blaðið - 02.11.2006, Page 29
blaðiö
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2006 37
í leit að sálarró
Sellers eignaðist dóttur með Britt
Ekland en hjónabandinu lauk með
skilnaði eftir fjögur stormasöm ár,
en Sellers hafði nokkrum sinnum
lagt hendur á konu sína. Tveimur
árum síðar kvæntist hann sendi-
herradóttur, Miröndu Quarry. Hún
var 22 ára og hann 44 ára. í leit
að sálarró flutti hann með eigin-
konu sinni til írlands. Hann virtist
fljótur að gleyma því að hann væri
kvæntur því hann lýsti því yfir að
hann ætlaði að verða munkur og
sagði að hamingjusamasta tímabil
sitt hefði verið þegar hann eyddi
nokkrum mánuðum i klaustri. Eng-
inn kannaðist við klausturvistina
sem virðist hafa verið ímyndun
hans. Hann fékk þunglyndisköst
og lokaði sig inni á heimili sínu og
eyddi tímanum í að búa til lista yfir
það fólk sem honum var í nöp við.
Eiginkona hans þoldi ekki álagið
og flutti til London. Stuttu seinna
seldi hann hús sitt á írlandi og flutti
til Englands en ekki í sama hús og
eiginkona hans.
Hann hitti leikkonuna Lizu Min-
elli í matarboði og tveimur vikum
seinna tilkynnti hann um trúlofun
þeirra. Hann var enn kvæntur Mi-
röndu. „Ég er ástfangin af snillingi,“
sagði Liza Minelli sem flutti inn í
íbúð Sellers. Sambandið entist í
mánuð.
Glötuð lífsgleði
Sellers skildi við eiginkonu
númer þrjú og kvæntist í fjórða
sinn rúmlega tvítugri leikkonu,
Lynne Fredericks. Ekki löngu
síðar var honum boðið hlutverk
garðyrkjumannsins Chance í
myndinni Being There. Ekki
leið á löngu þar til hann var
orðinn að Chance. Eiginkonu
hans var ekki rótt því eiginmað-
urinn talaði varla við nokkurn
mann og brosti nær aldrei. Það
var eins og hann væri staddur
á annarri plánetu.
Einn daginn tilkynnti hann
blaðamönnum að hjónabandi
hans væri lokið. Eiginkona
hans heyrði af þeirri yfirlýs-
ingu frá sameiginlegum vini
þeirra.
Með Being There vann Sell-
ers einn sinn mesta leiksigur á
ferlinum. En hann hafði misst
alla lífslöngun. Hann hafði
aldrei kunnað að takast á við
lífið og þóttist vita að hann myndi
aldrei læra það. Vinir hans sögðust
sjá á honum að hann vildi deyja.
í júlímánuði 1980 fékk Sellers
hjartaáfall á hótelherbergi sínu.
Hann lést einum og hálfum sólar-
hring seinna á sjúkrahúsi. Eini per-
sónulegi hluturinn í veski hans var
mynd af fyrstu eiginkonu hans. Dag-
inn sem Sellers fékk hjartaáfallið ör-
lagaríka ætlaði hann að undirrita
skilnaðarplögg og hreinsa nafn
fjórðu eiginkonu sinnar úr erfða-
skrá sinni. Þar sem honum entist
ekki líf til þess erfði eiginkonan auð-
æfi hans. Börn hans fengu einungis
nokkur þúsund dollara í sinn hlut.
kolbrun@bladid.net
F'BÓKAVEISLA
FJÖLVA
NÚ Á AP TÆMA LAGERINN!
Smiðjuvegi 4, Kópavogi, græn gata
Missið ekki af einstöku tækifæri til að
gera reyfarakaup á frábærum bókum.
Bækur fyrir alla fjölskylduna:
Barnabækur - Teiknimyndasögur - Landakort - Tímarit
Listaverkabækur - Heiisubækur - Ljóðabækur
Skáldsögur - Ævisögur - Ferðabækur
og margt fleira
• .
9 kr.
190 kr.
Allir sem kaupa fá bók í kaupbæti!
Allir sem kaupa 3 eða fleiri
9°9ok Tinnabækur fá Tinnabol
490 kr. í kaupbæti!
590 kr.
90 kr.
90 kr.
90 kr.
90 kr.
'm' a"a
6
etti
Una
www.fjolvi.is
Sími: 565 6500
Opnunartími:
Virka daga kl. 12-18
Laugardaga kl. 10-17
Sunnudaga kl. 12-17