blaðið - 10.08.2006, Blaðsíða 22

blaðið - 10.08.2006, Blaðsíða 22
íþróttir ithrottir@bladid.net „Minningin um þaö þegar viö vorum slegnir út aí Portúgölum mun lifa meö mér alla ævi. Ég mun aldrei gleyma sársaukanum. Þetta var hræöilegt." - John Terry, fyrirliði Chelsea, segist hafa fengið martraðir eftir HM. FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2006 MaöÍA X •» Utan vallar með Matthias Guðmundssyni, fótboltamanni í Val Matthias Guðmundsson hef ur farið mikinn i liði Valsmanna i sumar og skorað fjögur mörk. Hann var á þriðju daginn valinn i A-landsliðið i fyrsta sinn, fyrir vináttulandsleikinn gegn Spánverjum 15. ágúst. Fæðingardagur og ár? 1. ágúst 1980. Uppáhaldsbíómynd? The Godfather-serian. íslandsmeistaratitill eða 1. vinning- ur í lottói? íslandsmeistaratitill. Hvaða persónu vildirðu helst lok- ast inni í lyftu með? Woody Allen - furðulegur karakter. Hvaða dýri finnst þér þú helst líkjast? Kattardýrinu. Uppáhaldsbók? 101 Reykjavík. Uppáhaldshljómsveit/tónlistar- maður? Radiohead og Pixies. Uppáhaldsmatur? Humar og hangikjöt. Hvað gleður þig mest? Að vinna leiki með Val. Hvert myndirðu fara ef þú ættir timavél? Fara aftur I timann og spila leik með Maradona. Hvað myndi bíómyndin um þig heita og hver ætti að leika þig? „Tár, bros og takkaskór" og ég myndi vera leikinn af Þorgrími Þráinssyni. Hver er tilgangur lífsins? Aö koma genum sínum áleiðis og lifa góðu lífi. Mestu vonbrigðin á íþróttaferlin- um? Að falla þrisvar með Val. Mesta afrek innan vallar? Bikarmeistari með Val. En utan vallar? Að eignast barn. Hver er skrýtnasti liðsfélaginn? Sigurbjörn Hreiðarsson er mögnuð týpa. Uppáhalds lið í enska boltanum? Newcastle. Uppáhalds íþróttamaður fyrr og síðar? Arnór Guöjohnsen og Jordan. Ef þú þyrftir að skipta um íþrótt, hvað yrði fyrir valinu? Handbolti. Ég var óútreiknalegur hornamaður á sínum tíma. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Að tapa leikjum. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst barn? Rambo. Hver viltu að lokaspurningin sé og hvernig myndirðu svara henni? í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Puma. Skeytin inn D! mu. / N; arren Bent, leikmaður | Charlton, og Theo Walcott, leikmaður Arsenal, hafa verið valdir í U-21 landsliðshóp Englendinga fyrir leik gegn Moldóvum næsta þriðjudag. Lík- ur höfðu verið leiddar að því að Bent yrði í A-landsliðshópnum en Steve McClaren, landsliðsþjálfari, segist vilja sjá hann leika með U-21 hópnum fyrst. Walcott var í enska landsliðshópnum á HM en lék ekkert með liðinu. Táningurinn Aaron Lennon hjá Totten- éíHk ham virðist hins veg- M ar vera á góðri leið fljkB jfBL meðaðvinna sér fast sæti í Sá A-landslið ýráðinn landsliðsþjálfari Brasilíu, Dunga, hlýtur eldskírn sína með liðið í æfingaleik gegn Norðmönnum í Osló þann 16. ágúst. Brasiliumenn taka svo á móti Wales á White Hart Lane, heimavelli Tottenham í Lundúnum, þann 5. september. Wales-menn og Brasilíumenn hafa mæst níu sinnum áður og hafa þeir fyrrnefndu einu sinni farið með sigur af hólmi. Það var árið 1991 og skoraði Dean Saund- ers