blaðið - 10.08.2006, Side 29

blaðið - 10.08.2006, Side 29
 Hann veit ekkert og heldur sig vita allt. Örugg vísbend- ing um pólitískan frama. George Bernard Shaw Afmælisborn dagsms HERBERT HOOVER FORSETI, 1874 NORMA SHEARER LEIKKONA, 1900 blaöiö FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2006 kolbrun@bladid.net Hallgrímskirkju í dag leikur Kári Þormar á hádegistónleikum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju. Tónleikarnir, sem hefjast kl. 12 og standa í hálftíma, eru skipulagðir í samvinnu við Félag íslenskra orgelleikara. Eftir að Kári lauk framhaldsnámi í orgelleik í Þýskalandi hefur hann lengst af verið organisti Áskirkju auk þess sem hann hefur komið fram á tónleikum bæði hérlendis og erlendis. Á efnisskrá Kára eru fjögur verk. Fyrst leikur hann sálmforleikinn Nun danket alle Gott (Nú gjaldi Guði þökk) eftir Sigfrid Karg- Elert og svo Variations sur un théme de Clément Janequin eftir Frakkann Jehan Alain. Þriðja verkið er Prelúdía og fúga í G-dúr eftir Johann Sebastian Bach og tónleikunum lýkur með Prélude et Fugue sur le nom d’Alain eftir Maurice Duruflé. Étaí Sögusetrinu Helena Hansdóttir opnar í Sögu- setrinu Hvolsvelli laugardaginn 12. ágúst. kl 15. Sýningin ber heitið Éta og samanstendur af vídeógjörningi, Ijósmyndum og innsetningu. Helena útskrifaðist frá Listaháskóla íslands 2004 og hefur verið við nám og störf í London síðan. petta er fyrsta einkasýning hennar. Sýningin stendur til 3. september. Sögu- setrið er opið alla daga frá 10 til 18. Metsölulistinn - erlendar bækur Það má segja að þetta sé menningarhátíð sam- kynhneigðra. Samkyn- hneigðir koma saman til að fagnaýmsum sigr- um í baráttunni en líka til að halda upp á menningu sína og minna á hana því hún er kannski ekki öll- um ljós dags daglega,“ segir Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri Hinsegin daga sem hefjast í dag og standa til 13 ágúst. „Það eru til samkynhneigðir myndlistarmenn, samkynhneigðir tónlistarmenn og svo framvegis. Á þessum degi, með þessari göngu og skemmtunum er verið að halda upp á og minna á okk- ar eigin menningu.“ Messa fyrir samkynhneigða Fjölmargt verður til skemmtun- ar þá daga sem hátíðin stendur yfir. „Gangan sjálf er sá liður sem er mest spennandi. Þar kemur alltaf að því augnabliki að maður færbæði kökk í hálsinn og gæsahúð af þakklæti yfir samstöðunni og stuðningnum sem þjóðfélagið sýnir. Það er mik- ið tilfinningamál að fara niður Laugaveginn í þessari göngu sem er stærsti viðburðurinn," segir Heim- ir Már. „En það sem mér finnst sjálf- um mest spennandi núna er að við erum í fyrsta skiptið með messu í Hallgrímskirkju á sunnudaginn þar sem prestur samkynhneigðra í New York predikar. I messunni munu þjóna tveir til þrír íslenskir prestar. Við erum að vona að okkur takist að fylla Hallgrímskirkju. Við megum ekki flokka fólk svo mikið að telja homma og lesbíur vera öðru- vísi en annað fólk. Margt þeirra er mjög trúað og vill fá að sinna trúar- lífi sínu án þess að vera sett innan sviga. Það er mjög ánægjulegt að hægt sé að halda svona messu í Hall- grímskirkju og við völdum kirkjuna vegna þess að við teljum að margir muni vilja mæta í messuna. Af öðrum viðburðum vil ég nefna að Ruth og Vigdís frá Noregi koma hingað í annað sinn með dragsjóv. Þar eru afar góðir listamenn á ferð 1. 