blaðið - 16.08.2006, Page 26
38
MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2006 blaðið
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Ertu búinn að finna veiðigenið í þér?
„Það er ckki rétt að allir Jiafi veiðigen. Þaðfinnst aðeins í ungum og
miðaldra karlmönnum með lágt sjálfsmat. Þá hafa aðrar rannsóknir
sýnt að þeir hafi clckert menningar- eða samfélagsgen. Það er verra."
Staríið mitt
BlaOiÖ/Steinar Hugi
Heppin með samstarfsfólk
^^Smáborgarinn
KREFST
RÉTTLÆTIS
Smáborgarinn er svekktur.
Hann gerðist svo frægur að
skella sér í útilegu með fjölskyld-
unni nýverið. Markmiðið er að á
hverju ári sé farið í eina slíka og
í hvert sinn bætt við einni útileg-
ugræju í safnið. I ár var ákveðið
að kaupa ferðagasgrill. Hafist
var handa við að fletta blöð-
unum og leita að auglýsingum
um grillin. Tvö stórfyrirtæki aug-
lýstu vöruna, annað þeirra átti
grillin ekki til þrátt fyrir auglýs-
ingu þess efnis og því fór Smá-
borgarinn til hins stórfyrirtækis-
ins, Hagkaupa. Þar keypti hann
ferðagasgrill og einnig þrýstijafn-
ara hjá sama fyrirtæki jáví slíkt
er nauðsynlegt svo að grillið
virki. Síðan var haldið í útileguna.
Þegar komið var að kvöldmat
birtist stoltur Smáborgarinn
með nýja grillið sitt og ætlaði
aldeilis að töfra fram eðalmáltíð
handa fjölskyldunni. En nei, þá
kom í Ijós að Hagkaup selja fólki
kolranga þrýstijafnara með grill-
unum og því var ekkert hægt að
En nei, þá kom í ljós
að Hagkaup selja fólki
kolranga þrýstijafnara
með grillunum og því
var ekkert hægt að elda
á því.
elda á því. Smáborgarinn kom
við á verkstæði á Laugum og
eigandi þess kannaðist strax við
málið og benti á haug af þrýsti-
jöfnurum sem viðskiptavinir
Hagkaupa höfðu skipt út. Það er
því ekki Hagkaupum að þakka
að Smáborgarinn náði þrátt
fyrir allt að töfra fram máltíð fyrir
glorsoltna fjölskyldu sína heldur
vill hann þakka Kaupfélaginu á
Laugum fyrir kolapokann og grill-
vökvann sem þar fékkst. Þegar
til höfuðborgarinnar var komið
fór Smáborgarinn svekktur og
sár í Hagkaup til að skila þrýsti-
jafnaranum og þar könnuðust
starfsmenn strax við vandann.
Til þess að koma sálartetri Smá-
borgarans í samt lag óskar hann
eftir því að Hagkaup sendi and-
virði kolapokans og grillvökvans
í pósti (1.560 kr.):
Smáborgarinn
Hádegismóum 2
110 Reykjavík
Á dögunum settist Elín Arnar í
stól ritstjóra Vikunnar en Kristján
Þorvaldsson hafði vermt sætið í
stuttan tíma á undan henni. Elín er
kát með nýja starfið og hlakkar til
komandi tíma. „Ég byrjaði að vinna
sem blaðamaður á Vikunni í janúar
sl. og líkaði strax ákaflega vel. Ég er
menntuð í kvikmyndagerð og hafði
ekki unnið við blaðamennsku áður
en hafði þó skrifað töluvert. Meðal
annars skrifaði ég bók sem ber tit-
ilinn Koss götunnar og fjallar um
þrjá aðila sem hafði tekist að ná sér
upp úr harðri neyslu og óvægnu lífi
á götunni. Einnig hef ég skrifað eina
barnabók. Ég hef fengist við ýmis-
legt, m.a. vann ég um tíma við kvik-
myndagerð en ég kann ákaflega vel
við mig í heimi blaðamennskunnar."
Elín segir það skipta miklu máli að
hafa gott starfsfólk með sér í hinu
viðamiklu starfi ritstjórans. „Ég er
sérstaklega heppin með blaðamenn
og hér er margt reynslumikið og
hæfileikaríkt fólk sem gott er að
leita til. Ég gæti ekki verið heppnari
með samstarfsfólk.“
Elín segir hlutina hafa gerst hratt
þegar hún var ráðin í starfið, eins
og títt er í heimi fjölmiðlanna. „Ég
var í fríi úti í Bandaríkjunum og
nokkrum dögum eftir að ég kom
heim fékk ég símtal þar sem mér
var boðið þetta spennandi starf. Ég
tók því strax þar sem ég hafði mikið
hugsað út í það hvað ég myndi gera
við blaðið sem ritstjóri."
Dagarnir eru oft langir hjá Elínu
enda nauðsynlegt fyrir ritstjóra að
vera vel heima á öllum vígstöðvum
og fylgja blaðinu vel eftir. „Tíminn
líður ákaflega hratt í vinnunni og
hugmyndavinnan sem fram fer er
mjög skemmtileg. Við þurfum allt-
af að vera með augun opin fyrir
nýjum hugmyndum og tækifærum,"
segir Elín.
