blaðið - 12.10.2006, Page 9
blaðið
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 9
Ráðherra í vanda:
Borgaði ekki
afnotagjöldin
Cecilia Stegö Chiló, nýr menn-
ingarmálaráðherra Svíþjóðar,
hefur ekki borgað afnotagjöld
sænska ríkissjónvarpsins í sex-
tán ár. Margir krefjast afsagnar
ráðherrans vegna málsins. Stegö
Chiló segir málið óheppilegt, en
segist ekki ætla að víkja.
Stegö Chiló tók við ráðherra-
embættinu í síðustu viku og
varð þar með æðsti yfirmaður
sænska ríkissjónvarpsins. í
ljós hefur komið að fyrst fimm
dögum áður en hún tók við
embættinu skráði eiginmaður
hennar sjónvarp fjölskyldunnar
og hóf að greiða afnotagjöld.
í gær fréttist svo að annar
ráðherra væri nýbúinn að skrá
sjónvarpstæki sitt og sá þriðji
ekki skráður fyrir sjónvarpi.
Austurland:
Nýtt vikublað
á markað
Austurlandið, nýtt frétta- og
auglýsingablað, kemur í fyrsta
skipti út á fimmtudag í næstu
viku. Blaðinu verður dreift
vikulega frítt inn á heimili
á Austurlandi og kostað með
auglýsingum.
I blaðinu verður sagt frá
almennum fréttum úr fjórð-
ungnum, fjallað um mál líðandi
stundar, menningu, íþróttir,
pólitík og fleira. Utgefandi blaðs-
ins er íslensk fréttablöð ehf. sem
rekur meðal annars fréttavefinn
austurlandid.is.
Mjanmar og Taíland:
Mestu flóðin
í ellefu ár
mbl.is Mikil flóð herja nú á
íbúa Mjanmars og Taílands, þau
verstu í ellefu ár. Mikið mann-
og eignatjón hefur orðið í lönd-
unum, í það minnsta 13 látnir í
Mjanmar og 39 á Taílandi.
Chao Phraya-áin flæðir yfir
bakka sína og inn í borgina
Bangkok þar sem 10 milljónir
manna búa. Yfirvöld hafa reynt
að hemja flóðin með því að reisa
flóðavarnir úr sandpokum og
steypu við árbakkana og reynt
að beina straumnum að hrís-
grjónaökrum fyrir utan borgina.
Flóðavarnarstöðin í Bangkok
segir ekki líklegt að frekari flóð
verði á næstu dögum en fólk
hefur víða vaðið vatn upp í hné
og farið um á bátum.
Ósáttur við lélegan þjóðveg:
Vill malbika moldarflag
„Ég get nú ekki séð í fljótu bragði
að þessi vegur ógni stöðugleika efna-
hags á íslandi,“ segir Sveinn Arnars-
son, frambjóðandi í Norðausturkjör-
dæmi, en hann býður sig fram til
3. sætis hjá Samfylkingunni. Hann
furðar sig á því að þeir tveir vegar-
kaflar á þjóðvegi eitt sem eigi eftir
að malbika skuli einmitt vera í Norð-
austurkjördæmi. Annar kaflinn
er um sjö kílómetra langur og er á
milli Egilsstaða og Mývatns en hinn
mun vera inni í Skriðdal. Nokkurrar
óánægju gætir á meðal íbúa á svæð-
inu vegna vegarins.
„Það er náttúrlega til skammar að
báðir kaflarnir skuli vera í þessu
kjördæmi," segir Sveinn steinhissa
og spyr í hvaða skrifstofuleikjum
sitjandi þingmenn kjördæmisins
hafi eiginlega verið á kjörtímabilinu.
Hann segir að samgöngur á svæðinu
séu ekki í takt við þær framkvæmdir
sem hafa verið á svæðinu hingað
til. Samgöngumálaráðherra frestaði
á dögunum mörgum úrbótum á
vegakerfi Islands og þar á meðal að
malbika þessa kafla. Sveinn segir
vegarkaflana ekki beinlínis ógna
þjóðarörygginu en þeir geta ógnað
öryggi þeirra sem um hann fara og
þá sérstaklega ef fólksbílar mæta
þungaflutningabílum.
„Það versta er að vegurinn er ekki
einu sinni malarvegur heldur er hann
beinlínis úr mold,“ segir Sveinn sem
þykir heldur skrýtið að samgöngu-
málaráðherra geti ekki séð að sér og
malbikað þennan kafla.
Ómalbikaður þjóðvegur Undarlegt
að einu ómalbikuðu þjóðvegarkafl-
arnir skuli vera í Norðausturkjör-
dæmi að mati Sveins Arnarssonar,
frambjóðanda Samfylkingarinnar
Umboösmenn um land allt: Hðldur hf„ Akureyrt, slml 461 6020 • HEKLA, Borgamesl, slmi 437 2100 • HEKLA, Isafirði, simi 456 4666 I HEKLA, Laugavegi 172-174, slml 590 5000
HEKLA, Reyöarflrðl, slml 470 5100 • HEKLA, Reykjanesbœ, slml 420 5000 • HEKLA, Selfossl, slml 482 1416 | www.hekla.is, heklaOhekla.is
www.volkswagen.xs
Volkswagen kann þá list að sameina ósamrýmanlega kosti. Volkswagen Polo er
gott dæmi, nettur og lipur en á sama tíma sterkur og traustur. Þannig nýtist hann
fullkomlega við ljölbreyttar íslenskar aðstæður, í borgarumferðinni og á vegum
úti, hvað sem á dynur. Vetrardekk fylgja öllum nýjum Polo-bílum í október.
Verd frá adeins 1.490.000 kr.
eöa 15.535 kr. á mánuöi m.v. 30% útborgun og bílasamning SP Fjármögnunar til 84 mánaða.