blaðið - 02.11.2006, Qupperneq 6
/GRAFARVOGS!
Gylfaflöt 3-112 Reykjavik - Sími 567 4468
dekk@gummisteypa.is • www.gummisteypa.is
i
I
*
»
i
:
Landsins mesta úrval af
Leðurhönskum!
Yfir 30 litir fáanieqir í öilum
stærðum.
Verð frá aðeins kr. 2250.-
Allt Smart
Laugavegi 46
Sími : 551-1040
Í
.
*■
TTTTffTttTTTTTTTTTTTTTTttTTTTTTTfTTTtTTTTTTfrTTTTTTTfTt T’TYVfýrYVt'ÝtV
Fyrstadagsumslög fást stimpluð
á pósthúsum um land allt. Einnig er
hægt að panta þau hjá Frímerkjasölunni.
Sími: 580 1050 Fax= 580 1059
Netfang: stamps@postur.is
Heimasíða: www.stamps.is
<Ní(iX
PÓSTURIN N
FRlMERKJASALAN
Ný frímerki
* SaþtaZlcc íítíum tódtawtÁccm
í dag. 2. nóvember. gefur íslandspóstur út þrjár
frímerkjaraðir, alls sex frímerki. Myndefnin á tveimur
fyrstu röðunum eru skordýr og sveppir. Myndefni
jótafrímerkjanna 2006 tengjast Ijósum og litadýrð.
Sjátflímandi frímerki eru í jólafrímerkjaheftinu.
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2006
Gleymdu að víkja
Loka þurfti brúnni yfir Skeiðará laust eftir hádegi í gær eftir að fólksbíll og sendibíll
rákust saman á henni miðri. Brúin er einbreið með útskotum en fyrir misskilning
vék hvorugur bíllinn með fyrrgreindum afleiðingum. Tveir voru í fólksbílnum og þrír
í sendibifreiðinni en enginn þeirra slasaðist alvarlega að sögn lögreglunnar í Vík í
Mýrdal. Báðir bílarnir skemmdust hins vegar mikið og voru í óökufæru ástandi.
Umdeilt fólk Baráttan fyr-
ir þingkosningarnar hefur
meöal annars snúist um
utanríkisstefnu George
Bush og ástandið í írak.
Þingkosningar í Bandaríkjunum:
Slagurinn um
öldungadeildina
■ Fimm ríki kunna að ráða úrslitum ■ Repúblikanar gætu unnið varnarsigur
Eftir Örn Arnarsson
orn@bladid.net
Flestar kannanir benda til að
demókratar endurheimti meirihluta
sinn í fulltrúadeildinni í þingkosn-
ingunum í Bandaríkjunum í næstu
viku. Hinsvegar er baráttan um öld-
ungadeildina hnífjöfn. Demókratar
þurfa að bæta við sig sex þingsætum
til að ná meirihluta í deildinni og
benda kannanir til að þeir komist ná-
lægt því markmiði sínu. Ljóst er að
ríkisstjórn George Bush forseta yrði
nánast lömuð í veigamiklum mála-
flokkum það sem eftir lifir af kjör-
tímabili forsetans nái demókratar
meirihluta í báðum deildum.
Hundrað sæti eru í öldunga-
deildinni. Kosið er um einn þriðja
þingsæta á tveggja ára fresti og
hafa repúblikanar haft meirihluta
í deildinni síðan árið 2003. Demó-
kratar hafa ráðið yfir 17 af þeim 33
þingsætum sem nú er kosið um, repú-
blikanar yfir 12. Keppt er um sæti
óháðs þingmanns og útlit fyrir að
demókratar hreppi það.
Ljóst er að hart er sótt að repúblik-
önum í aðdraganda kosninganna
til öldungadeildarinnar. Margar
kannanir benda til að þeir geti ekki
verið öruggir um að vinna nema sex
til átta af þeim tólf þingsætum sem
frambjóðendur þeirra hafa haft á
síðustu sex árum. Nánast allar kann-
anir benda til þess að demókratar
geti verið býsna öruggir um að vinna
góðan sigur í kosningunum og er
eina spurningin hvort þeim takist að„
ná þeim sex sætum af repúblikönum
sem til þarf til að tryggja meirihluta.