Vikunni er fyrst og fremst ætlað
að höfða til kvenna en Elín segir að
konur á öllum aldri lesi blaðið. Hún
segir að áherslubreytingar muni
verða þónokkrar á næstu vikum „Við
höldum okkur við alla þessa föstu
liði sem lesendur hafa vanist en útlit-
ið mun gjörbreytast. Hvað áherslur
varðar mætti kannski nefna það að
við ætlum okkur að verða persónu-
legri og blaðamenn verða sýnilegri
en þeir hafa verið hingað til. Mig
langar líka sérstaklega að beina sjón-
um að konum og skoða betur hvað
þær eru að aðhafast burtséð frá því
hvort þær eru þekktar eða ekki,“ seg-
ir Elín brosandi að lokum og hlakkar
til að takast á við ný verkefni.
SU DOKU talnaþraut
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers nfu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
3 8 2 6
1 4
2 9 3
4 1 5 7 8
5 8 9
6 4 5 7
4 7 3 5
9 1 3
3 5
4 8 2 5 3 9 7 1 6
5 7 9 2 6 1 3 4 8
6 1 3 4 8 7 2 5 9
7 3 6 1 5 8 4 9 2
8 9 1 3 2 4 6 7 5
2 4 5 7 9 6 8 3 1
9 6 7 8 4 5 1 2 3
1 2 8 9 7 3 5 6 4
3 5 4 6 1 2 9 8 7
by Jim Unger
10-19
© Jim Unger/dist. by United Media, 2001
Ég held að þú hafir vökvað hann of mikið
Magmís H. Skarphéðinsson,
dýrapinur.
Sigmar B. Hauksson, formaður Skot-
veiðifélags Islands, hélt því fram í
viðtali við Blaðið i gær að allir karlmenn
hefðu veiðigenið í sér.
HEYRST HEFUR...
Islenskir þjóðernissinnar eru
mjög uggandi yfir flokksþingi
Framsóknarmanna og óttast
mjög að Siv Friðleifsdóttir
fari með sigur af
hólmi. Segjaþeir
að þá verði ríkis-
stjórnin nánast
komin í hendur
Norðmanna og
vísa þar til uppruna þeirra
Sivjar og Geirs H.
Haarde. Þáerbara
spurningin hvort
framsóknarmenn
- sem margir eru
fornir í skapi
- verji flokksþingi sínu helst til
þess að ræða 1262 og það allt...
Að öllu gamni slepptu hafa
þó ýmsir - og ekki aðeins
framsóknarmenn - áhyggjur
af því hvað verður ef Siv Frið-
leifsdóttir ber sigurorð af Jóni
Sigurðssyni í formannskjörinu.
Ekki vegna þess að þeir efist um
hæfileika Sivjar til þess að leiða
Framsóknarflokkinn, heldur
ffemur vegna þess að þá sjá
þeir fram á enn eina uppstokk-
unina í ríkisstjórninni. Yrði Siv
formaður er fremur ósennilegt
að hún kysi að sinna erfiðu og
tímafreku ráðuneyti eins og
heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytinu. Fyrir utan hitt, að ekki
sé gefið að Jón Sigurðsson vildi
sitja lengi áfram, færi svo að
hann tapaði. Spyrja þeir hvort
ríkisstjórnin hafi virkilega efni
á enn einum stólaleiknum svo
skömmu fyrir kosningar...
Hvort þær áhyggjur eru
raunhæfar er svo annað
mál. Framsóknarmenn segja að
kosningabaráttan um formanns-
stólinn sé afar róleg og drengi-
leg, svo róleg að sumir segja Siv
ekki gera sér vonir um sigur.
Hún vonist hins vegar eftir svo
góðu atkvæðahlutfalli að hún
geti á þinginu látið undan óbæri-
legum þrýstingi um að fara í
varaformannsstólinn. Eykst þá
vandiGuðnaÁg-
ústssonar, en hann
mun styðja Siv og
hvetja sitt fólk til
hins sama. Verði
sá stuðningur of mikill gæti það
hins vegar orðið honum sjálfiim
aðfalli...
Eins horfa menn nokkuð til
ritarakosninganna. Ólíkt öðr-
um stjórnmálaflokkum er ritara-
embætti Framsóknarflokksins
harla valdamikið á meðan
varaformaðurinn situr næsta
verklaus með hendur í skauti
og bíður þess að formaðurinn
verði fyrir strætisvagni eða loft-
steini. Möguleikar Kristins H.
Gunnarssonar eru taldir afar
litlir eftir allt það sem á undan
er gengið. Hins vegar undrast
menn nokkuð að þau Birkir
Jón Jónsson og
Sæunn Stefáns-
dóttir bjóði sig
bæði fram, en
þauhafahingað
til verið nánir
samherjar og leita á svipuð mið
eftir stuðningi. Sagan segir að
það geti oltið á kyni formanns
og varaformanns, hvort þeirra
verði ofan á...
andres.magnusson@bladid.net