blaðið - 22.08.2006, Blaðsíða 6
20 I HEIMILI & HÖNNUN
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2006 blaöiö
Einfalt gler
gorðinn
GLEROG SPEGLAR
Stigalagerinn
Dalbrekku 26 - SIMI 5641 S9Q
WWW.STIBALAGERINN.IS
STIBAR - HANDRIÐ - EFNIBSALA - SÉRSMÍÐI
Eldhúsið gert upp
Oft er talað um eldhúsið sem
hjarta heimilisins. Þar sameinast
fjölskyldan eftir annasaman dag og
því er um að gera að hafa rýmið sem
hentugast svo að vel fari um alla.
í nýlegum híbýlum eru eldhúsin
gjarnan opin þannig að þau sam-
einast stofu eða borðstofu. I eldri
íbúðum er eldhúsið oftast aðskilið
líkt og önnur herbergi heimilisins.
Oft er talað um hinn gullna þrí-
hyrning þegar kemur að hönnun
og uppsetningu innréttinga og
eldhústækja en á þessu eru margar
útfærslur. Lagt er upp með að þau
heimilistæki sem mest eru notuð
séu næst hvort öðru og nálægt
vinnusvæðinu þannig að auðvelt sé
að athafna sig við eldamennskuna.
Geymslupláss og nauðsynjar
I eldhúsum er gjarnan of lítið
geymslupláss. Erfitt getur verið að
koma pottum og pönnum fyrir og
aðgengi að hinum og þessum nauð-
synjum er oft lélegt.
Ef eldhúsið er of lítið og skápapláss
er ekki nægt þá þarf að fara aðrar
leiðir. Þó svo að ekki henti að koma
upp skápum eða öðrum hirslum þá
má nota veggina fyrir slíkt. Það má
til dæmis setja upp slá sem hægt
er hengja potta á. Eins hafa sumir
brugðið á það ráð að hafa útdregnar
skúffur þar sem sökkullinn myndi
annars vera en þar má geyma t.d. ofn-
skúffur og kökuform sem ekki eru
mikið notuð. Það getur komið vel út
að hengja upp opnar hillur t.d. yfir
eldhúsborðinu. Á þeim er hægt að
geyma leirtau eins og kaffibolla, glös,
morgunverðarskálar og annað slíkt.
Þá losnar líka pláss í skápum fyrir
hluti sem eru síður hafðir uppi við.
Vandamálið getur líka verið að
það sé verið að safna að sér. Sum
eldhús hafa einfaldlega of mikið
geymslupláss og þá fer fólk að safna
að sér óþarfa. Því er um að gera að
fara reglulega í gegnum skápa heim-
ilisins og hreinsa út.
Breytingar eða endurbætur
Ef þú ert sátt/ur við staðsetningu
heimilistækjanna og stærð eldhús-
ins þá er líklega sniðugra að fara í
endurbætur frekar en að ráðast í
algjörar breytingar. Þá sparast tölu-
verður peningur og tími. Með því að
breyta nokkrum hlutum í eldhúsinu
þá gefur þú því nýtt og ferskt yfir-
bragð. Það er t.d. hægt að:
• Mála
• Leggja nýjar flísar
Skipta um hurðarhúna á
skápum og skúffum
• Mála eða sprautulakka
skáphurðir
• Skipta um skáphurðir
Skipta um borðplötu
• Kaupa nýja muni í
eldhúsið
Endurnýja gömul og úr sér
gengin raftæki eins og ís
skáp, ofn og þ.h.
Ef ákvörðun hefur verið tekin um að
endurnýja eldhúsið algjörlega skal
hafa ýmislegt i huga áður en hafist
er handa sérstaklega ef það á að gera
þetta sjálfur. Best er að fá fagmenn
til þess að sjá um pípulagnir og
rafmagn svo að það sé öruggt að það
sé almennilega gengið frá slíkum
grundvallaratriðum.
Eins er sniðugt að gera verðsaman
burð á tækjum og ræða við nokkra
iðnaðarmenn svo að besta tilboðinu
sé örugglega tekið.