2. 3. 4. 5. Friends, Lovers, Chocolate Alexander McCall Smith Blue Smoke Nora Roberts Saving Fish From Drowning AmyTan The DevilWearsPrada tauren Weisberger Lifeguard James Patterson & Andrew Gross /irginia og Leonard Woolf gifta sig j FireSale Sara Paretsky ^ BlindWillow.SleepingWoman ' Haruki Murakami AlwaysTimetoDie ’ Elizabeth Lowell Mirade Danielle Steel Superstition 10. Karen Robards Llstinn var gerður út frá sölu dagana 02.08.06 - 08.08.06 í Pennanum Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar. Á þessum degi árið 1912 giftist Virginia Stephens, sem var þrítug, Leonard Woolf, sem var einu ári eldri. Leonard hafði verið tíður gest- ur á heimili Virginiu í Bloomsbury hverfmu en þar komu listamenn og menntamenn saman. Virginia og Le- onard stofnuðu saman bókaforlag og gáfu út verk eftir Virginiu, T.S. Eliot og þýðingar á Tjekov og Dostójevskí. Árið 1925 varð Virginia ástfangin af skáldkonunni Vitu Sackville-West. Ástarsambandið varð kveikjan að skáldsögu Virginiu, Orlando. Kynlíf skipti litlu í hjónabandi Virginiu og Leonards en vináttan þeirra á milli var mjög djúp. Virginia þjáðist alla tíð af þunglyndi og fékk geðveikis- köst. Árið 1941 skrifaði hún eigin- manni sínum átakanlegt bréf og þakkaði honum fyrir árin sem þau höfðu átt saman. Síðan gekk hún út, fyllti kápuvasa sína af steinum og drekkti sér. sem slógu í gegn i fyrra. Núna koma þeir með skemmtikrafta með sér og sýningin verður væntanlega enn- þá glæsilegri enn á síðasta ári. Svo er margt annað á dagskránni og ég hvet fólk til að kynna sér hana.“ Betra andrúmsloft Heimir Már segir fordóma gegn samkynhneigðum ekki heyra sög- unni til þótt mjög hafi dregið úr þeim. „Ándrúmsloftið er miklu betra en það var, en það eru ennþá fordómar í gangi. Þessir fáu sem eru illa upplýstir verða auðvitað áber- andi þegar þeir ganga um götur og lemja fólk, sem er því miður enn að gerast. Fólk verður fyrir aðkasti og ofbeldi og ennþá eru settir fyrirvar- ar á samkynhneigða í ýmis störf en ástandið er miklu betra en það var fyrir þrjátíu árum eða svo. Það hef- ur tekist að fræða fólk og upplýsa sem er lykillinn að því að eyða for- dómum. Þegar fólk kemst að því að samkynhneigðir einstaklingar eru í öllum fjölskyldum þá verður um- ræðan miklu auðveldari." Það er mikið verk að undirbúa há- tíð eins og þessa og strax og henni lýkur munu Heimir Már og félag- ar hefja undirbúning að hátíðinni sem haldin verður að ári. „Það má segja að tíu mánuði ársins sé sam- starfsnefnd um hinsegin daga að störfum. Fjáröflun tekur nokkurn tíma. Borgin hefur verið aðalstuðn- ingsaðili okkar en við höfum líka haft stór fyrirtæki sem bakhjarla eins og Icelandair, VIS, Landsbank- ann, Glitni og fleiri sem hafa stutt okkur gegnum árin. Annars væri þetta ekki hægt. Svona stórhátið kostar mikla peninga en er ódýrari en margar aðrar vegna þess að allt er unnið í sjálfboðavinnu.“ Heimir Már Pétursson. „Það má segja að þetta sé menningarhátíð samkynhneigðra. Samkynhneigðir koma saman til að fagna ýmsum sigrum í baráttunni en líka til að halda upp á menningu sína og minna á hana því hún er kannski ekki öllum ljós dags daglega."

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.