Slagurinn stendur fyrst og fremst
um þingsætin í fimm ríkjum, New
Jersey, Montana, Missouri, Tenn-
essee og Virginíu, og úrslitin þar
munu að öllum líkindum skera úr
um hvort flokkurinn nær meirihluta
í öldungadeildinni.
I New Jersey bendir allt til þess
að demókratar nái að verja sæti sitt
en hart hefur verið sótt að frambjóð-
anda flokksins, Bob Menendez. í
Montana sýna kannanir að hinn
reyndi en umfram allt umdeildi öld-
TENNESSEE
46%
George Allen
(sitjandi þingmaöurj
Repúblikanaflokkurinn
Áhugamenn um bandarísk stjórnmál fylgjast
grannt með gangi mála í Virginíu enda virðist
sem breytingar á samsetningu ibúa ríkisins
geri það að verkum að það sé að færast frá
því að vera griðastaður fyrir frambjóðendur
repúblikana yfir í að vera ríki þar sem báðir
flokkar geta höfðað til meirihluta kjósenda. I
48%
Jim Webb
Demókrataflokkurinn
fyrstu var búist við að Allen myndi sigra Webb
auðveldlega en kannanir benda til þess að
baráttan sé jöfn. Hinsvegar hefur Allen nýtt
sér vafasöm ummæli Webb um erindi kvenna
í herþjónustu i auglýsingaherferð sinni með
góðum árangri og saxað á það forskot sem
demókratar njóta yfirleitt meðal kvenna.
TENNESSEE
47%
Bob Corker
Repúblikanaflokkurinn
Sitjandi öldungadeildarþingmaður Repúblik-
anaflokksins, Bill Frost, ákvað að sækjast
ekki eftir áframhaldandi setu á þingi en
hann er sagður horfa til forsetakosninganna
árið 2008. Þrátt fyrir að repúblikanataugin
sé römm á meðal íbúa fylkisins hefur full-
trúadeildarþingmaðurinn Ford komið mörg-
45%
Harold Ford
Demókrataflokkurinn
um á óvart og velgt Corker undir uggum.
Hinsvegar virðist Corker á uppleið í nýjustu
könnunum í kjölfar ákaflega neikvæðrar aug-
lýsingaherferðar um meinta lesti Fords. Aug-
lýsingaherferðin þykir af mörgum bera vott
um kynþáttahyggju, en Ford er blökkumaöur,
og kann hún á endanum að hafa öfug áhrif.
MISSOURI
49%
Jim Talent
(sitjandi þingmaður)
, Repúblikanaflokkurinn
49%
Claire McCaskill
Demókrataflokkurinn
Allt bendir til þess að kosningarnar á milli
repúblikanans og sitjandi öldungadeildarþing-
manns ríkisins, Jim Talent og Claire McCa-
skill, verði ákaflega spennandi. Nánast allar
skoðanakannanir sýna að ekki er marktækur
munur á fylgi þeirra. McCaskill er rikisendur-
skoðandi fylkisins en Jim Talent hefur setið í
öldungadeildinni frá því árið 2002. Þá sigraði
hann eiginkonu þingmanns sem lést stuttu
áður en hann var kosinn í embætti. Lykillinn
að sigri demókrata er talinn felast í þvi að
McCaskill nái að höföa til kjósenda i hinum
dreifðari byggðum ríkisins en skoðanakann-
anir benda til þess að íhaldssemi þeirra geri
það að verkum að þeir styðji Talen mæti þeir
yfirhöfuð á kjörstað.
ungadeildarþingmaður repúblikana,
Conrad Burns, tapi fyrir Jon Tester,
frambjóðanda demókrata. Rætist
þær spár veltur meirihlutinn á því
hvort demókrötum takist að vinna
þingsæti af repúblikönum í eftirfar-
andi þremur ríkjum: Missouri, Tenn-
esseeogVirginíu.