blaðið - 25.08.2006, Page 2
2IFRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 25.ÁGÚST 2006 blaöiö
Afbrotamenn:
Ástin besta úrræðið
gegn afbrotum
■ Karlmenn brjóta oftar af sér en konur ■ Þeir róast með aldrinum
■ Átta af tíu á aldrinum fimmtán til fjörutíu
blaðiö==
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Fíkniefnasmygl:
Meö fíkniefni
í Leifsstöð
Ferðalangar voru teknir í
Leifsstöð á mánudag fyrir smygl
á fíkniefnum inn í landið. Sam-
kvæmt fíkniefnalögreglu Reykja-
víkur eru þeir í gæsluvarðhaldi.
Ekki er gefið upp hversu margir
eiga hlut að máli. Samkvæmt
heimildum mun magnið vera
talsvert.
Garður:
Trélistaverki
stolið úr safni
Trélistaverki var stolið úr
húsi Byggðasafnsins í Garði og
veitingastaðarins Flasarinnar í
Garðinum á dögunum.
Lögreglu var tilkynnt um
ránið á miðvikudag.
Verkið er eftir listamann-
inn Björn Bjönsson og er um
fjörutíu sentimetrar á hæð. Það
er trélistaverk og er útskurður af
þorski, ýsu og steinbíti.
Eftir Höskuld Kára Schram
hoskuldur@bladid.net
Karlmenn eru í miklum meirihluta
þegar kemur að útgefnum ákærum
samkvæmt ársskýrslu lögreglustjór-
ans í Reykjavík fyrir árið 2005. Alls
var höfðað mál á hendur 856 einstak-
lingum á siðasta ári og þar af voru
742 karlar. Afbrotafræðingur segir
tölurnar ekki koma á óvart og séu
þær sambærilegar við það sem ger-
ist í nágrannaríkjum okkar. Hann
segir ástfangna karlmenn síður
fremja afbrot.
Munur milli kynja
„Ef karlar myndu haga sér að öllu
leyti eins og konur þá myndi af-
brotum fækka,“ segir Erlendur Bald-
ursson, afbrotafræðingur hjá Fang-
elsismálastofnun. Hann segir enga
eina skýringu vera til á því af hverju
karlar virðast brjóta meira af sér en
konur og bendir á að þær geti verið
félagslegar jafnt sem líffræðilegar.
„Konur fremja sjaldan kynferðis-
brot, þær smygla minna en karlar
og þær slá ekki menn í hausinn með
kylfum. Það er bara munur á hegðun
kynjanna. Kannski sem betur fer
því ef konur væru eins og karlar
þá væri miklu meira um ofbeldi í
samfélaginu."
Samkvæmt nýrri ársskýrslu lög-
reglustjórans í Reykjavík fyrir árið
2005 kemur fram að 87 prósent
þeirra sem voru ákærðir á síðasta
ári í umdæmi embættisins voru
karlar. Alls var höfðað mál á hendur
856 og þar af voru 742 karlar og 114
konur.
1 skýrslunni kemur ennfremur
fram að karlar á aldrinum 15 til 40
ára eru í miklum meirihluta þeirra
sem voru ákærðir eða 79 prósent.
Ákærum fækkar síðan jafnt og þétt í
samræmi við hækkandi aldur.
Ástin bjargar
Erlendur segir margt valda því að
ungir karlmenn brjóta frekar af sér
en þeir sem eldri eru og nefnir m.a.
spennufíkn. „Menn eru ungir og vit-
lausir og tilbúnir að prófa alla hluti.
Keyra fullir og keyra hratt. Það er
spenna sem fylgir þessu.“
Að sögn Erlends hafa sambönd
karla við konur róandi áhrif á þá með
tilliti til spennufiknar. Það valdi svo
því að þeir verða mun ólíklegri til að
fremja afbrot. „Menn róast með aldr-
inum. Verða ástfangnir og eignast
börn. Þá verður spennufíknin mun
minni hluti af lífinu. I raun má segja
að ástin sé albesta úrræðið gegn
afbrotum."
Á förnum vegi
Áttu gæludýr?
Guðný T raustadóttir
Nei, ekki núna. Ég hef átt nagdýr,
hunda, ketti og fleira en læt börnin
duga nú.
Ragnar Páll Bjarnason,
kerfisfræðingur
Nei, það á ég ekki.
Móey, Sóllilja og Fanney
Já, við eigum kött. Hann heitir Rósi.
Kristjana Kristjánsdóttir, nemi.
Nei. Ég á mann og barn.
Þau eru mín gæludýr.
Kristbjörn Valdimarsson, nemi
Ég á páfagauk, hund og tvo naggrísi.
MÝR VAIJÍOSTIJR Á
transportv%H
toll■ og flutninysmiðlun ehf .4 f
Fiskislóð 26 • 101 Reykjavík • Sími: 578 4600
www.transport.is • transport@transport.is
tQgjQfobolurinn
ÞasgilGgur
gjafobolur som
oinfoldor
brjóstgjöfino
Alóðumst
Hamraborg 7
S: 564 1451 www.modurast.is
Heiðsldrt LéttskýjaðiSB«Skýjað 23 Alskýjaðár- iRigning,litilsliáttar^~“Rlgnlngií^Siild “ - Snjókoma^~.-.!
.fe. I
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Dublin
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Ortando
Osló
París
Stokkhólmur
Vfn
Þórshöfn
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Býggt ð upplýsingum frá Veðurstofu (slands