blaðið


blaðið - 05.10.2006, Qupperneq 8

blaðið - 05.10.2006, Qupperneq 8
T FÓlK McCANN 8 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 blaAiA Hamas getur ekki stjórnað Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti í gær uppreisnarmenn að vinna með Mahmoud Abbas, forseta palestínsku heimastjórnarinnar. Hún sagði að augljóst að Hamas gæti ekki stjórnað. Rice er á ferð um Mið-Austurlönd til að endurvekja friðarferlið. SRi LANKA Tígrar tilbúnir til viðræðna Leiðtogar tamilsku tígranna vilja hefja friöarvið- ræður við stjórnvöld. Þrátt fyrir það varaði tals- maður tígranna stjórnvöld við þvl að þeir muni ekki virða voþnahléssamkomulagið frá 2002 verði hernaðaraðgerðum gegn þeim haldið áfram. Abe freistar þess að bæta tengslin Shinzo Abe, forsætisráðherra Jaþans, heimsækir ráðamenn í Kina og Suður-Kóreu í næstu viku til að bæta tengsl ríkjanna. Þau hafa beðið hnekki síðustu ár, meðal annars vegna heimsókna jaganskra ráðamanna að minnismerki um þá sem féllu fyrir keisarann í seinni heimsstyrjöld. Leiðtogar Jaþans og Kina hafa ekki fundað i fimm ár. Stjórnvöld skera niður í skólamálum: Ottast ryskingar Ryanair: Til íslands næsta sumar Otlit er fyrir að lággjaldaflug- félagið Ryanair hefji áætlunar- flug til Islands næsta sumar, samkvæmt fréttabréfi Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Þar kemur fram að Ryanair fljúgi bæði frá Stansted-flugvelli f London og frá Dublin á írlandi til Keflavfkurflugvallar. Ekki liggur fyrir hvað boðið verður upp á margar ferðir i viku, en Ryanair hefur lengi haft auga- stað á íslandi til að bæta við þétt áætlunarnet sitt. Ryanair flytur nú um 35 milljónir farþega á ári á um 380 flugleiðum milli 24 landa. mbl.is Foreldrar mótmæla enn fyrirhuguðum niðurskurði í skóla- málum í Árósum og varna fólki inn- göngu í leikskóla, en leikskólarnir hafa verið lokaðir í þrjár vikur. Sund- urlyndis gætir nú hjá foreldrum, sem margir eru orðnir þreyttir á því að geta ekki sent börn sín í dag- vistun. Óttast yfirvöld í Árósum að til ryskinga geti komið ef fram fer sem horfir. Þetta kemur fram á fréttavef Berlingske Tidende. Rúmlega tuttugu þúsund manns tóku þátt f mótmælaaðgerðum í Danmörku í fyrradag til að mót- mæla niðurskurðinum. Um tíu þús- und, flestir þeirra kennarar, tóku þátt í aðgerðum í Kaupmannahöfn en önnur tíu þúsund mótmæltu í Árósum. Rasmussen á þingi Danska ríkisstjórnin hefur ekki náð að sefa mótmæli gegn niðurskurði í velferðarmálum. Mynd/Reulers meö Launavernd Launavernd tryggir áframhaldandi tekjur fjölskyldunnar komi til launamissis vegna fráfalls, sjúkdóma eða örorku. Auk þess byggir þú upp viðbótarlífeyrissparnað sem eykur fjárhagslegt sjálfstæði þitt við starfslok. Uppfærðu launareikninginn þinn með Launavernd. Komdu við í næsta útibui, haföu samband i sima 410 4000 eða faröu á landsbanki.is og fáöu nánari upplýsingar. Landsbankinn [_I Banki allra landsmanna Launavernd Landsbankans FRÉTTAVIÐTAL UMFERÐARÖRYGGI ■ Umferðastofa heldur úti herferðinni Nú segjum við stopp! Rétt tæplega 35 þúsund Islendingar hafa skrifað undir yfirlýsingu um betri hegðun í umfer- ðinni. Tveir hafa látist frá því átakinu var