blaðið - 12.10.2006, Side 22
30 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006
blaöiö
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Tókstu flugið þegar
fréttirnar bárust?
Já, verulega hátt. Nú tökum við flugið og
folk@bl3Ciid.n0t bregðumá ieik.
Elliði Vignisson, bæjnrstjóri
í Vestmannaeyjum
í gaer var gengið frá samningi milli samgönguyfirvalda og Flugfélags
fslands um áætlunarflug milli Reykjavikur og Eyja. Flug til Eyja hefur legið
niðri frá 25. september, en hefst aftur á mánudaginn.
HEYRST HEFUR...
að er í nógu að snúast hjá Ein-
ari Erni Benediktssyni, Cur-
ver og félögum í hljómsveitinni
Ghostigital þessa
dagana en nú
stendur tónleika-
ferð þeirra um
Bandaríkin sem
hæst. Tilgangur
ferðarinnar er öðrum þræði að
kynna nýja plötu sveitarinnar In
Cod We Trust fyrir amerískum
tónlistarunnendum. Hljóm-
sveitin fer úr einni borg í aðra og
leikur á einum nítján tónleikum
á rúmum þremur vikum og
verða síðustu tónleikarnir í
Brooklyn i New York þann 17.
október. Strákarnir fá þó ekki
frí eftir að ferðinni lýkur því að
þeir taka þátt í Iceland Airwaves-
hátíðinni þremur dögum síðar.
Þar munu þeir sjá um sérstakt
kvöld sem tileinkað verður til-
raunakenndri raftónlist þar sem
fram koma auk þeirra Biogen,
Stilluppsteypa og bandaríski
tónlistarmaðurinn Otto von
Schirach.
Ghostigital er ekki eina ís-
lenska hljómsveitin sem er á
faraldsfæti erlendis
um þessar mundir
því að stúlknakvar-
tettinn Amiina
leggur í næstu viku
upp í tónleikaferða-
lag um Evrópu. Hljómsveitin er
líklega þekktust fyrir samstarf
sitt við piltana í Sigur Rós en
hún hefur leikið með þeim
vítt óg breitt um heiminn á
undanförnum árum og eru þær
stöllur því ekki óvanar löngum
ferðalögum á framandi slóðum.
Amiina mun leika í París, Brus-
sel, London og í Madríd. Stuttu
síðar tekur við tónleikaferð
um Bandaríkin en ekki liggur
fyrir hvar þær koma fram þar í
landi. Tilgangur ferðarinnar er
að kynna smáskífuna Seoul sem
kemur út á næstunni en einnig
er von á breiðskífu frá stúlk-
unum. Upptökum á plötunni er
nýlokið og er von á gripnum í
verslanir snemma á næsta ári.
Eins og heima Sigurði G.
Tómassyni líður alltaf eins
og heima hjá sér fyrir fram-
an hljóðnemann og kann
því Ijómandi vel við að vera
kominn aftur í útvarpið.
Útvarpið merkilegri
miðill en sjónvarp
Rödd Sigurðar G. Tómassonar er
farin að hljóma á öldum ljósvakans
á ný en þessi gamalreyndi útvarps-
maður sér nú um viðtalsþátt og
símatíma á morgnana á Utvarpi
Sögu.
„Mér líður alltaf ejns og heima
hjá mér fyrir framan hljóðnem-
ann þannig að ég kann ljómandi
vel við að vera kominn aftur í út-
varp,“ segir Sigurður sem leggur
meðal annars áherslu á umfjöllun
um stjórnmál og fréttatengt efni í
þáttum sínum.
„Vikulega kemur Guðmundur
Ólafsson hagfræðingur til mín og
það er náttúrlega alltaf gaman að
því. Hann hefur sínar skoðanir og
við spjöllum um heima og geima,
fréttir, erlenda og innlenda pólitík,
efnahagsmál og allt mögulegt. Það
er alltaf gaman að fá Guðmund
og þá er tíminn jafnvel of stuttur,"
segir Sigurður.
Tekur aldrei viðtöl óundirbúinn
Þegar Sigurður er spurður hvort
hann hafi aldrei lent í erfiðum við-
mælendum segir hann að það hljóti
að hafa komið fyrir þó að hann
muni eiginlega ekkert eftir því.
„Ég er nú búinn að vera svo lengi
í þessu og það er nú einhvern veg-
inn þannig að fólki líður sæmilega
hjá mér og þá er enginn viðmæl-
andi erfiður.”
Sigurður segist alltaf reyna að
setja sig inn í það sem hann ætlar
að fjalla um og hefur aldrei tekið
viðtal óundirbúinn. „Ég er ein-
dregið þeirrar skoðunar að það
þýði ekkert annað en að vita eitt-
hvað um það sem maður er að fara
að tala um. Maður getur ekki gert
þetta af viti án þess að setja sig inn
í það,“ segir Sigurður.
Voðalegur beturviti
Sigurði hefur ekki orðið orða
vant í útvarpi og hann á jafnvel
til að tala fyrir viðmælendur sína.
,Ég er nú voðalegur beturviti eða
,besserwisser“ og ég hef reynt að
venja mig af því á seinni tímum að
botna setningar fyrir fólk og vita
allt betur. Ég er að reyna að leyfa
fólki að segja sjálft það sem það
ætlar að segja.“
Sigurði finnst ýmislegt ágætt í
íslensku útvapi nú um stundir en
telur þó að útvarpið sé vanrækt á
kostnað sjónvarpsins og að menn
geri sér ekki grein fyrir mikilvægi
þess.
„Það er að mínu viti alltof mikið
lagt upp úr sjónvarpi og einhverri
stjörnudýrkun. Þar fer ansi mikið
eftir útlitinu. Það er alveg sama
þó að fólk viti nánast ekkert í sinn
haus en ef það lítur þokkalega út þá
eru því boðin kauphallarforstjóra-
laun fyrir að brosa og tala tóma
steypu fyrir framan áhorfendur,"
segir Sigurður.
„Ég er kannski ekki alveg hlut-
laus í þessum efnum en mér finnst
útvarpið miklu merkilegri miðill
en sjónvarp. Það er kannski vegna
þess að sjónvarp skilur ekkert eftir
handa neytandanum nema lyktar-
skynið. Að öðru leyti fyllir það öll
skilningarvit. Það er ekkert pláss
fyrir neitt annað,“ segir Sigurður
G. Tómasson að lokum.
SU DOKU talnaþraut
7 6 8 2 5 9 3 4 1
1 4 2 6 3 7 9 5 8
9 3 5 1 4 8 6 2 7
8 5 3 9 6 2 1 7 4
4 9 1 7 8 5 2 3 6
6 2 7 3 1 4 5 8 9
2 8 6 4 9 3 7 1 5
3 1 4 5 7 6 8 9 2
5 7 9 8 2 1 4 6 3
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
7 3 9 8
2 4 7 6
1 9 7
2 3
8 5 1 6 2
1 4 9 2
8 4
4 1 8 5
6 2 8 1
Ég tók upp andardrátt kattarins
A förnum vegi
Styður þú
ríkisstjórnina?
Skúli Freyr Hinriksson, nemi
Nei, það geri ég ekki.
Magnús Snorrason, sjómaður
Nei, alls ekki. Ég hef enga trú á
henni.
Laufey Þórðardóttir
og Þórður
Já, það geri ég.
Páll Guðmundsson, nemi
Já.
Jóhannes Þorkelsson, pípari
Já, það geri ég.