blaðið - 09.01.2007, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007
blaöið
INNLENT
HVALFJARDARGÖNG
.600 kærðir fyrir hraðakstur
Um 1.600 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í
Hvalfjarðargöngum frá 1. október 2005 til 30. september
2006. Flestir voru gómaðir á 80 til 90 kílómetra hraða en
hámarkshraðinn í göngunum er 70 kílómetrar á klukku-
stund. Flest brotin voru framin í janúar og apríl 2006.
NEYTENDASTOFA
Hagar skipti um nafn
Hagar hf. mega ekki lengur heita Hagar. Hagar ehf.
kvartaði 27. maí 2004. Nöfn félaganna séu þau
sömu, nema Hagar hf. sé í fleirtölu og séu þolfall og
eignarfall nafnanna eins. Neytendastofa telur Haga
hf. hafa brotið lög um óréttmæta viðskiptahætti.
Þjófavarnarkerfi virkaði
Piltur og stúlka reyndu að brjótast inn í Verkmenntaskól-
ann á Akureyri en höfðu sig á brott þegar þjófavarnar-
kerfi fór í gang. Lögreglan hóf þegar að leita þeirra og ,
fann þau á ferð um bæinn. Þau játuðu brotið, samkvæmt PM'-1
vefnum Akureyri.net, en náðu engu vegna kerfisins.
Björgunarsveitin Dagrenning
að störfum Komin með and-
virði nýs björgunarsveitarbíls.
Björgunarsveitin Dagrenning:
Vinna fyrir bíl
Síðustu tvær helgar hafa með-
limir Björgunarsveitarinnar Da-
grenningar á Hólmavík staðið í
ströngu við að losa rækju i kör í
rækjuverksmiðju Hólmadrangs
en ástæðan fyrir því er sú að þeir
hafa verið að safna fyrir nýjum
björgunarsveitarbíl.
„Þetta er ákveðið verkefni sem
við höfum ekki sinnt áður, en
málið er að verksmiðjan keypti
rúm íoo tonn af óunninni rækju
í tveggja kílóa pökkum og því var
brugðið á þann leik að fá okkur til
að hjálpa til. Fyrir þetta fáum við
um 500 þúsund krónur og erum
núna komin með bílinn,“ segir
Ingimundur Pálsson, gjaldkeri
björgunarsveitarinnar, og bætir
því við að hún selji einnig flugelda
á hverju ári. Og verkefni sveitar-
innar eru af margvíslegum toga.
,Við fáum alls konar útköll. Til
dæmis sækjum við oft fasta bíla á
Steingrímsfjarðarheiði auk þess
sem við erum reglulega send til
að leita að rjúpnaskyttum svo eitt-
hvað sé nefnt," segir Ingimundur.
Hjálpaðu bágstöddum börnum og njóttu afsláttar í leiðinni
Kaffitár hefur bæst í hóp öflugra samstarfsaðila ABC-kortsins og
styrktaraðiia ABC-barnahjálpar. Með kortinu færðu 10% afslátt
á öllum kaffihúsum Kaffitárs og 1 % af upphæðinni rennur beint
til ABC-bamahjálpar.
obc
Þú saekir um ABC-kortið
hjá Netbankanum á www.nb.is
CAPACENT KYNNIR
HAGNÝTA ÞJÁLFUN OG NÁMSKEIÐ
Olgerðin Egill Skallagrímsson sökuð um karlrembu:
Styrkti kossa-
keppni stúlkna
■ Greiða fyrir kynlífsathafnir ■ Sæmir ekki fyrirtækinu, segir forstjórinn
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Með þessum leik er Ölgerðin að
greiða konum fyrir að taka þátt
í kynlífsathöfnum. Keppnin er
aðeins opin fyrir konur og ekki
hugsuð sem hluti af réttindabar-
áttu samkynhneigðra heldur. Fyr-
irtækið er þarna búið að hella sér
á fullu í klámvæðinguna með því
að greiða konum fyrir þátttökuna,"
segir Katrín Anna Guðmundsdóttir,
talskona Femínistafélags íslands.
Á vef um íslenskt skemmtanalíf
var auglýstur kossaleikur þar sem
stúlkum var boðið að senda inn
myndir af stúlkum að kyssast. f
verðlaun eru áfengir drykkir í
boði Ölgerðarinnar Egils Skalla-
grímssonar og aðalvinningurinn
ferð fyrir tvo til London. Aðspurð
segist Katrín Anna hafa brugðist
við með beinum hætti með því að
sniðganga vörur Ölgerðarinnar,
til dæmis var ekkert jólaöl á boð-
stólum yfir hátíðirnar.
