blaðið - 12.10.2006, Side 35

blaðið - 12.10.2006, Side 35
blaöiö 12. OKTÓBER 2006 Britt Ekland Britt Ekland kynbomba (fædd 6. október 1942 í Stokkhólmi, Svíþjóð) varð fyrst fræg fyrir stormasamt sam- band sitt við Peter Sellers sem bað hennar eftir að hafa séð af henni Ijósmynd í dagblaði. Seinna átti hún í ástarsambandi við Rod Stewart og á níunda áratugnum giftist hún Slim Jim Phantom sem var mörgum árum yngri en hún. Britt Ekland dansaði nakin í Wicker Man frá árinu 1973 og árið 1974 í James Bond-myndinni The Man with the Golden Gun. 43 TOPP 10 Lög úr kvikmyndum sem lyftu þér úr sætinu VænWá* Auglýsingasíminn er 510 3744 13.oktéber The Devil Wears Prada Yfirmaður frá helvíti! Ung og metnaðarfull kona fer til New York og fær starf sem margar ungar konur myndu drepa fyrir, sem aðstoðarkona hjá ritstjóra eins stærsta tímaritsins í New York. Ritstjórinn reynist hrokafullur og frekur kvendjöfull sem níðist á starfs- mönnum sínum. Starfið reynist henni afar lærdómsríkt og unga konan þarf að taka á honum stóra sínum til að halda geðheilsu og ná framtíðarmarkmiðum sínum. Leikstjóri: David Frankel Handrit: Aline Brosh McKenna, Lauren Weisberger Aðalhlutverk: Meryl Streep, Anne Hathaway, Emily Blunt, Stanley Tucci, Adrian Grenier Ekkert aldurstakmark skráð 6. Survivor „Eye of the Tiger" ÚrRocky III 5. Kenny Loggins „Danger Zone“ Úr Top Gun 13.októbe The Grudge 2 Tryllingur sem fær hárin til að rísa Hárin rísa enn á ný því bölvunin heldur áfram í framhaldshrollvekjunni „The Grudge 2" sem kemur frá japanska leik- stjóranum Takashi. Margir hafa sagt þessa mynd enn betri en fyrri myndina. Leiðin liggur aftur til Tókýó en yngri systir Aubrey Davis (Amber Tamblyn), eins fórnarlambs- ins úr fyrri myndinni, Karen Davis (Sarah Michelle Gellar), ákveður að komast að því hvað gerðist í húsinu dularfulla. Leikstjóri: Takashi Shimizu Handrit: Stephen Susco og Takashi Shimizu Aðalhlutverk: Edison Chen, Amber Tamblyn, Jennifer Beals, og fleiri... Framleiðsluár: 2006 16 ára aldurstakmark 10. Michael Sembello „Maniac" Úr Flashdance 9. RobertTepper „No Easy Way Out“ ÚrRocky IV 8« Frank Stallone „Far From Over“ Úr Stayin' Alive 7. BonnieTyler „Holding OutforaHero" ÚrFootloose Þvi miður fækka fáir karlmenn fötum i kvikmyndum og þegar þeir gera það er það sjaldnast efni til umtals. Annaðhvort hvílir meiri bannhelgi yfir nekt karla en kvenna eða að lík- ami þeirra telst ekki jafn áhugaverður/söluvæn- legur og kvenmanna. Þvilikur misskilningur! Sumar leikkonur hafa öðlast virðingu fyrir að birtast naktar á hvíta tjaldinu og nekt þeirra telst hafa listrænt gildi meðan aðrar missa stig fyrir að fletta klæðum og enn aðrar fletta sig klæðum aðeins til að hita blóð karlmanna og trekkja að í miðasölu. Hér að neðan er listi yfir leik- konur sem hafa leikið i nektaratriði í kvikmynd og hvaða áhrif nekt þeirra hafði á kvikmyndaheiminn og taldir til nokkrir