blaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 blaðið UTAN ÚR HEIMI SÓMALÍA ★] Islamistaleiðtogi gefur sig fram Sharif Sheik Ahmed, einn af leiðtogum íslamista í Sómalíu, gaf sig fram við stjórnvöld í Keníu í gær. Ah- med ertalinn einn sá hófsamasti úr röðum leiðtoga íslamista. Hann hefur verið á flótta í mánuð en er nú í gæsluvarðhaldi á hóteli í Nairobi, höfuðborg Keníu. Thaksin má snúa aftur Thaksin Shinawatra, fyrrum forsætisráðherra Taílands, má snúa aftur heim til landsins svo fremi sem hann skipti sér ekki af stjórnmálum. Þetta segir Surayud Chulanot, sem var skipaður forsætisráðherra í kjölfar valdaráns hers- ins í september. Hann segist vilja snúa aftur og verjast. FRAKKLAND Baráttumaður heimilislausra allur Presturinn Abbé Pierre, sem hefur barist fyrir málefnum heimilis- lausra og fátækra um áratuga skeið, lést í gær úr sýkingu í lungum. Pierre var 94 ára gamall pegar hann lést. Jacques Chirac Frakk- landsforseti sagðist í gær harma mjög fráfall Pierre og sagði meðal annars að Frakkar hefðu misst holdgerving góðmennskunnar. Mannskæð sprengjuárás á markaði í Bagdad: Líkamshlutar alls staðar VOOIR Eltak sérhæflr sig í söiu og þjónustu á vogum Bjóðum mesta úrval á íslandi af smáum og stórum vogum Hafóu samband ELTAK^ Síöumúia 13, sími 588 2122 www.eltak.ls Hundrað létust og á annað hundrað særðust Mannskæðasta árásin frá áramotum Eftir Atla ísleifsson atlii@bladid.net Tæplega níutíu manns létust og vel á annað hundað særðust þegar tvær sprengjur sprungu nær sam- tímis á markaði í miðri Bagdad, höfuðborg Iraks, í gær. Háttsettur embættismaður í íraska innanrík- isráðuneytinu sagði að aðkoman hefði verið hryllileg. „Það voru líkamshlutar alls staðar og fjöl- mörg lík voru brennd og mjög illa farin. Þetta var skelfilegt.“ Fyrri sprengjan var falin í tösku milli tveggja sölubása, en andartökum síðar sprakk bílsprengja skammt frá fyrri sprengjunni. í kjölfar sprenginganna heyrð- ist í byssuskotum og sveif mikið reykský yfir markaðinum. Spreng- ingarnar áttu sér stað skömmu eftir hádegi að staðartíma á Haraj- markaðnum nálægt Frelsistorginu í Bagdad. Markaðurinn er sagður vinsæll meðal fátækra íbúa höf- uðborgarinnar, en þar eru seld notuð föt og mynddiskar. Mark- aðurinn hefur margoft áður verið vettvangur slíkra glæpaverka, en þar er einnig að finna fjölmenna samgöngumiðstöð. Sendiferðabílar voru notaðir til að aðstoða sjúkrabíla við að koma særðum á sjúkrahús á meðan slökkvilið slökkti elda sem blossað höfðu upp. Kindi-sjúkrahúsið í nágrenni markaðarins yfirfylltist á skömmum tíma og var fórnar- lömbum komið fyrir í röð fyrir utan sjúkrahúsið. 1 hverfinu búa aðallega sjitamúslímar og er árásin sú nýjasta í víxlárásum uppreisn- armanna sjíta- og súnnímúslíma í landinu. Aðeins nokkrum klukku- stundum eftir árásina í Bagdad féllu tólf manns og þrjátíu særðust í annarri sprengjuárás í Khali, þrjátíu kílómetrum norður af höfuðborginni. Þá réðust tuttugu byssumenn inn á borgarstjórnarskrifstofu Baquba- borgar og rændu borgarstjóranum áður en þeir sprengdu skrifstofurnar. 25 bandarískir hermenn létust á laugardaginn sem er þriðji mann- skæðasti dagurinn fyrir Bandaríkja- her frá upphafi innrásar í mars árið 2003. Samtals létust þrjátiu banda- rískir hermenn um helgina, þar á meðal tólf þegar herþyrla var skotin niður af uppreisnarmönnum. Nouri al-Maliki, forsætisráð- herra íraks, kynnti nýja áætlun til að tryggja öryggi í Bagdad fyrr í mánuðinum þar sem hann lofaði að brjóta á bak aftur ólöglegar víga- sveitir, óháð því hverjar skoðanir og trú þeirra kunni að vera. Fyrri áætl- anir um að tryggja öryggi í Bagdad hafa allar mistekist. Fréttaskýr- endur telja að ástæða þessa kunni að vera sú að hersveitir Bandaríkja- hers og öryggissveitir Iraka hafi ekki orðið eftir í þeim hverfum sem búið var að fínkemba í leit að uppreisnarmönnum. Arás gærdagsins er sú mannskæð- asta frá áramótum, en sjötíu manns létust í árás fyrir utan háskólann í Bagdad fyrir viku. Árásirnar áttu sér stað á sama tíma og liðsauki berst Bandaríkjaher í Irak sem ætlað er að aðstoða við að ná tökum á stigvaxandi öldu ofbeldis í Bagdad og víðar. Hersveitir skipaðar 3.200 bandarískum hermönnum hafa þegar komið til höfuðborgarinnar til að aðstoða íraskar öryggissveitir. Menntamálaráðherra: Einkaaðilar fái að gefa út námsgögn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp sem mun greiða fyrir aðkomu einkaaðila að útgáfu námsgagna. Markmiðið með frum- varpinu er tvíþætt, annars vegar að fjölga tækifærum kennara og skóla til að auka fjölbreytni í námsgagnaút- gáfu og hins vegar að auka aðkomu annarra aðila að útgáfu. Aðspurð segist Þorgerður ekki ótt- ast að hagsmunaárekstrar verði með aðkomu einkaaðila og er sannfærð um að frumvarpið tryggi fjölbreytni og aukin gæði námsefnis. „Það er skólanna á endanum að meta hvaða námsefni þeir koma til með að kenna • Ég fagna því að einkaaðilar komi tiimeðaðgefa ? útnámsgögn '%þ. Þorgerður Katrín \ Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra en ég fagna því að einkaaðilar komi til með að gefa út námsgögn. Meg- inatriðið er að námsgögnin stand- ist þær kröfur um gæði sem gerðar eru til námsefnis. Eftir því sem samkeppnin eykst á þessum markaði munu gæðin og fjölbreytnin aukast sem er einmitt það sem kennarar hafa verið að óska eftir.“

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.