blaðið - 10.08.2006, Qupperneq 27
blaðið FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2006
35
deiglan
deiglan@bladid.net
Sveifla á Café Paris
DJ Lucky spilar sálar-, fönk- og reggitónlist á Café Paris i
kvöld frá kl. 21:30-01.
Hvað er
að gerast
FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST
GENGIÐ UM ÆGISÍÐU
Útivistarræktin sem er óformlegur
félagsskapur innan ferðafélagsins
Útivistar stendur að venju fyrir göngu-
ferð i nágrenni Öskjuhliðar í kvöld kl.
18. Lagt verður af stað frá bílastæði
við austurenda göngubrúarinnar yfir
Kringlumýrarbraut (þar sem Skóg-
ræktarfélag Reykjavikur var eitt sinn
með aðstöðu). Gengið verður vestur
með Öskjuhlíð, um Nauthólsvík og út
með Skerjafirði að norðan út undan
Ægisiðu. Farið er sömu leið tii baka
og er gert ráð fyrir að gönguferðin
taki rúma klukkustund.
Allir eru velkomnir í ferðina og er
ekkert þátttökugjald.
TÓNLEIKAR I REYKHOLTSKIRKJU
Kanadíski strengjakvartettinn
Quartetto Constanze heldur tónleika
i kvöld kl. 20.30 í Reykholtskirkju.
Á efniskránni eru verk eftir Haydn,
Beethoven, Schumann, Jón Leifs,
Piazzola og R. Murray Schafer og
einnig nýfundið verk eftir vesturis-
lenska tónskáldið Þórð Sveinbjörns-
son. Aðgangur er ókeypis.
DANS OG GRILL (ALÞJÓÐAHÚSINU
Lokakvöld sumardagskrár Alþjóða-
húss verður haldið á Café Cultura i
kvöld kl. 20. Boðið verður upp á grill-
aðan mat og þeir sem vilja geta lært
að dansa tangó. Allir eru velkomnir
og er enginn aðgangseyrir. Drykkir
eru ekki innifaldir.
Uppskeru- og handverkshátiðin í Eyjafjarðarsveit 2006
Smíða stærsta gítar íslands
Það verður mikið um dýrðir
á Uppskeru- og handverks-
hátíðinni í Hrafnagilsskóla
í Eyjafjarðarsveit sem hefst
i dag og stendur út helgina. Þetta er
í fjórtánda skipti sem handverkshá-
tíðin er haldin en auk þess að sýna
fjölbreytta handverksgripi er boðið
upp á nýjar og ferskar landbúnaðar-
afurðir svo sem grænmeti og kjötaf-
urðir. „Við erum í samstarfi við Fiski-
daginn mikla á Dalvík sem fer fram
sömu helgi. Þar er náttúrlega sjávar-
fanginu gerð skil þannig að okkur
fannst full ástæða til að gera land-
búnaðinum góð skil á móti,“ segir Dó-
róthea Jónsdóttir framkvæmdastýra
hátíðarinnar.
Hljóðfærasmiðir dregnir fram
Handverkshátíðin hefur sérstakt
þema á hverju ári og í ár er áherslan
lögð á tónlist. „Hljóðfærasmiðir eru
afar færir handverksmenn og með
tónlistarþemanu erum við að sam-
eina handverkið og tónlistina saman
í hljóðfærunum sem verða þarna til
sýnis auk þess sem leikið verður á
þau,“ segir Dóróthea.
„Við höfum verið að reyna að draga
hljóðfærasmiði fram í dagsljósið.
Það er til mjög skemmtileg hljóðfæra-
verslun i Reykjavík sem heitir Hljóð-
heimur og þar eru yfir hundrað
mismunandi tegundir af jaðarhljóð-
færum sem menn hafa meðal annars
leitað uppi í litlum smáþorpum víða
um heiminn. Þetta eru kannski hljóð-
færi sem búið er að þróa í gegnum
kynslóðir á þessum ákveðna stað.
Hljóðheimur er meðal annars með
hljóðfæri sem hafa verið notuð í
tengslum við meðferðir á fólki og
eins fara starfsmenn verslunarinnar
stundum inn á leikskóla með sér-
staka dagskrá fyrir börn vegna þess
að tónlist örvar náttúrlega andlegan
þroska þeirra."
Útskorinn bergrisi
Jón Marínó Jónsson fiðlusmiður
verður einnig á staðnum og sýnir
Stærsti gítar á íslandi
Hópur tréskurdarmanna smíðaöi stærsta rafmagnsgít-
ará Islandi sérstaklega fyrir Uppskeru- og handverks-
hátíöina. Gítarinn sem eryfir fjórir metrar á lengd er
nákvæm eftiriíking af Fender Telecaster.
fiðlur á mismunandi stigum og auk
þess sem hann mun segja kynngi-
magnaða sögu einnar fiðlunnar sem
hann er með í smíðum en að sögn Dó-
rótheu kemur sálin í hljóðfærinu úr
draugaskipi sem standaði fyrir 125
árum í Höfnum. Einnig verður frum-
flutningur á fiðlu sem Jón hyggst fara
með í samkeppni á Ítalíu í haust.
Síðast en ekki síst verður til sýnis
stærsti gítar sem smíðaður hefur
verið hér á landi en hann er sérstak-
lega gerður fyrir hátiðina. Gítarinn
góði er eftirlíking af Fender Telec-
aster rafmagnsgítar og er yfir fjórir
metrar á lengd i réttum hlutföllum.
