blaðið

Ulloq

blaðið - 25.08.2006, Qupperneq 6

blaðið - 25.08.2006, Qupperneq 6
6 I FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2006 blaðiö Griðastaðurinn ísland: FLÓTTAMENN Á ÍSLANDI Eftir Höskuid Kára Schram hoskuldur@bladid.net Tæplega 250 flóttamenn hafa komið hingað til lands á síðastliðnum áratug samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofu. Flestir þeirra hafa kosið að búa áfram hér á landi og sóst eftir ríkisborgararétti en aðeins örfáir hafa snúið aftur til heimalandsins. Að sögn formanns nefndar um flóttafólk og hælisleit- endur hafa þeir flóttamenn sem upp- haflega voru staðsettir úti á landi nær allir flutt á höfuðborgarsvæðið eftir að aðlögunartima lauk. Enginn eftir á ísafirði „Alltþað flóttafólksem upphaflega var sent til Blönduóss og ísafjarðar er flutt til Reykjavíkur,“ segir Árni Gunnarsson, formaður nefndar um flóttafólk og hælisleitendur. Nefndin er starfrækt á vegum félags- málaráðuneytisins og hefur meðal annars það hlutverk að leggja fram tilllögur um móttöku flóttamanna og hafa yfirumsjón með aðstoð eftir komuna hingað til lands. Upphaflega var reynt að dreifa flóttamönnum um landið og var aug- lýst sérstaklega eftir áhugasömum sveitarfélögum til að taka á móti Íieim. Þannig fóru 30 flóttamenn til safjarðar árið 1996 og 23 til Blöndu- óss tveimur árum seinna. Að sögn Árna búa flestir þeirra núna á höf- uðborgarsvæðinu og spjara sig vel. ,Það flytja nánast allir að lokum á Ártal Fjöldi Þjóðerni 1996 30 Serbía/Króatía 1997 17 Serbía/Króatía 1998 23 Serbía/Króatía 1999 75 Kosovo/Albanía 2000 24 Serbía/Króatía 2001 23 Serbía/Króatía 2003 24 Serbía/Króatía 2005 31 Kólumbia/Serbía höfuðborgarsvæðið með þeirri und- antekningu að sá hópur sem fór til Akureyrar býr ennþá þar.“ Frá árinu 1996 hafa 247 flótta- menn komið hingað til lands og nær allir þeirra frá fyrrum lýðveldum Júgóslavíu. Flestir þeirra hafa sest hér að, að undanskildum 75 manna hópi sem kom frá Kosovo árið 1999. Um helmingur þeirra sneri aftur til heimalandsins skömmu síðar. í fyrrahaust kom svo 31 manns hópur frá Kólumbíu og Kosovó í tengslum við alþjóðlega flótta- mannaverkefnið Konur í neyð. Árni segir að nú sé í undirbún- ingi að taka á móti nýjum flótta- mannahópi á næsta ári. Hann segir undirbúningsvinnunni ekki lokið en verkefnið er unnið í samræmi við ráðleggingar frá Alþjóðlegu flóttamannastofnuninni. „Það er of snemmt að segja hvaðan hópur- inn mun koma og hversu stór hann verður. Ef við fáum grænt ljós frá fjárlaganefnd viljum við fara af stað fljótlega í byrjun næsta árs, með það fyrir augum að hópurinn geti komið um mitt ár.“ Vilja vera hér á landi Þórunn Júlíusdóttir, verkefnis- stjóri hjá Rauða krossinum, segir að mikili meirihluti flóttamanna hafi áhuga á því að setjast hér að. „Þeir sem komu hingað um síðustu aidamót hafa verið að sækja um ríkisborgararétt á undanförnum mánuðum. Það virðast flestir hafa áhuga á því að vera hérna áfram.“ Rauði krossinn, í samvinnu við sveitarfélögin, heldur utan um verk- efni sem aðstoðar flóttafólk við að laga sig að íslensku samféiagi. Um er að ræða eins árs aðlögunartíma þar sem fólk fær meðal annars tæki- færi til að læra íslensku og kynnast landi og þjóð. „Fólk er tilbúið að reyna að aðlagast íslensku samfé- lagi og leggur sig mikið fram. f heild hefur því gengið vel.“ Að sögn Þórunnar er fólk afar fegið og þakklátt við komuna hingað til lands. „Fólk er oft að flýja erfiðar aðstæður og er fegið að vera komið í öruggt skjól. Það hugsar um börnin sín og sér að hérna geti þau átt framtíð fyrir sér." Flóttafólk flýr landsbyggðina ■ Straumurinn liggur á höfuðborgarsvæðið ■ Flestir kjósa að sækja um ríkisborgararétt Gamla Lýsishúsið á Grandavegi Hjúkrunarheimili mun rísa á reitnum. Framkvæmdir í Reykjavík: Lýsishúsið rifið NiðurrifLýsishússinsáGrandavegi í Vesturbæ Reykjavíkur stendur nú yfir. Að sögn Eyjólfs Gunnarssonar, framkvæmdastjóra sölu og markaðs- sviðs íslenskra aðalverktaka, gengur verkið vel. „Lýsishússreiturinn er í deiliskipulagi hjá borgaryfirvöldum þessa dagana, en nýtt hjúkrunar- heimili mun rísa á þessum stað. Þar verða um 90 hjúkrunarrými, auk rúmlega hundrað íbúða sem seldar verða á frjálsum markaði.“ Hryðjuverk undirbúið í Þýskalandi: Líbani grunaður mbl.is Jihad Hamad, 19 ára Líb- ani sem grunaður er um að hafa átt aðild að ráðabruggi um að fremja hryðjuverk í tveimur farþegalestum í Þýskalandi, er nú í haldi lög- reglunnar í Líbanon. Maðurinn var handtekinn eftir ábendingu frá alþjóðalögregl- unni Interpol í borginni Trípólí í gærmorgun. Hamad gaf sig fram við libönsk yfirvöld og var fluttur í hryðju- verkavarnamiðstöð ríkis- ins í Beirút til yfirheyrslu. Hamad er annar maður- inn sem handtekinn hefur verið í tengslum við rann- sóknina á fyrirhuguðum hryðjuverkum í síðasta mánuði. Hinn er 21 árs nemi frá Líbanon, Yo- ussef Mohamad el Hajdib, en hann var handtekinn í Þýskalandi um síðustu helgi.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.