blaðið - 22.11.2006, Qupperneq 20
32 MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2006
blaöiö
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Fór mikil orka i að stöðva
virkjunarframkvæmdirnar?
„Nei, þetta var orkusparandi aðgerð."
folk@bladid.net
Guðlaugur Þór Þórðarson
Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur
Vegna tilmæla frá Skipulagsstofnun hefur Orkuveita Reykjavíkur
stöðvað virkjunarframkvæmdir á Hengilssvæðinu þar til tilskilin
leyfi verða fyrir hendi.
HEYRST HEFUR...
Gullkindin verður afhent við
hátíðlega athöfn á Classik
Rock í Ármúla á morgun
klukkan 20. Það er útvarpsþátt-
urinn Capone á
Xfm sem stendur
að verðlaununum.
Róbert Marshall
er tilnefndur til
Gullkindarinnar í
flokknum Klúður ársins vegna
bréfaskrifa sinna sem ollu upp-
sögn hans hjá NFS. Annars er
samkeppnin hörð í flokknum,
NFS, SylvfaNótt, ríkislögreglu-
stjóri og landsliðið í fótbolta er
líka tilnefnt til þessa vafasama
heiðurs. Róbert segir frá tilnefn-
ingunni á heimasíðu sinni og
segir einnig frá því þegar hann
mætti i viðtal í Capone en kom
að tómri hljóðstofu þar sem um-
sjónarmennirnir höfðu sofið yfir
sig og Róbert sneri aftur heim.
TV /t ikil umræða fór í gang
IVxá vefsíðu Vals eftir að
vangaveltur um nýjan fjárfesti
félagsins Engilbert Runólfs-
son birtust á Netinu. Einn
þekktasti spekúlant netheima,
Steingrímur Sævarr Ólafsson,
fjallaði um tengingar Engilberts
við undirheima í pistli á siðu
sinni um helgina.
Steingrímur
segir einnig frá
sögusögnum um
að Helgi Sigurðs-
son fótboltakappi
sem nýlega var keyptur til
Vals af Fram hafi þannig verið
keyptur fyrir illa fengið fé og
að ólöglega hafi verið staðið
að kaupunum. Engilbert hefur
hugsað sér að kæra ummælin og
þrátt fyrir alvarlegar ásakanir
standa Valsmenn þétt saman
og félagaástin er eldheit eins og
þessi ummæli sem „algjör-vals-
ari” skrifar undir og er að finna
á heimasíðu Vals gefa til kynna:
„Mér er alveg sama hvað SO sagði
því ég styð alltaf Val. Ég veit að
þú ert góður Valsari og ég ætla
ekkert að láta þennan SÓ vera
með kjaft um þig. Allir Valsarar
styðja Valsara!”
Ágúst Kvaran lætur ekki maraþon-
hlaupin nægja Ágúst segirað sér
finnist eitthvað vanta ef hann getur
ekki hlaupið nokkrum sinnum í viku.
,Hlaup ergóð líkamsrækt og hreinsar
hugann, gott fyrir bæði iikama og sál."
segirÁgúst.
Mynd/Frikki
Hleypur 100 kílómetra
Ágúst Kvaran, prófessor í efna-
fræði við Háskóla íslands, er með-
limur í Félagi 100 km hlaupara á
Islandi og eins og nafnið gefur til
kynna eiga félagarnir allir það sam-
eiginlegt að hafa tekið þátt í 100
km ofurmaraþoni. „Það eru meira
að segja tveir í félaginu sem hafa
hlaupið 100 mílna hlaup en það eru
um 160 km. Félagið hefur verið starf-
rækt í tvö ár, við vorum fimm sem
stóðum að stofnun þess og í dag
erum við 13 í félaginu. Við vorum
að taka inn tvo nýja félaga í síðustu
viku og á þessu ári hafa bæst við sex
hlauparar þannig að ofurmaraþon-
hlaup er greinilega vaxandi íþrótt
hér á landi,” segir Ágúst.
Hefur hiaupið úti um allan heim
Ágúst byrjaði að hlaupa í kringum
1990 og fór fyrst að hlaupa styttri
vegalengdir en árið 1994 hljóp
hann sitt fyrsta maraþon og 1997
hljóp hann sitt fyrsta ofurmaraþon.
