blaðið - 12.10.2006, Blaðsíða 2

blaðið - 12.10.2006, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2006 blaðiö VEÐRIÐ I DAG Rok og rigning Austan 5 tll 13 metrar á sekúndu og úrkomulítið en hvessir sunnanlands um hádegisbil og byrjar að rigna. Hiti 4 til 13 stig, hlýjast norðanlands. ÁMORGUN Vætutíð Suðaustlæg átt og rigning með köflum, síst þó norðanlands. Milt veður og hægur vindur. VÍÐAUM HEIM | Algarve 22 Amsterdam 16 Barcelona 20 Berlín 17 Chicago 2 Dublln 15 Frankfurt 17 Glasgow 15 Hamborg 17 Helsinki 17 Kaupmannahöfn 16 London 17 Madrid 17 Montreal 15 New York 18 Orlando 20 Osló 11 Palma 22 París 16 Stokkhólmur 13 Þórshöfn 12 Félagsmálaráðherra: Ætlar ekki að hækka bætur Grunnfjárhæð húsaleigubóta mun ekki verða hækkuð nema í sátt við sveitarfélögin að sögn Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra. Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sig- urðardóttur þingmanns um húsa- leigubætur á Alþingi í gær. Hann telur ólíklegt að farið verði í hækk- anir á næstunni. Fram kom í máli Jóhönnu að á sama tíma og húsaleiga hefur hækkað hefur grunnfjárhæð húsaleigubóta staðið í stað síðan árið 2000. Ráðherra benti á að fyrir þremur árum hefðu húsaleigu- bætur verið undanskildar tekjuskatti sem hafi skilað sér í verulegri búbót fyrir bótaþega. Bretland: Styður slæðu- bann í skólum Bill Rammell, sem fer með mál æðri skólastiga í ríkisstjórn Tonys Blairs, sagði í gær að hann styddi þá háskóla sem banna múslímskum konum að hylja andlit sitt í kennslu- stofum. Á dögunum bannaði Im- perial-háskólinn í Lundúnum slíkan klæðnað. Rammell segir ákvörðun stjórnenda skólans hafa verið tekna vegna þess að sumum prófessorum þótti „óþægilegt” að kenna nemendum sem klæddu sig á þennan hátt og hann hefði fullan skilning á banninu. Deilur um höfuðslæður múslímskra kvenna hafa verið áberandi að undanförnu í Bret- landi. Ölíkt mörgum öðrum ríkjum í Evrópu gilda þar engar reglur um slíkan klæðnað á opin- berum stöðum. Maður dæmdur fyrir hrikalega nauðgun og líkamsárásir: íbúðin útötuð blóði ■ íbúðin útötuð í blóði ■ Engar málsbætur Eftir Val Grettisson valur@bladid.net Jón Pétursson, fyrrverandi fast- eignasali, var í gær dæmdur til fimm ára óskilorðsbundinnar fangelsis- vistar fyrir hrottafengna nauðgun, frelsissviptingu og Iíkamsárásir. í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur segir meðal annars að Jón eigi sér engar málsbætur en sjálfur hefur hann haldið fram sakleysi sínu. Árás Jóns á fórnarlamb sitt þykir með eindæmum hrottafengin og þykir það hafa orðið konunni til happs að hún gat sent vini sínum smáskilaboð úr farsíma. Hann kall- aði á lögregluna sem kom konunni til bjargar. Jón hélt konunni fanginni á heim- ili sínu í Grafarvoginum frá fimm að næturlagi til hádegis næsta dag. Á þeim tíma nauðgaði Jón konunni þrívegis og misþyrmdi henni allan tímann. Auk nauðgunar og frelsis- sviptingar var hann fundinn sekur um að hafa skellt andliti konunnar í gólfið og dregið hana á hárinu um íbúðina. Þá er hann dæmdur fyrir að hafa reynt að kæfa hana með kodda. Veifaði eftir hjálp Lögreglumenn komu konunni til bjargar þegar þeir komu að heim- ili Jóns þennan dag í febrúar þegar hann nauðgaði konunni og mis- þyrmdi. Lögreglumennirnir sáu fórnarlamb Jóns veifa út um glugg- ann og biðja þannig um hjálp. Lög- reglumennirnir bönkuðu hjá Jóni en í fyrstu kom enginn til dyra. Kon- unni tókst þó að opna dyrnar og þá blöstu hræðilegar aðstæður við lög- regluþjónunurp, Ibúðin var öll ötuð út í