blaðið - 16.08.2006, Side 19

blaðið - 16.08.2006, Side 19
blaftið MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2006 31 Skýringar á veiðilögum: í lögum um vernd, friöun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum koma ákveðin orð oft við sögu. Orð eins og friðun, lífsvæði, vernd og fieira. En hvað þýða þessi orð nákvæmlega? Síöumúla 11 • 108 Reykjavík • Sími: 588 6500 • www.utivistogveidi.is Vernd Vemd þýðir að veiðum eða öðrum aðgerðum, sem geta haft áhrif á viðkomu eða vanhöld dýra af tiltekinni tegund, sé hagað á þann hátt að henni sé ekki stefnt í útrýmingarhættu. Veiðar Að veiða er að handsama eða drepa villt dýr. Þegar um er að ræða fuglaveiðar er einnig átt við eggjatöku. Villtdýr Villt dýr eru allir fuglar og spendýr, önnur en selir, hvalir, gæludýr og bústofn. Dýr sem er handsamað og haft í haldi telst villt dýr. Stýring á stofnum Með stýringu á stofnum viltra dýra er átt við aðgerðir af opinberri hálfu er miða að því að hafa áhrif á útbreiðslu eða stærð tiltekins stofns villtra dýra. Lífsvæði Svæði sem dýr nota sértil framfærslu og viðkomu eða sem farleið. renjatími ’egar talað er um grenjatíma ir átt við ímabilið frá . maí til H.júlí. Netlög Netlög eru hafsvæði 115 metra út frá stórstraums- fjörumáli landareignar eða 115 metra út frá bakka stöðuvatns sem landareign liggur að. Netlög fylgja einnig eyjum, hólmum og skerjum í sjó og stöðuvötnum. Landareign Þetta ættu flestir að vita því með orðinu landareign er átt við jörð eða annað land- svæði sem er háð beinum eignarrétti einstaklings eða lögaðila. Friðun Friðun er bann við veiðum og öðru sem getur áukið van- höld eða dregið úr viðkomu dýra af tiltekinni tegund. Þegar rætt er um friðun tekur hún einnig til eggja og hreiðra Rjúpan með sjö unga að meðaltali Ungatalningar hjá rjúpum fara fram síðsumars og er til- gangurinn að meta varpárangurinn. Nú, þann 14. ágúst, hafa borist upplýsingar um fjölskyldustærð hjá um 100 rjúpum aðallega frá Norðausturlandi og Suðvesturlandi. Samkvæmt upp- lýsingum frá Náttúrustofnun fslands kemur fram að fyrstu niðurstöður frá Norðausturlandi bendi til þess að þar hafi varp verið seint á ferðinni og varpárangur sé slakur. Meðalstærð ungahópa hjá kvenfuglum sem voru með unga var 7,1 ungi. Miðað við þessar niðurstöður er hlutfall ung- fugla í stofninum 76 prósent eða það sama og 2005. Þar sem rjúpnavarp var óvenjuseint á ferðinni í ár er hægt að telja unga að minnsta kosti viku í viðbót. Allir áhugamenn er hvattir til að fara á vettvang þar sem rjúpna er von og huga að fuglum. Einnig að allir sem ekki hafa þegar sent inn sínar talningar að gera það sem fyrst. Klaus Frímor flugukastkennari verður með kastkennslu seinnihluta mánaðarins. Klaus kennir bæði á einhendu og tvíhendu. Hann er sérfræðingur í kasttækni með skotlínu sem hentar Islendingum í roki og lengdarköstum. Áhugasamlr eru beönir aö hafa samband ísíma 588 6500 (Benni) eða e-mail benniOutivistogveidi.is OPIÐ í SUMAR: laugardaga 10-17, sunnudaga 11-16, virka daga 9-19 Neyöarsimi allan sólarhringinn 844 7000

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.