Andri Þór Guðmundsson, for-
stjóri Ölgerðarinnar, segir fyrir-
tækið hafa tekið ákvörðun um að
draga sig út úr umræddum leik eftir
að kvartanir bárust. „Ég er búinn
að biðja um að þessu verði strax
hætt og fyrirtækið alfarið dregið
út. Okkur finnst skotið yfir markið
Fyrirtækiö hefur
hellt sér á fullu i
klámvæðinguna
Katrín Anna
Guðmundsdóttir,
talskona
Femínistafélagsins
og viljum ekki taka þátt í svona,“
segir Andri. „Stundum er farið að-
eins of geyst og það er gott að geta
viðurkennt mistök. Við fögnum því
að vera í góðu sambandi við okkar
viðskiptavini en svona samræmist
ekki gamalgrónu fyrirtæki eins og
Ölgerðinni."
Fyrirtækið hefur einnig verið
gagnrýnt fyrir auglýsingar um Eg-
ils Lite bjór þar sem léttklæddar
stúlkur eru í fararbroddi. Andri Þór
vísar gagnrýninni alfarið á bug og
er ánægður með hversu mikla at-
hygli auglýsingarnar hafa fengið.
„I þessari auglýsingu koma fram
þrír rassar af konum og þrír af
köllum. Megináherslan er sú að
allt annað sé að sjá fólkið eftir að
drekka Egils Lite, sem er með færri
kaloríum. Ég er ekki sammála þess-
ari gagnrýni," segir Andri. Síðasta
skotið er af konurassi og þar er hún
í nærbuxum. Við gætum fyllsta jafn-
ræðis og mér finnst þetta allt saman
bara sætir bossar, hvort sem þeir
eru í fullum herklæðum eða ekki.“
Stundum er
farið aðeins
ofgeyst
Andri Þór
Guðmundsson,
Forstjóri Ölgeröarinnar
Katrín Anna bendir á að kynja-
hlutfall innan Ölgerðarinnar gefi í
raun upp hvernig hugsunarháttur
ríkir innan fyrirtækisins. Hún
segir markaðssetningu fyrirtæk-
isins miðast við gagnkynhneigða
karla. „Þetta er mjög karlmiðað
fyrirtæki. Ég tengi það beint við
það viðhorf sem birtist gagnvart
konum og þetta segir sína sögu,“
segir Katrín Anna.
„Stefna fyrirtækisins segir að öll
framkoma þess eigi að vera til sóma
og að viðskiptavinum þess sé sýnd
virðing. Þessar auglýsingar stangast
algjörlega á við stefnu fyrirtækisins,"
bætir Katrín Anna við.
KYNJASKIPTING
ÖLGERÐARINNAR:
Karlar Konur
Forstjóri 1 0
Stjórn 3 0
Sviðsstjórar 6 1
Starfsmenn 102 22
Capacent Ráðgjöf býður uppá fjölbreytt námskeið fyrír fyrirtæki
ásamtlengra námi ogtímasettum námskeiðumfyrirstjórnendur,
sérfræðinga, sölumenn og starfsfólk fyrirtækja og stofnana.
Meðal námskéiðsflokka má nefna:
• Liðsheildarnámskeið
• Persónuleg færni
• Stjórnendaþjálfun
• Viðskipta- og sölustjórnun
. Nánari upplýsingar
Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir í síma 540 1000,
namskeid@capacent.is og á www.capacent.is/namskeid
www.capacent.is
capacefít
RÁÐGJÖF
Framkvæmdastjóri Sjómannafélags Islands:
ASÍ er tímaskekkja
„Mér finnst ASÍ vera farið að
stjórna þjóðfélaginu en hætt að
hugsa um hvað er í buddunni hjá
fólkinu. Það virðist skipta þá mestu
að sitja fundi með ríkisstjórninni
og hjálpa henni hvernig stjórna
eigi landinu,“ segir Birgir Hólm
Björgvinsson, framkvæmdastjóri
Sjómannafélags Islands. Sjómanna-
félagið er á leið úr Sjómannasam-
bandi íslands til að geta sagt sig úr
Alþýðusambandi Islands, ASl.
Það er mat Birgis að Alþýðusam-
bandið sé tímaskekkja, eins og hann
orðar það. „Það er mín skoðun o:
lögin geti alveg stjórnað sjálfum
sér. ASI er að vera svo mikil stofnun.
Megnið af þessu fólki kemur úr há-
skólanum og fjarlægðin við fólkið
sem það á að vinna fyrir er mikil,“
segir hann.
„Ef þetta er svona öflugt batterí
skil ég ekki hvers vegna lágmarks-
launin eru bara 120 þúsund krónur
á mánuði. Ég er svo sem ekkert að
undanskilja mig í því sambandi
en við erum þó alltaf að reyna að
sprikla eitthvað. En það er vont
fyrir litla karla að ætla að reyna það
því þá er
bætir F