blóði eftir að Jón hafði nauðgað henni ítrekað og misþyrmt meðan hann hélt henni fanginni heima hjá sér. Talið er að skilaboðin sem hún sendi vini sínum kunni að hafa orðið konunni til lífs. Það er ekki einungis árásin hrottafengna í febrúar sem Jón var dæmdur fyrir í gær. Hann var jafn- framt dæmdur fyrir hrottafengna árás á fyrrum sambýliskonu sína í ágúst á síðasta ári. Þá kom hann á heimili sem konan vann við að ræsta og var barn hjónanna sem þar bjuggu einnig heima. Jón rudd- ist inn á heimilið og réðst á fyrrum konu sína. Hún hrópaði á barnið að sækja hjálp á meðan Jón misþyrmdi henni. Barnið hljóp upp á aðra hæð hússins og fór út um þakglugga í skelfingu. Konan hlaut margvísleg meiðsl af árásinni, barninu var verulega brugðið og átti erfitt með að ná sér eftir atburðinn. Hótaði fórnarlambinu Eftir afbrotin sendi Jón nauðgun- arfórnarlambinu ítrekað hrikaleg skilaboð þar sem hann kallaði hana hóru og ásakaði hana um að vera með svarta sál. Jón hefur margsinnis komist i kast við lögin vegna ölvunaraksturs. Auk fimm ára fangelsisvistar þarf Jón að greiða skaðabætur. Hann á að greiða nauðgunarfórnarlambinu eina milljón og 200 þúsund krónur og fyrrum sambýliskonu sinni 800 þúsund. Frakkland: Mannskætt lestarslys á ferð rákust saman í norð- austurhluta Frakklands í gær með þeim afleiðingum að að minnsta kosti tíu létust og tíu aðrir slösuðust. Farþegalestin var á leið frá Lúxemborg til frönsku borgarinnar Nancy þegar slysið átti sér stað. Viðgerð stóð yfir á hluta af lestar- brautinni sem hún ók á og því þurfti hún að skipta yfir á aðra braut en á henni kom flutninga- lestin úr gagnstæðri átt. Fleiri en hqndrað hjálpar- starfsmenn \ >ru kallaðir á vett- vangogbráð birgðasjúkrahús VSf Sett UDD J Vetfvanfii c1xrccír»c Önundarfjörður: íslensk börn í miriiihluta Tveir af hverjum þremur nemendum í Grunnskóla Önundarfjarðar eru af erlendu bergi brotnir eða um 66 prósent. Þetta kemur fram á fréttavef vestfirska fréttablaðsins Bæjar- ins besta. Alls eru 38 grunnskóla- nemendur í Önundarfirði og þar af 25 þar sem annað eða báðir foreldrarnir eru nýbúar. Alls eru 643 grunnskólanem- endur í grunnskólum ísafjarð- arbaejar og þar af 54 af erlendu bergi brotnir eða um 8,3 prósent. Vél: Benz 3,0 t CRD. Eyðsla: 10,2 í blönduðum akstri, Allur fáanlegur búna&ur í Evrópu innifalinn í verði. Þrír litir til á lager. Svartur, silfur og dökkgrár. Sýningarbíll á stabnum. Verft: 5.790 þús. www.sparibiff.is Skúlagötu 17 Sími: 577 3344 Rússneskir sendiráösmenn verða oft fyrir drykkjulátum: Ottast um öryggi sitt „í júní síðastliðnum var stolið núm- eraplötu af bíl sendiráðsins,“ segir Yuri V. Ivanov, sendiráðunautur rússneska sendiráðsins, og tekur til marks um tíð drykkjulæti sem bitna á sendiráðinu og starfsmönnum þess. Þrír piltar stálu þjóðfána sendi- ráðsins um síðustu helgi. Piltarnir skiluðu honum fljótlega og báðust afsökunar á hegðun sinni. Sendi- ráðið hyggst sennilega ekki draga kæruna til baka. Viðurlög við að vanvirða fána ann- arrar þjóðar á þennan hátt eru allt að sex ára fangelsi en það eru sömu viðurlög og ef einhver er kærður fyrir þjófnað. „Við höfum áhyggjur af öryggi sendiráðsins," segir Yuri en bætir við að það sé líka hluti af starfinu að Þetta er ekki fyrsti fánastuld- huga að örygginu. Hann segir tím- urinn hjá Rússunum. Tveir ungir ana viðsjárverða þó svo hann óttist menn stálu fána fyrir rúmum ekki hryðjuverk á Islandi. þremur árum en náðust aldrei.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.