af þeim fáu karlmönnum sem týndu brókunum. Þessar gerðu nekt að listformi: Sophia Loren, Brigitte Bardot, Anna Karina, Katherine Hepburn, Britt Ekland, Isabella Rosselini, Glenn Close, Laura Dern, Juliette Lewis, Nicole Kidman, Kate Winslet, Helen Hunt, Meg Ryan, Juliette Binoche. £ Þessar seldu: Sliaron Stone, Demi Moore, Melanie Griffith, Jennifer Tilly, Rosanna (A Arquette, Pamela Anderson Lee, Mimi Rogers, Jennifer Connely, Natasha Hentsridge, mý Elizabeth Berkely, Madonna, Charlotte Lewis, Beverly D’Angelo, Kim Basinger. Jr Þessar reyndu...: Alyssa Milano, Drew Barrymore, Shannen Doherty, Molly Ringwald. Þessar ættu ekki að fækka klæðum aftur: Sean Young, Anna Nicole Smith, Oprah Winfrey. Þessar munu aldrei gera það, sama hvað karlþjóðin óskar þess heitt...: I ;i Michelle Pfeiffer, Winona Ryder, Sandra Bullock, Julia Roberts, Jennifer Aniston! Og... ekki má gleyma þeim: KARLMÖNNUM sem elska að viðra vininn: Harvey Keitel, Sylvester Stallone, Bruce Willis, Robert DeNiro, | Ewan MacGregor. 4. JohnCafferty „Hearts on Fire“ ÚrRocky IV 3. StanBush „The Touch" Úr Transformers: The Movie 2. Joe „Bean“ Esposito „You’re the Best“ Úr The Karate Kid 1. Paul Engemann „Push ittothe Limit" ÚrScarface Ásta Briem útskrifaðist frá London Film School árið 2000. Hún er kvikmyndageröarmaður og starfar hjá kvikmyndafyrir- tækinu Filmus. Ásta hefur starfað við framleiðslu á sjónvarps- þáttum og kvikmyndum síðustu 7 árin. 1. Hvernig tónlist hlustar þú yfirleitt á? Hmm... ýmislegt og allskyns, vinnufélagarnir eru duglegir að kynna mér nýja og hressandi tónlist. Platan Puppy með Togga er á fóninum akkúrat núna og mér finnst hún frábær. 2. Uppáhaldskvikmynd? Af þeim islensku þá er Strákarnir okkar meistaraverk. Ég hef heyrt að hún sé vær.tanleg á DVD fljótlega. Svo sá ég Börn um daginn og hún er frábær. 3. Uppáhaldssjónvarpsefni? Úff. Breskir þættir eru í uppáhaldi - Ricky Gervais er fyndn- astur og strákarnir í Little Britain fylgja fast á hæla hans. Af íslensku efni þá hlakka ég til að sjá Tekinn á Sirkus. 4. Hvaða verkefni sem þú hefur komið að þykir þér vænst um? Ég tek helst ekki að mér verkefni nema að ég sjái eitthvað í þeim sem mér getur þótt vænt um. Annars þykir mér vænt um fólk en ekki verkefni. 5. Hefurðu unnið við eitthvað sem þú skammast þin fyrir og þú vilt helst gleyma? Hah. Já. Held því fyrir mig. 6. Hvað lestu? Upp á síðkastið - Arto Paasilinna, Paulo Coelho, Tony Par- sons og Nick Hornby. 7. Hverju myndirðu breyta i kvikmyndabransanum og af hverju? Ég myndi vilja sjá fleiri konur, meiri peninga og fleiri góðar islenskar kvikmyndir. 8. Hver eða hvað hafði mest áhrif á þig og vinnu þina? Mamma - hressilega gagnrýnin kona. 9. Að hverju ertu að vinna núna? Heimildarmynd og auglýsingum hjá Filmus, sem er einmitt sjö ára um þessar mundir. Nekt í kvikmyndum List eða losti

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.