blaðið - 22.11.2006, Qupperneq 19
blaðið
MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2006 31
Fóður efnahagsspennunnar minnkar
Tvær stuttar fréttir úr efnahagslíf-
inu sem birst hafa síðustu dægrin
segja mikla sögu um stöðu mála. í
hinni fyrri var frá því greint að íbúða-
verð á höfuðborgarsvæðinu væri nú
tekið að lækka. Þetta eru mikil tíð-
indi. Undanfarið hefur húsnæði nefni-
lega hækkað í verði um marga tugi
prósenta á ári. Væntingarnar sem
þessar hækkanir sköpuðu hleyptu
fólki kapp í kinn og urðu eins konar
driffjöður að gríðarlegri einkaneyslu.
Þegar eignamyndunin jókst í formi
hækkana á húsnæði skapaðist svig-
rúm til lántöku. Þess vegna hækkuðu
lán einstaklinga, drifin áfram af gríð-
arlegu fjármagni sem bankar sóttu
til útlanda og Ibúðalánasjóður sótti í
krafti ríkisábyrgða sinna.
Skýrar vísbend-
ingar eru um
minnkandi
þenslu og Ijóst
að nú stefnir til
jafnvægis
Umrœðan
Einar K. Guðfinnsson
Það var eins og menn tryðu því að
svona gengi þetta endalaust. En nú
er sagan öll - f bili að minnsta kosti.
Eignirnar eru teknar að rýrna, eftir
bóluna sem verðhækkun sfðustu
mánaða hefur verið.
Á sama tíma berast fréttir af stór-
hækkun byggingarkostnaðar. Þeirri
hækkun verður nú ekki lengur velt
út í verðlagið. Framlegðin sem menn
áður nutu við byggingariðnaðinn
dregst saman. Markaðurinn sendir
sín skýru boð og áhuginn á að fram-
leiða húsnæði minnkar. Þannig drag-
ast seglin saman.
Við erum þó fjarri allri kreppu
eða samdrætti. En þetta eru skýrar
vísbendingar um minnkandi þenslu
og augljóst að á þessu mikilvæga
sviði stefnir nú til jafnvægis. Það er
afskaplega mikilvægt. Við þurfum
á því að halda að þetta mikla fóður
spennunnar í efnahagslífinu sem
byggingaþenslan var, dragist nú
heldur saman. Spennan er því greini-
lega í rénun eins og Greiningardeild
Landsbankans bendir á í dag. „Það
virðist því vera að draga úr þeirri
umframeftirspurn sem einkennt
hefur fasteignamarkaðinn undan-
farin misseri", segir í skrifum deild
arinnar í dag. Það eru orð að sönnu
og raunverulegt fagnaðarefni.
Höfundur er sjávarútvegsráðherra.
Tökum
útlendingamálin
alvarlega
Margt bendir til þess að m.a.
verði kosið um útlendingamálin í
vor. Það finnur maður víða að frjáls-
lyndir hafa náð að róta vel upp í hlut-
unum og afstöðu margra kjósenda
til flokka og framboða með sínum
málflutningi. Þ.e. vinnumarkaðs-
þættinum. Ekki hinu ruglinu sem
frá sumum kemur.
Frjálslyndir eiga eftir að lenda
málinu og finna taktinn í því en tak-
ist það eru þau á nokkru flugi fyrir
vorið. Þau taka frá öllum flokkum,
mest sjálfsagt frá Sjálfstæðisflokki
og Vinstri grænum en eitthvað frá
öllum.
Auðvitað er
hverskyns
kynþáttahyggja
viðurstyggð
Umrœðan
Björgvin G. Sigurðsson
Ekki er heppilegt fyrir hina flokk-
ana að fordæma alla umræðuna
sem rasistaraus. Hún er það hjá
sjálfsagt hjá sumum sem í umræð-
una blanda sér en ekki inntakið í
því sem t.d. Margrét Sverrisdóttir
er að segja. Þau eru að túlka tilfinn-
ingar margra Islendinga. Hvort sem
okkur líkar betur eða verr.
Ríkisstjórnin hefur staðið illa
að málefnum innflytjenda. Illa að
íslenskukennslu og aðlögðun hvers-
konar. Þó margt ágætt hafi verið
gert. Andvaraleysið hefur getið af
sér tortryggni og andúð margra á
útlendingum á fslandi. Jafn afleitt
og það er en ríkisstjórnarflokkarnir
bera þarna ríka ábyrgð.
Auðvitað er hverskyns kynþátta-
hyggja viðurstyggð og á aldrei rétt á
sér. Við þurfum hinsvegar að taka
ástandið og viðvaranir alvarlega.
Það má ekki fara í frekara óefni. Við
viljum engan Karl Hagen og þá pól-
itísku ömurð sem fylgir Framfara-
flokkum allra landa.
Því þarf að vanda umræðuna og
gæta þess að átök og togstreita á
milli nýrra og gamalla Islendinga
aukist ekki. Sköpum ekki jarðveg
fyrir fasískan popúlisma af neinu
tagi.
Höfundur er þingmaður Samfylkingar-
innar í Suðurkjördæmi.
! SMÁAUGLÝSINGAR
GEFA/MGGIA
blaðió
SHAAUGLYSI(töAR@BtADIDJIET
Samba
svefnsófi TILBOÐ 59.600
rafmagnsrúm verð frá 84.510
dúnsœngur & koddar
eldhússtólar
eldhúsborð
barstólar
sjónvarpsherbergið
borðstofa
náttborð verð 9.800
svefnsófar
sófasett & hornsófar
stólar / casper 39.000
www. toscana. is
SMIÐJUVEGI 2, KOP S:587 6090
HÚSGÖGNIN FAST EINNIG I HÚSGAGNAVAL, HÖFN S: 478 2535
jk i
flB I
p
j -