,Þetta byrjaði hægt og sígandi. Það
er ákveðin áskorun að takast á við
100 km hlaup og úthaldið sem þarf
til að takast á við svona löng hlaup
kemur með aldrinum,” segir Ágúst.
Ágúst hefur tekið þátt í stórum
ofurmaraþonum víðs vegar um
heiminn. Hans fyrsta hlaup var
í Suður-Afríku þar sem elsta og
fjölmennasta ofurmaraþonið fer
fram árlega. Hann hefur tekið þátt
í hlaupum í Hollandi, Ítalíu og
Bretlandi og heimsmeistaramóti í
Frakklandi. „Hlaupið í Bretlandi
var mjög skemmtilegt. Það byrjaði
í miðborg London og þegar Big Ben
sló sjö fóru hlaupararnir af stað,
síðan var hlaupið sem leið lá beint
í suður gegnum borgina og inn á
sveitaveg og hlaupið endaði við sjó-
inn í strandbænum Brighton.”
Ágúst hefur líka hlaupið venjuleg
maraþon í London, Berlín og Tor-
onto og segir hann að ferðalögin
séu skemmtileg viðbót við hlaupin
og honum finnst skemmtilegt að
hlaupa á nýjum stöðum.
Hraðinn skiptir ekki öllu máli
Ágúst er að eigin sögn frekar ró-
legur í hlaupunum núna og hann
segir að haustin séu yfirleitt ró-
legur tími og hann er ekki búinn
að ákveða í hvaða hlaupum hann
ætlar að taka þátt næst. „Ég hleyp
áreiðanlega eitt maraþon á nýju ári
en hef ekki ákveðið hvað það verður,
en það eru ekki nein ofurmaraþon
á dagskránni.”
Ágúst hleypur þrisvar í viku
með hlaupaklúbbi sem kennir sig
við Vesturbæjarlaugina og hann
hleypur þrisvar i viku með hópnum,
yfirleitt 10-18 km. Þegar hann var
að æfa fyrir ofurmaraþonin hljóp
hann hins vegar sex daga vikunnar.
„Ég byrjaði yfirleitt að æfa hálfu ári
fyrir keppni og jók kílómetrafjöld-
ann jafnt og þétt eftir því sem nær
leið. Þegar mest var hljóp ég 120 km
á viku. Mánuði fyrir keppni náðu æf-
ingarnar hámarki og síðasta mánuð-
inn dregur maður úr hlaupunum og
notar síðustu vikuna til að hvílast
áður en sjálft maraþonið er hlaupið,”
segir Ágúst og bætir við að þeir sem
eru að æfa fyrir ofurmaraþon noti
venjuleg maraþon sem æfingu fyrir
hlaupin.
SU DOKU talnaþraut
7 3 1 8 9 2 5 4 6
6 8 4 1 3 5 7 9 2
9 2 5 4 6 7 8 1 3
5 i 3 7 8 6 9 2 4
8 4 6 5 2 9 1 3 7
2 7 9 3 1 4 6 8 5
1 5 7 9 4 3 2 6 8
3 6 8 2 7 1 4 5 9
4 9 2 6 5 8 3 7 1
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hvertala komi ekki nema einu sinni
fyrir (hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
5 6 8 2 4
3 9 2 5 4 6
4 7
1 3 5 6 7
2 6 1
4 3 2
5 8
6 3 4
9 1
Jæja Vilhjálmur, hafðir þú það ekki gott í fríinu?
A förnum vegi
Rafnar Guðbjörnsson, flugvirki
Skilyrðislaust. Peir eru kosnir í
flokkinn til að gegna embættinu
og ber að hætta ef þeir yfirgefa
hann.
Svana Ingibergsdóttir, nemi
Nei, ekkert endilega.
Jón Grétar Gunnarsson
Já, ég er á því að þeir eigi að
hætta þingmennsku.
Sigurður Möller, nemi
Já, þeir eiga að hætta þing-
mennsku ef þeir segja sig úr
flokki.
Gísli Hrafn Karlsson, nemi
Nei, þeir eiga ekki að þurfa að
gera það.
Eiga þingmenn sem
segja sig úr flokki að
hætta þingmennsku?