blaðið - 12.10.2006, Page 28
36 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006
blaðið
konan
konan@bladid.net
Með bein í nefinu
Indverska kvikmyndageröarkonan Vijaya Muiay var hér á landi
á dögunum og hélt fyrirlestur á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni.
Óhætt er að mæla með myndum hennar en hún hefur margoft
unnið til virtra verðlauna fyrir störf sín.
MéoCL 99 'Í'MSAR
FSNbWRVSRUR, WÝKQM
WYK9MWRR
SEWMWSAR
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 5870600,
www.tomstundahusid.is
SLÖKUN OG VELLÍ0AN Á
KONAN
________________y
TAKTU ÞESSA f WWW.ISLANDSMOT.IS
HEL6I FRÁ FYRIR ÞIG! j S: 534 7010 ■ INFO@ISLANDSMOT.IS
fem/y' ÍS # ÍSLANDSMÓT
Guðrún Pétursdóttir hefur
í nógu að snúast en hún
hefur undanfarin ár unn-
ið ötullega að málefnum
innflytjenda á íslandi og sinnir nú
um stundir störfum hjá InterCult-
ural Iceland (ICI). ICI var stofnað
árið 2002 af sex konum sem allar
hafa menntun og/eða reynslu á sviði
fjölmenningarlegra málefna og var
Guðrún ein af þeim. „Starf okkar
er aðallega tvíþætt, annars vegar
fræðsla og hins vegar túlkaþjónusta.
Við höldum ýmis námskeið um fjöl-
menningarlegt samfélag og fordóma
og eftirspurnin eftir slíkri fræðslu
er mikil á íslandi í dag..“ Guðrún
lærði félagsfræði í Þýskalandi þar
sem hún var búsett um tíu ára skeið.
Hún er einnig kennaramenntuð og
hefur sérhæft sig í fjölmenningar-
legri kennslu. „1 náminu sérhæfði
ég mig á sviði kynþáttafordóma og
sögu þeirra. Ég varð snemma með-
vituð um að það væru til ákveðnar
lausnir á þessum vandamálum og
vildi leggja mitt af mörkum til þess
að hægt væri að finna þær. Við þurf-
um að reyna að koma í veg fyrir að
fordómar erfist frá einni kynslóð til
annarrar og við getum unnið gegn
því með öflugri fræðslu."
Starf Guðrúnar er fjölbreytt og
hún hefur náð miklum árangri í
sinni vinnu. Sjálf segir hún að þegar
hún haldi námskeið þá líti hún á það
sem árangur ef hún fær einn þátt-
takanda til þess að hugsa sinn gang
og endurskoða neikvæð viðhorf sín
til innflytjenda eða annarra minni-
hlutahópa í samfélaginu. „Ég ætla
mér ekki að snúa viðhorfum fólks
á augabragði heldur er markmiðið
að fá fólk til að staldra við og líta á
hlutina frá ólíkum sjónarhornum.
Viljinn er allt sem þarf og það er mín
hugsjón að fá fólk til að velta fyrir
sér hvað það geti lagt af mörkum til
Blam/Frikki
að fjölbreytileiki samfélagsins gagn-
ist okkur sem best.“ Guðrún segist
leggja áherslu á að þegar við tölum
um fjölmenningu þá erum við ekki
bara að tala um útlendinga heldur
fjölbreytileikann í allri sinni mynd.
„I fjölmiðlumi eru oft dregnar upp
staðalmyndir af innflytjendum og
ég tel að við ættum að gæta okkur á
þeim. Þetta á til dæmis við um kon-
ur sem oftar en ekki eru í hlutverki
fórnarlambsins. Á hverjum degi í
mínu starfi hitti ég ákaflega margar
sterkar og hæfileikaríkar konur af
erlendum uppruna, sem eru að gera
merkilega hluti. Ég vil að við lítum
til þess hversu sterkir einstaklingar
þessar konur eru. Það er meira en að
segja það að taka sig upp frá heima-
landi sínu og flytjast á fjarlægar slóð-
ir, læra nýtt tungumál og tileinka sér
nýja menningu. Þetta geta ekki allir
og við eigum að vera stolt af því að fá
þetta fólk til liðs við okkur."
Nicoretle nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuö þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr
reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum ( fylgiseðli. Skammtar eru
einstakljngsbundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. t>ví ber að
kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun,
varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er aö lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar
aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um
lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnafmi fyrir nikótíni eða oðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall,
óstöðuga versnandí hjartaöng, alvadeg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf nema aö ráði læknis. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega óður en byrjaö er aö nota lyfiö.
Geymió fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann stðar.
Handhafi markaðsleyfis: Pfizer ApS. Umboð á íslandi: Vistor hf„ Hörgatúni 2, Garðabæ. www.nicorette.is
*Tilboðsverð 2006
Hvað er UNIFEM?
Flestir hafa heyrt minnst á
starfsemi UNIFEM á íslandi en
samtökin vinna mikið starf í þágu
kvenna og barna um allan heim.
UNIFEM, sem er þróunarsjóður
Sameinuðu þjóðanna, var stofn-
aður 1976 í kjölfar fyrstu heimsráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna lim
málefni kvenna. Upphaflega átti
sjóðurinn aðeins að starfa í tiu ár
en árangurinn af starfinu þótti svo
góður að ákveðið var að lengja
líftíma hans. Þróunarsjóðurinn er
eingöngu myndaður með frjálsum
framlögum og koma hæstu fram-
lögin frá aðildarríkjum SÞ.
Markmið UNIFEM er meðal
annars að efla efnahagslegt öryggi
kvenna, stuðla að öryggi þeirra,
efla þátttöku þeirra í stjórnmálum
og stuðla að því að mannréttindi
séu virt. UNIFEM nýtur sívaxandi
álits og er nú ein af virtustu stofn-
unum innan Sameinuðu þjóðanna
og starfar í nánu samstarfi við
Þróunarmálastofnun Sameinuðu
þjóðanna, UNDP, og Barnahjálp
Sameinuðu þjóðanna, UNICEF.
UNIFEM á íslandi var stofnað 18.
desember 1989 og hafa samtökin
upp frá því stutt og styrkt starfsemi
SÞ í baráttunni fyrir bættri stöðu
kvenna víða um heim.
Allar nánari upplýsingar er hægt
að nálgast á slóðinni www.unifem.
is og þar er einnig hægt að leggja
samtökunum lið með fjárfram-
lögum.
{ Nicorette Fruitmint
s Nýttbragð
sem kemurá óvart
INGIBJORG STEFANSDÓTTIR, YOGAKENNARI. FYRIRLESARI A KONAN.
Dúnúlpur
Rúskinnsúlpur
Leðufjakkaf
Vattkápuf
Hattaf - Húfuf
Leðufhanskaf
Ullarsjöl
Góð gjöf
r
Utsöluhorn \Q\ '
50 % afsl. Mörkinni 6, Sími 588-5518
, it Opið virka daga frá Id. 10-18
Goöar vorur °g laugardaga frá kl 10-16