140200462
L'amie Marcel
Hér hefur verið lagt öllu meira í útlit
staðarins enda ungt teymi hönn-
uða á bak við það. Matseðillinn er
góð blanda af gamla góða franska
matnum í bland við uppfinninga-
gleði hinnar nýju kynslóðar, Andar-
terrine og sniglar í klettasaltsósu
eru gott dæmi um það.
33 Rue Georges Pitard
00 33 148566206
■r' i
\\''j
rf
4
CT
A
Jé
é t
r w •*s ; '
'f-
W
■-é . , M \ \ 17
Ekta franskar kartöflur
Frönskur eins og Frakkinn sjálfur
víll hafa þær.
Benoit
Benoit er eitt af þessum klass-
ísku gömlu fallegu bístróum sem
hefur verið leyft að halda sínum
gamla sjarma. Maturinn er eins
klassískur og hugsast getur, pylsur,
kæfur, ostrur og baunasúpur pá
gamle moden. Innréttingarnar gefa
staðnum gamladags sjarma sem
hleypir nánast angurværum anda í
brjóstið. Benoit er nú í eigu franska
eðalkokksins Alan Ducasse sem
á fjölda hágæðaveitingastaða
um heiminn. Ducasse á einnig
Aux Lyonnais bístróið og sögur
herma að hann hafi nú augastað
á Chez Lami Lois sem er ekki
nema eðlilegt þegar tekið er mið
af þeim vinsældum sem bístróin
njóta um þessar mundir.
20, Rue Saint-Martin, Paris,
00 33 142722576
La Cerisaie
La Cerisaie er rekið af hjónunum
Maryse og Cyril Lalanne og er
nánast orðabókardæmi um stíl
þessara nýju vinsælu bístróa. Þar
er enginn prentaður
matseðill og engin
leið að panta
eða taka frá
borð. Það
sem er
í boði
á degi
hverjum
er í full-
komnum
takti við það
sem ferskast
býðst úr skauti
móður náttúru hverju
sinni. Á krítatöflu stað-
arins eru ómótstæðilegir réttir og
verðið er vel viðráðanlegt.
70 Boulevard Edgar-Quinet,
00 33143209898
Ekkert prjál
Chez L’ami Lois
Lami Lois hefur verið dásamað í
bak og fyrir sem eitt besta bístróið
París. Það getur
því komið gestum
opna skjöldu að
ganga inn í kjall-
araholu sem lítur
ekki út fyrir að
hafa verið
endurnýjuð
frá síðustu
heimsstyrj-
öld. Stað-
urinn hefur
enda verið
rekinn nán-
ast óbreyttur
*r
Þykkar og rjómamjúkar sneiðar af fo/sáratugum
gras, bornar fram á sveitavísu. saman og það
má greina stolt
hjá þjónunum þegar þeir greina frá
þessu. Það er verulega góð stemn-
ing sem fylgir látleysinu og þegar
maturinn berst á borðið kemst
ekkert annað að. Ferskur aspas
í smjörsósu kostar tæpar sex
þúsund krónur og er hverrar krónu
virði, líkt og grillaði kjúklingur-
inn, hvítlaukskartöflurnar og
villtu jarðaberin í rjómanum.
Reyndar er maturinn svo
góður að allt annað gleym-
ist á meðan matast er.
32, Rue du Vert-Bois,
00 33 148877748
Aldingarðurinn
Villt jarðaberin bragða.
og aldingarðurinn
!jniega eins
Erna Kaaber
Fullelduðu kjúklingabitarnir frá Matfugli á grillið, í ofninn eða á pönnuna.
Með hverjum bakka fylgir Léttsósa frá Salathúsinu.
Lögregla í Preston á Englandi vill ný lög sett:
Bannað að drekka standandi
Það eru ekki margir sem telja
að það sé sérstaklega hættulegt að
drekka áfengi standandi. Raunar
virðist eina hættan vera sú að það
er auðveldara að detta á hausinn sé
áfengi innbyrt standandi frekar en
sitjandi. Lögreglan í Preston á Bret-
landi er ekki á sama máli. Þeir álíta
að það að drekka áfengi standandi
sé ein af meginorsökum óspekta á
skemmtistöðum og vilja því banna
gestum sem standa að kaupa áfengi.
Standandi drykkja ýtir
undir ofbeldi
Margir kjósa að standa við barinn
á meðan þeir drekka áfengi enda má
segja að það sé einkar hentug staða.
Karlmenn eru ekki síst þekktir fyrir
þessa stöðu og eflaust mætti færa
rök fyrir því að bjórinn renni ljúfar
niður ef búkurinn stendur frekar
en situr. Fyrir utan þá þægilegu
staðreynd að ekki þarf þá að labba
á barinn. Breska lögreglan heldur
því hins vegar fram að ef drukkið er
standandi þá ýti það undir áfengis-
tengt ofbeldi. Það sé töluvert auðveld-
ara fýrir ofbeldissegg að slá næsta
mann sé hann standandi en sitjandi.
Lögreglan sér því þá eina leið færa
að banna fólki að standa á meðan
það drekkur áfengi og þeir vilja að
ákvæðið verði komið í lög strax í
haust. Ef það gengi eftir mættu ein-
ungis sitjandi gestir kaupa áfengi.
Kráareigendur ósáttir
Andy Hobsen lögreglumaður
segir að með þessu sé ekki verið að
reyna að hafa áhrif á magnið sem
fólk drekkur heldur nálægðina við
annað fólk. „Þegar þú stendur ertu
nær öðru fólki og það getur skapað
vandamál. Fólk þjappar sig við
barinn, það er ýtt við einhverjum
og bjórinn fer út um allt og það er
allt sem til þarf.“ Enn sem komið
er hafa stjórnmálamenn visað hug-
myndinni frá sér og telja hana óhag-
sýna. Kráareigendur eru sömuleiðis
ósáttir við tillöguna og einn þeirra,
Ryan Wood, segir að tillagan gæti
jafnvel ýtt undir ofbeldi þar sem við-
skiptavinirnir muni ekki sætta sig
við að verða sagt að setjast á fimm
mínútna fresti. Auk þess væri von-
laust að framfylgja þessum reglum.