blaðið - 05.10.2006, Side 19

blaðið - 05.10.2006, Side 19
blaðið FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 19 Ábyrgð og ábyrgðarleysi fjölmiðla Vald fjölmiðla skal ekki vanmeta. En valdi fylgir ábyrgð. Ábyrgðin felst í að segja fréttir sem eiga við rök að styðjast og eru ekki til þess eins fallnar að vekja viðbrögð og ala á fordómum. Fyrirsögnin „íslend- ingar reknir og útlendingar ráðnir" sem birtist í Blaðinu 3. október síð- astliðinn vakti sannarlega viðbrögð. Átti hún við rök að styðjast? Ef ekki, hver var þá tilgangurinn? í umræddri frétt er vitnað í konu sem segist hafa verið sagt upp störfum ásamt eiginmanni sínum og að útlendingar hafi verið ráðnir í störfin. Framkvæmdastjóri fyrirtæk- isins tjáir sig í fréttinni að hann telji það starfsfólkinu sjálfu fyrir bestu að hann tjái sig ekki um ástæður uppsagnarinnar og segir jafnframt ummæli starfsmanna vera algert þvaður. „Óþolandi útlendingadekur“ Gott grín Það var virkilega vel til fundið hjá stjórnarandstöðunni að grínast svolítið. Hláturinn lengir lífið segir máltækið og þess vegna er rétt að líta á það sem vel meint lýðheilsu- átak fyrir þjóðina, þegar leiðtogar stjórnarandstöðunnar komu saman á blaðamannafundi til þess að segja frá áformum sínum um samvinnu í vetur. Verst er að þessi saga hefur verið sögð áður og brandarinn þess vegna farinn að lýjast dálitið. Kaffisopinn í Vesturbænum um daginn reynd- ist ekki meira kærleiksmeðal en svo að síðan hafa stjórnarandstöðuflokkarnir staðið uppi í hárinu hver á öðrum. Einar Kristinn Guðfinnsson Þeir hafa rifist stanslaust og fram á þennan dag um stóriðjumál. Vinstri grænir hafa verið einstaklega and- styggilegir við félaga sína í Samfylk- ingunni og nuddað þeim endalaust upp úr meintu stóriðjudekri og tvö- feldni í afstöðu sinni. Fyrir vikið hafa Samfylkingarmenn svarað fyrir sig með harkalegum hætti, sem telst eðli- legt þegar svo illskeyttri gagnrýni er að þeim beint. Og ekki tók betra við þegar út- spilið mikla um lækkun matarverðs var kunngert. Formaður VG sparaði ekki hin breiðu spjótin þar og gerði lítið úr þessu máli Samfylkingar- innar sem greinilega átti að verða veiðilegt agn á kosningavetri. Og nú síðast fer fram einstaklega harkaleg deila á síðum dagblaðanna vegna þess að sá mikilhæfi bæjar- stjóri, Halldór Halldórsson á ísafirði, bar Smára Geirsson á Neskaupstað ofurliði í formannskosningum á þingi Sambands sveitarfélaga. Þau svikabrigsl sem nú ganga á milli Sam- fylkingarinnar og Vinstri grænna í kjölfarið eru einkar eftirtektarverð og verða seint talin til tákna um elskusamlega pólitíska sambúð. Á svona alvörutímum í sambúð vinstri aflanna fer því vel á, að settur sé á svið einhvers konar pólitískur kabarett, þar sem þeir sem hafa glímt harkalegast láti eins og þeir séu vinir. Og það mega leikararnir í stjórnarandstöðuflokkunum eiga að þeir kunnu rulluna sina; þeir léku vel. Svo vel að maður gat næstum trúað að þetta væri sagt í alvöru. Og þannig er það einmitt í góðu leikverki. En svo vitum við líka að þegar tjöldin falla tekur raunveruleik- inn við. Og hann er bara sá sem við höfum séð birtast okkur í sambúð- inni eins og hún er í alvörunni; ekki á generalprufunni sem við fengum að sjá á dögunum. Höfundur er sjávarútvegsráðherra. er haft eftir formanni Starfsgreina- sambandsins i undirfyrirsögn. Við- brögðin létu ekki á sér standa. 1 út- varpinu spruttu fram umræður um efni greinarinnar. En var hún sönn? „Já, ég sagði upp starfsmönnum, en ég réð engan í staðinn!" var svar framkvæmdastjóra umrædds fyrir- tækis þegar við inntum hann eftir staðreyndum málsins. Atvinnuleysi er í sögulegu lág- marki, 1,2 prósent. ísland er hluti af Evrópska efnahagssvæðinu og er því hluti af sameiginlegu vinnusvæði sem telur 450 milljónir íbúa. Víst er að mikið vatn hefur runnið til sjávar á fáeinum áratugum hjá eins ungri þjóð og ísland er. Það eru ekki nema fáeinir áratugir síðan hingað kom erlent fólk til búsetu og 12 ár síðan ís- land gerðist aðili að EES. Sjálfstæðis- barátta Islands markaði sterka þjóð- erniskennd meðal Islendinga og því ærin ástæða að vanda og huga vel að breyttri þjóðfélagsgerð. Nú ríkir eitt mesta hagvaxtar- skeið í sögu þjóðarinnar. Til þess að það hafi orðið að veruleika höfum við þurft að auglýsa eftir starfsfólki erlendis til að starfa til dæmis við fiskvinnslu, iðnað og þjónustu. En talið er að erlendir ríkisborgarar hafi mannað fjórða hvert starf sem orðið hafi til á íslenskum vinnu- markaði á árunum 1998-2001. Án þess vinnuáfls hefði þetta hagvaxtar- skeið aldrei orðið að veruleika. Þrátt fyrir að erlendum ríkisborgurum hafi fjölgað mikið undanfarin ár er enn skortur á vinnuafli. En að því er fram kom á ráðstefnu Eures, EES- vinnumiðlunar, sem haldin var síð- astliðinn föstudag skortir enn um 4000 manns til að sinna eftirspurn. Orðaleppar um útlendinga vekja áhyggjur Helga Ólafs Ölum ekki á fordómum og sýnum ábyrgð Einar Skulason Aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi er málaflokkur sem hefur orðið fyrirferðarmeiri í þjóðfélags- umræðunni. Við fögnum þeirri um- ræðu en hún þarf að vera á rökum reist og málefnaleg. ölum ekki á for- dómum - sýnum ábyrgð og reynum frekar að tryggja jafnrétti á vinnu- markaði og berum virðingu hvert fyrir öðru. Einar er framkvæmdastjóri Alþjóðahúss og Helga upplýsingafulltrúi þess. 5. - 8. október ÚR KJÖTBORÐI Lamba Svið kr. 549 kg. Lambahjörtu kr. 359 kg. Lambalifur kr. 238 kg. Lamba nýru kr. 99 kg. Lattu kjötiönaðarmenn okkar ráðtegqja þér! ». ▲ kiúklinai Grillaður kjúklingur, franskar og 2 I. Coke HARIBO SPORT MIX fylgir frítt með í kaupbæti þegar þú kaupir 2ia lítra PEPSI MAX &

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.