sigurmarkið. Sviptingar hjá Arsenal: Megum ekki missa Cole ■ Henry óttast að Cole fari ■ Reyes til Real í lok vikunnar? Sáttur með lífið Góðar líkur eru á þvi að bakvörðurinn Ashley Cole verði leikmaður Chelsea á næstu dögum. ásf 'Þ 7 ^ m ■ém-mmf’wHr-:: Thierry Henry, fyrirliði Arsenal, segir að það yrði mikið áfall fyrir félagið ef Ashley Cole fer til Chels- ea. Henry segir að skarðið sem Cole muni skilja eftir sig sé viðlíka því sem varð þegar Patrick Vieira fór til Juventus síðasta sumar. Jose Mourinho, stjóri Englandsmeistar- anna, hefur ítrekað reynt að fá bak- vörðinn knáa, sem er 25 ára, í sínar raðir og hefur gert Arsenal tilboð sem hann vill fá svar við fyrir lok vikunnar. Ekki til Chelsea! „Það var mjög erfitt að missa Vi- eira til Juventus og það yrði engu minna erfitt að missa Ashley,“ sagði Henry i samtali við dagblaðið Sun. „Auðvitað viljum við halda honum, hann er einn besti vinstri bakvörð- ur heims. Gael Clichy og Philippe Senderos eru þegar meiddir og okk- ur vantar fjölmarga leikmenn þann- ig að við megum ekki missa hann,“ sagði Henry. Hann sagði enn fremur að sér myndi svíða það sérstaklega mikið að horfa á eftir Cole til keppinauta sinna. „Ég hef ekki hugmynd um hvernig ástandið er hjá Chelsea. En ef hann fer þangað erum við að láta þá fá eina verðmætustu eign okkar og það yrði erfitt að taka því.“ Reyes vill fara Cole var ekki i leikmannahóp Arsenal í Evrópuleiknum gegn Din- amo Zagreb á þriðjudag og Jose Antonio Reyes var á varamanna- bekknum. Það þýðir að báðir eru gjaldgengir með öðru félagi í Meist- aradeildinni ef þeir ákveða að fara frá Skyttunum, en Reyes hefur ít- rekað verið orðaður við Real Madr- id í sumar. Sagt er að Madridarliðið ætli að bjóða 10 milljónir punda í kappann, sem er 22 ára. Reyes sagði við spænska dag- blaðið AS í vikunni að hann væri haldinn heimþrá og vonaðist til að ganga til liðs við Real Madrid sem fyrst. „Ég og fjölskylda mín von- umst til að hlutirnir komist á hreint sem fyrst. Ég verð með kveikt á far- símanum allan sólarhringinn og viðbúinn að svara öllum mikilvæg- um símtölum,“ sagði Reyes. Wengervongóður Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segist enn vera vongóður um að Cole og Reyes fari hvergi. Hann sagði ástæðuna fyrir því að Reyes hafi ekki spilað vera að hann hafi verið órólegur, ekki vegna mögu- legrar sölu til Real Madrid. „Eftir allan hamaganginn í kringum Rey- es fannst mér rétt að hvíla hann í leiknum. Það kom því ekkert við að hann væri að fara til Real,“ sagði Wenger. Ó, María mig langar heim Jose Antonio Reyes hefur staðið sig vel með Arsenai en þjáist af heimþrá. í FIMM VERSLUNUM OG HJÁ UMBOÐSMÖNNUM ÍÓÐ KAUP! Pottar og pönnur 25—40% afsláttur. Strjáujárn 20% afsláttur ÞVOTTAVÉLAR ÞURRKARAR UPPÞVOTTAVÉLAR KÆLISKÁPAR OFNAR - VIFTUR HELLUBORÐ 15°/i AFSLÁTTUR SJÁ NANAR Á WWW.ORMSSON.I: m AKUREYRI • Simi 461 5000 | KEFLAVlK ■ Simi 421 1535 | SMÁRALIND • Sími 530 2900 Pfonee/ HEIMABÍÓ Nýtt módel 2006/2007 TlLAOVfRSlA Verð AOur: 59.900 kr. TILBOÐSVERÐ: 49.900 kr. ORMSSON

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.