Hópur tréskurðarmanna sem
kalla sig Einstaka á heiðurinn að
smíðinni.
„Við erum líka með annað risaverk
í vinnslu sem er útskorinn bergrisi.
Hann er einnig gerður í tengslum
við hátíðina og verður síðan komið
fyrir við Geysisstofu í Haukadal. Ris-
inn er kenndur við Bergþór í Bláfelli
sem var mjög þjóðkunnur bergrisi
og mikið vitnað í hann í þjóðsögum,“
segir Dóróthéa og bætir við að risinn
góði sé 2,60 metrar á hæð og vegi yfir
hálft tonn.
Tónleikar og fyrirlestrar
Fjölbreytt skemmti- og fræðslu-
dagskrá verður í boði alla daganna
sem hátíðin stendur. Meðal ann-
ars verða tónleikar með Steindóri
Andersen, Báru Grímsdóttur og
Didda fiðlu. Hörpuleikarinn Muff
Worden leikur á hörpur af ýmsum
stærðum og gerðum og loks treður
írski þjóðlagasöngvarinn Michael
Black upp en hann er af frægri írskri
þjóðlagafjölskyldu.
Dansverk unnið út frá
raunveruleikasj ónvarpi
Leiksýning undir berum himni
íslenska hreyfiþróunarsam-
steypan frumsýnir dans- og leik-
húsverkið Meyjarheftið í gamla
Ó. Johnson og Kaaber húsinu við
Sætún kl. 20 í kvöld. Sýningin er
liður í ArtFart listahátíð ungra
sviðslistamanna sem stendur yfir
frá 10.-20. ágúst.
íslenska hreyfiþróunarsam-
steypan er skipuð fimm ungum
nútímadönsurum sem hafa unnið
saman að hinum ýmsu verkum
síðastliðin tvö ár. Hópurinn hefur
meðal annars sýnt í Færeyjum,
Þýskalandi og á Ítalíu og unnið
til verðlauna í alþjóðlegum dans-
keppnum fyrir unga listamenn.
„Við tókum ýmsa þætti raunveru-
leikasjónvarps og bárum saman
bandarfskt, evrópskt og íslenskt
raunveruleikasjónvarp og kom-
umst að þeirri niðurstöðu að ís-
lenskt raunveruleikasjónvarp er
kannski hvað mest áhugaverðast
einmitt af því að það er einna raun-
verulegast. Hinir eru allir komnir
upp á lag með það að „feika“ raun-
veruleikann. íslendingar ekki
komnir á það stig,“ segir Melkorka
Raunveruleikasjónvarp og dans
Islenska hreyfiþróunarsamsteypan
frumsýnir dansverkið Meyjarheftiö í
kvöld en þaö er unniö út frá raunveru-
leikasjónvarpi. Myndfíverrir
Sigrlður Magnúsdóttir hjá íslensku
hreyfiþróunarsamsteypunni.
Taka þarf frá miða f síma
824-8870.
Leikfélagið Sýnir sýnir leikritið
Máfinn eftir rússneska rithöfund-
inn Anton Tjekhov í Elliðaárdal í
kvöld kl. 20.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem leik-
hópurinn setur upp verk á þessum
stað en uppfærsla hans á Draumi á
Jónsmessunótt eftir William Shake-
speare á sama stað fýrir þremur
árum er enn mörgum í fersku minni.
Sýningin fer fram undir berum
himni og segjast aðstandendur sýn-
ingarinnar hafa gert samning við
veðurguðina um gott veður í kvöld.
Sýningin í kvöld er sú þriðja og síð-
asta á þessum stað en verkið verður
einnig sett upp á Fiskideginum
mikla í Dalvík á laugardag.
Félagar f leikfélaginu Sýnum
koma víða af Iandinu en það var
upphafiega stofnað af nemendum í
Leiklistarskóla Bandalags íslenskra
leikfélaga á Húsabakka í Svarfaðar-
dal. Leikfélagarnir starfa allir í leik-
félögum í heimahéraði á veturna en
vinna með Sýnum á sumrin til að fá
útrás fyrir leiklistarþörfina.
Leikstjóri Máfsins er Guðjón
Þorsteinn Pálmarsson, Denni, sem
leikstýrði Stútungasögu þegar hún
var sett upp í Heiðmörk hjá félaginu
fyrir tveimur árum.
Persónur og leikendur
í helstu hlutverkum eru Júlía
Hannam sem Arkadína, Halldór
Magnússon sem Trígorín, Guð-
mundur Lúðvík Þorvaldsson sem
Tréplev, Aldfs G. Davíðsdóttir sem
Nína og Rúnar Lund sem Sorin.
Aðrir leikarar eru meðal annars
Gísli Björn Heimisson, Sigsteinn
Sigurbergsson, Anna Bergljót
Thorarensen, Dýrleif Jónsdóttir,
Ármann Guðmundsson og Arnar
Ingvarsson.
Um tónlistina í sýningunni sér
Snæbjörn Ragnarsson, Bibbi, sem
hefur unnið með Hugleik og Leik-
félagi Kópavogs við góðan orð-
stír. Bibbi semur alla tónlist og
texta auk þess sem hann er með
fimm manna sjúskaða djasssveit
á sveitasetri Sorins. Um búninga
sér Kristín Gísladóttir.