blaðið - 16.08.2006, Qupperneq 10

blaðið - 16.08.2006, Qupperneq 10
10 IFRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2006 blaftið Wty SutfÍfmtMUti 46 £ • www.bilamarkadurinn.is s: 567-1SOOSHLQSB MINIONED '04 T0Y0TA YARIS SOL 02/02 Ek.92 þ. V.680,- Lán.295,- VW BJALLA 2.0 05/03 ek.61 þ 1,890,-Lán.1,550,- M.BENZML500 03 Ek.69.þ. V.5,300, Lán.4,200,- SUBARU F0RESTER '99 M.BENZ E 200 CLASSiC K0MPRESS0R 10/04 ek.21.þ 100% lán Áhyggjulaust ævikvöld Meiri sveiflur hafa verið í raunávöxtun lífeyrissjóða á undanförnum árum enda hafa fjárfestingar þeirra íinnlendum sem erlendum markaðsbréfum aukist til muna. Mynd/Steinar Hugi Ávöxtun lífeyrissjóðanna: Meiri sveiflur en áður ■ Metávöxtun hjá lífeyrissjóðunum í fyrra ■ Toppnum náð í bili Eftir Einar Örn Jónsson einar.jonsson@bladid.net Hrafn Magnússon, framkvæmda- stjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, segir að margir lífeyrissjóðir hafi náð góðri raunávöxtun í fyrra. „Það hafa náttúrlega margir lífeyrissjóðir staðið sig vel og á síðasta ári voru það til dæmis Gildi, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Samvinnulíf- eyrissjóðurinn og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins. Þessir sjóðir hafa verið með jafna og góða raun- ávöxtun á síðustu árum,” segir Hrafn og bætir við að minni sveiflur hafi verið fyrr á árum. „Það eru langtum meiri sveiflur í þessu núna en áður fyrr einfaldlega vegna þess að núna eru lífeyrissjóð- irnir svo mikið að fjárfesta í mark- aðsbréfum, það er að segja hluta- bréfum, innlendum og erlendum, og þá skipta bæði markaðurinn og gengið máli. Það voru eiginlega engar sveiflur í þessu fram til 1998. Metávöxtun í fyrra Árið 1999 voru lífeyrissjóðirnir með 12 prósenta raunávöxtun og það byggðist að verulegu leyti á mikilli ávöxtun á erlendum hluta- bréfamörkuðum. Síðan komu þrjú neikvæð ár 2000-2002 sem byggðist á niðursveiflum á erlendum hluta- bréfamörkuðum. Síðustu ár hafa hins vegar verið alveg afbragðsár og í fyrra var metávöxtun hjá líf- eyrissjóðunum. Það hefur aldrei verið jafngóð ávöxtun eða 13,5 pró- senta raunávöxtun að meðaltali og þar byggði hún á innlendum hlutabréfa- mörkuðum,” segir (Mfíi Hrafn. f"°57224?Q F05722»29 stóðu sig ekki jafnvel. Nú hefur þetta eiginlega snúist við. Núna hefur inn- lendi hlutabréfamarkaðurinn verið neikvæður, erlendi hlutabréfamark- aðurinn hefur svo sem ekki heldur verið sérstakur en gengisaðlögun hefur haft mikið um það að segja að þeir sjóðir sýna betri ávöxtun,” segir Hrafn og tekur undir að visst öryggi sé í því fólgið fyrir Toppnum náð 114 Að mati Hrafns er toppnum náð í bili og ekki má bú- ast við jafngóðri ávöxtun á þessu s ári. Hann segir að sjóðirnir séu f langtímafjárfestar og kjósi að líta til lengri tíma en eins árs í senn. „Við höfum frekar viljað líta á fimm ára meðal- talið enda finnst okkur eðli- legt að það sé litið til lengri tíma en til eins árs. Það er klárt mál að lífeyrissjóðirnir sem áttu töluvert mikið í innlendum hlutabréfum voru að gera það mjög gott í