blaðið - 25.08.2006, Qupperneq 32
32
FÖS'TUDAGUR 25. ÁGÚST 2006 blaðÍA
Hafna gjaldi á
byggingavörum
Á heimasíðu neytendasamtak-
anna, www.ns.is, kemurfram
að samtökin sendu á dögunum
umhverfisráðuneytinu umsögn
um drög að frumvarpi um mann-
virki. í þessum drögum er meðal
annars gert ráð fyrir að komið
verði á fót Byggingastofnun
sem taka eigi við starfsemi nokk-
urra stofnana. Drögin gera ráð
fyrir að þessi stofnun verði að
hluta fjármögnuð með gjaldtöku
á byggingavörum.
Neytendasamtökin eru því and-
víg. í umsögn Neytendasamtak-
anna er bent á að slík gjaldtaka
muni leiða til hækkunar á verði
byggingavara og að neyt-
endur muni með hærra verði á
þessum vörum bera þungann af
kosxnaði við rekstur Bygginga-
stofnunar.
Hert á vernd
neytenda
írsk yfirvöld ætla í haust að
herða mjög löggjöf um verslun
og viðskipti. Markmiðið er að
vernda hag neytenda.
Hart verður tekið á 31 söluað-
ferð, svo sem með bönnum
og þungum refsingum. Þannig
verður bannað að reka pýr-
amídakerfi og þeir sem reyna
að blekkja almenning með
happdrættum mega eiga von á
lögsókn og þungum refsingum.
Þyngstu refsingar sem einstak-
lingar geta átt von á nema hátt
í tíu milljónum króna í sekt og
tveggja ára fangelsisvist. Þá
verður í löggjöfinni heimild til
að loka þeim fyrirtækjum sem
beita ólöglegum aðferðum til að
svína á viðskiptavinum.
Samþætting bankaþjónustu og trygginga
Skaðlegt til lengdar
BEÐIÐ í BANKA Allir bankarnir samtvinna fjármálaþjónustu og tryggingar.
Það dregur beinlínis úr
samkeppni og getur
komið í bakið á neytend-
um hvernig bankar sam-
tvinna ólíka þjónustu og
draga þannig úr líkum á að viðskipta-
vinir fari með þjónustu sína annað.
Þetta segir Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytendasamtakanna, og
tekur undir með Páli Gunnari Páls-
syni, forstjóra Samkeppniseftirlits-
ins, sem sagði á fundi í fyrradag að
gæta þyrfti varúðar þegar kemur að
samtvinnun hjá bönkunum.
Bankarnir bjóða allir upp á þjón-
ustulínur þar sem er blandað saman
bankaþjónustu og tryggingum. Séu
viðskiptavinir með ákveðið magn
bankaþjónustu og trygginga á ein-
um stað bjóðast hagstæðari vextir
og iðgjöld. Þetta segir Jóhannes hins
vegar að geti reynst neytendum dýr-
keypt til lengdar.
„Það er alveg ljóst að svona sam-
tvinnun á ýmsum þjónustuþáttum
dregur úr hreyfanleika neytenda á
markaðnum,” segir Jóhannes. „Það
hversu lítill hreyfanleiki neytenda
er á þessum markaði dregur að sjálf-
sögðu úr því aðhaldi sem neytendur
myndu kannski ella veita fjármála-
markaðnum. Það má segja að þessi
samtvinnun komi aftur í bakið
á neytendum í formi minni sam-
keppni en ella væri.”
Sömu meginsamtvinnunina er
að finna hjá öllum bönkunum. KB
banki býður upp á Vöxt þar sem
er að finna tryggingar frá VÍS auk
bankaþjónustu KB banka. Glitnir
býður Gullvild með tryggingum frá
Sjóvá, Landsbankinn Vörðuna og
tryggingar frá TM og loks er Spron
Platínum með tryggingar frá Verði
Islandstryggingu.
Þó að bankarnir bjóði upp á sams
konar þjónustu segir Jóhannes þetta
geta komið í bakið á neytendum þar
sem minni líkur eru á því en ella að
þeir flytji viðskipti sín milli banka.
,Við vitum að þar sem minni sam-
keppni er fyrir hendi keppa seljend-
ur síður í verði. Þegar upp er staðið
getur þetta komið í bakið á neytend-
um.”
Eitt af því sem Neytendasamtök-
in vilja taka upp til að auka sam-
keppni á bankamarkaði er að koma
upp reikniforriti sem geri fólki
kleift að bera saman gjöld og vexti
hjá bönkunum. Jóhannes segir að í
Danmörku hafi verið settur upp vef-
ur þar sem fólk getur skoðað kostn-
að og vexti sem bjóðast hjá hinum
ýmsu bankastofnunum. Þannig geti
fólk tiltölulega auðveldlega borið
saman verð og gæði og ákveðið hvar
það vill vera í viðskiptum. Svona
kerfi vill Jóhannes koma upp hér.
.Ástæðan er sú að þetta er nauðsyn-
legt tæki. Þetta er mjög erfiður mark-
aður fyrir neytendur að hafa yfirsýn
yfir. Til að hafa yfirsýn á markaði
þurfa neytendur að fá ákveðna að-
stoð. Svona reikniforrit gæti hjálpað
neytendum mjög.”
eru ódýrastir?
Samanburður á verði 95 oktana bensíns
AO Sprengisandur Kópavogsbraut Óseyrarbraut
126,40 kr. 126,40 kr. 126,40 kr.
öeGO Vatnagarðar Fellsmúli Salavegur
126,40 kr. 126,40 kr. 126,40 kr.
Kvörtun vegna lélegrar þjónustu
Allir lenda einhvern tíma í því
að fá lélega þjónustu hjá fyrirtæki,
hvort sem um er að ræða gallaðar
vörur eða dónalegt viðmót starfs-
fólks. Því miður treysta sér ekki allir
til að kvarta við yfirmenn þegar þjón-
ustan er léleg sem verður til þess að
vandamálið er kannski aldrei lag-
fært. Það er því mjög milcilvægt að
láta vita ef þjónustunni er ábótavant
og hér eru nokkrir punktar sem gott
er að hafa í huga.
Vertu viss um að þekkja rétt þinn.
Neytendasamtökin geta upplýst þig
og eins finnast oft upplýsingar á
heimasíðu þeirra sem og i dagblöð-
um.
Ekki fresta því að kvarta. Ef þú
kvartar nokkrum dögum eftir atvik-
ið þá lítur það út sem þetta hafi elcki
truflað þig að ráði. Einnig gætirðu
misst réttinn á að fá endurgreitt eða
betra tilboð.
Segðu viðmælanda þínum hvað
tiú vilt en vertu sanngjörn/gjarn.
hugaðu að gera málamiðlun, svo
lengi sem hún er sanngjörn.
Kvartaðu við yfirmann eða versl-
unarstjóra en vertu kurteis en ákveð-
in/n. Það er gagnslaust að öskra á al-
mennan starfsmann ef hann hefur
ekki völd til að aðstoða þig.
Vertu einbeitt/ur og ekki láta af-
sakanir yfirmannsins trufla þig. Ef
kvörtunin ber ekki árangur skaltu
ekki hika við að skrifa formlegt bréf
til framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
Gerðu afrit af bréfinu og hafðu sam-
band við Neytendasamtökin.