ýtt úr vör og því alls 21 á árinu. ■ Haraldur Sigþórsson, umferðarverkfræðingur hjá Linuhönnun, gagnrýnir átak í umferðaröryggi og segir það ekki virka sé þeim ekki fylgt eftir með aðgerðum. Beita þurfi hörðu eftirliti, sektum, að- gæslu og bæta vegakerfið. Áróður nær gagnslaus ■ Viöhorf og hegðun ólík ■ Gæpamenn í umferðinni Eftir Atla Isleifsson atlii@bladid.net „Umferðaráróður dugar ekki einn og sér ef á að fækka alvarlegum slysum í umferðinni,“ segir Fiar- aldur Sigþórsson, umferðarverk- fræðingur hjá Línuhönnun. „Menn hafa ávallt haft tilhneigingu til að fara auðveldu leiðina í umferðarör- yggismálum og mikla oft fyrir sér árangur hennar. Staðreyndin er hins vegar sú að umferðaráróður hefur lítið að segja, nema ef hann er tengdur aðgerðum.“ Haraldur segir að niðurstöður erlendra rannsókna bendi til þess að erfitt hafi reynst að sjá einhvern ávinning í áróðri. „Margir benda þó á langtímaáhrifin, að áróðurinn hafi áhrif þegar til lengri tíma er litið. Aðrir benda á að væru upplýs- ingar til almennings látnar fylgja með einhverjum framkvæmdum á vegakerfinu eða breytingum á um- ferðarlögum, myndu þær gera eitt- hvert gagn. Þannig næst árangur, með því að upplýsa vegfarendur og kenna þeim að hegða sér öðruvísi við breyttar aðstæður." Á íslandi hefur mikið verið um umferðaráróður undanfarið og segir Haraldur að gegndarlaus áróður um að menn eigi að hegða sér betur í umferðinni geri lítið sem ekkert gegn. „Eitt er að breyta viðhorfum fólks, en annað að breyta hegðun þess. Menn sem keyra of hratt vita vel að þeir eru að keyra of hratt og að það er stór- hættulegt. Samt 'ry*>)k- sem áður hegða þeir sér þannig.“ Haraldur segir að velta megi fyrir sér, hve mikið gagn sé að almennri upplýsingagjöf um augljósa hluti, líkt og að menn eigi ekki að keyra of hratt í umferðinni og að áfengi og akstur fari ekki saman. „Allir vita þessa hluti, en hegðunin breyt- ist ekkert. í slíkum áróðri kemur ekki fram neinn nýr fróðleikur sem líklegur er til að breyta nokkru." Haraldur segir að afvegfarendum þá sé lítill hluti sem kalla mætti umferðarglæpamenn. „Afskaplega erfitt er að eiga við þennan hóp, sérstaklega með áróðri og upplýs- ingum. Það eru hinir sem fylgjast með, reyna að læra af upplýsingum og keyra hægar, auk þess að skrifa undir Stoppl-umferðarátakið. Þessi litli, harði kjarni brotamanna er hins vegar ekkert að velta slíku fyrir sér og ekki er hægt að ná til hans nema helst með eftirliti og háum sektum.“ Að sögn Haralds er þeim sem reyna að fækka slysum með upplýs- ingagjöf og áróðri ákveðin vorkunn. „Það er ekki auðvelt viðfangsefni að reyna að fá fólk til að breyta hegðun sinni. Umferðarráð hefur undan- farið reynt með áróðri sínum að ná til unga fólksins en ég er ekki viss um að það hafi tekist nógu vel. Til að ná árangri og fá fólk til að taka réttar ákvarðanir þýðir ekki að margendurtaka sömu hlutina, heldur þarf að beita hörðu eftir- liti, sektum, aðgæslu og síðast en ekki síst að bæta vega- kerfið verulega.“ Umferðaráróður skilar ekki árangri einn og sér Beita þarf hörðu eftirliti, sektum, aðgæslu og bæta vegakerfið

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.