fyrra. Þeir sem eru með mikið erlendis sjóð- ina að fjárfesta bæði innanlands sem utan. „Við höfum lagt á það mjög mikla áherslu að lífeyrissjóðirnir eigi að vera með mjög dreift eigna- safn og reyni að draga eins mikið úr sveiflum og hægt er,” segir Hrafn Magnússon að lokum. BSRB: Löggan taki við gæslunni Stjórn BSRB krefst þess að ör- yggisgæsla á Keflavíkurflugvelli verði þegar í stað færð í hendur löggæsluyfirvalda. I yfirlýsingu samtakanna er einkavæðingu öryggisgæslunnar mótmælt harðlega. Einkaaðilar voru fengnir til að taka að sér hluta öryggisgæsl- unnar á Keflavíkurflugvelli eftir að þörf fyrir hana jókst. í yfir- lýsingu BSRB segir að það geti haft áhrif á öryggi þeirra sem fara um Leifsstöð hverjir sjá um gæsluna, opinberir aðilar eða einkaaðilar. Því eiga löggæsluyf- irvöld að sjá um öryggisgæsluna segir í ályktun BSRB. Afganistan: Nató lengur en ætlað var mbl.is Afganistan og NATO munu að öllum líkindum skrifa undir samning í næsta mánuði um langtímadvöl alþjóðlegs hers á vegum NATO í landinu. Þegar samningurinn verður und- irritaður mun hann gera NATO kleift að dvelja lengur í Afgan- istan en upphaflega var áætlað og gert er ráð fyrir að í kjölfarið þurfi aðildarríkin að auka bæði mannafla og fjármagn til her- stöðva í Afganistan. Sem stendur eru um 21 þús- und hermenn á vegum NATO í Afganistan, ríflega helmingur þeirra er í suðurhluta landsins. Gleraugnave fyrir börnin STÆRRI VERSLUN MEIRA ÚRVAL Reykavíkurvegur 22 220 Hafnarfirði 565-5970 www.sjonarholl.is Atlantsolía hefur yfirfarið gögn Ríkiskaupa: Hefðum verið að fullu samkeppnishæfir Eftir Atla ísleifsson atlii@bladid.net ,,Við hefðum getað verið að fullu samkeppnishæfir ef til útboðs hefði komið,” segir Hugi Hreiðarsson, mark- aðsstjóri Atlantsolíu. Starfsmenn fyrirtækisins hafa nú farið yfir gögn frá Ríkiskaupum um samning þeirra við Essó og Skeljung um olíuviðskipti fyrir fjölda ríkisstofnana. Að sögn Huga var talsverður munur á verðinu sem olíufélögin tvö sem Rík- iskaup gerði samning við buðu. „Við höfum óskað eftir svörum um hvers vegna ekki var samið við annan aðil- ann í stað beggja, en við höfum enn Eldsneytissamningurinn Áætlað er að hann sé um 400 milljóna króna virði ekki fengið nein svör.“ Ríkiskaup buðu olíuviðskipti ríkisins út árið 2003 og hafa tvívegis framlengt samn- ing við olíufélögin síðan þá, síðast í vor. „Við urðum mjög hugsi yfir stöðu mála þegar samningurinn var endurnýjaður sjálfkrafa með þessum hætti,“ segir Hugi Hreiðarsson, mark- aðsstjóri Atlantsolíu. „Forsendur hafa breyst gríðarlega á þessum markaði frá því að samningurinn var gerður. árið 2003. Nýtt olíufélag hefur bæst við og aukinheldur er ríkið að undir- búa málshöfðun gegn þeim tveimur fyrirtækjum sem með samninginn eru.“ Áætlað er að samningurinn sé um 400 milljóna króna virði, en meðal ríkisfyrirtækja sem skuld- binda sig sérstaklega til að versla eftir samningnum eru Vegagerðin, Rik- islögreglustjóri, Flugmálastjórn og Orkustofnun.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.