blaðið - 23.01.2007, Side 10
Utsa
10 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007
blaðiö
Hillary Clinton líklegust
Öldungadeildarþingmaöurinn Hillary Clinton nýtur mestsfylgis þeirra
demókrata sem hafa boðið sig fram til að verða forsetaframbjóðandi
flokksins. Samkvæmt nýrri könnun Washington Post er Clinton með
41 prósents fylgi meðal flokksmanna. Barack Obama er annar í könn-
uninni með sautján prósenta fylgi.
OENEHAL TÍRE ©.
Nú er rétti tíminn til að skrá sig
á uppbyggilegt námskeið
Olíumálun 32 st.
Harpa Björnsdóttir
Fi. kl. 19-22
(8 vikur frá 25. jan.)
Verð: 33.400 kr.
Leirlist 21 st.
Olga S. Olgeirsdóttir
Margrét R. Kjartansdóttir
Má. kl. 19:30-21:30
(8 vikurfrá 29. jan.)
Verð: 31.100 kr.
Prjqnanámskeið 16 st.
Ásta Kristín Siggadóttir
Þri.kl. 19-22
(4 vikurfrá 30. jan.)
Verð kr. 17.100
Myndlist
fyrirbörn 6-12 ára 18 st.
Svanhildur Vilbergsdóttir
Má.kl. 16:15-18
(8 vikurfrá 29. jan.)
Verð: 18.300 kr.
Tómstundagítar 10 st.
Ólafur Gaukur
Mi. kl. 19-20
(8 vikurfrá 24. jan.)
Verð: 24.300 kr.
Skrautritun 20 st.
Þorvaldur Jónasson
Fi. kl. 17:15-18:45
(10 vikurfrá 25. jan.)
Verð: 24.500 kr.
Fatahönnun,
snið og saumur 32 st.
Ásdís Osk Jóelsdóttir
Mi. kl. 19-22
(8 vikurfrá 31. jan.)
Verð: 33.700 kr.
Leiklist
fyrir börn 6-10 ára 12 st.
Margrét Pétursdóttir
Ólöf Sverrisdóttir
Mi. kl. 16:30-18
(6 vikurfrá 31. jan.)
Verð: 15.200 kr.
|ðl MÍMIR
simenntun
Skeifunni 8 Innritun í síma 580 1808 www.mimir.is
Kvörtun til umboðsmanns Sé
stutt á milli barna fá foreldrar 80
prósent af 80 prósentum frá Fæð
ingarorlofssjóöi.
Umboðsmaður Alþingis um fæðingarorlof:
Lögin brotin
■ 80 prósent af 80 prósentum ■ Ráöherra endurskoði reglugerð
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Ekki er stoð fyrir því í lögum að
nota greiðslur úr Fæðingarorlofs-
sjóði til viðmiðunar þegar meðaltal
launa síðustu tveggja ára er reiknað
út. Þetta er álit umboðsmanns Al-
þingis sem beinir þeim tilmælum
til félagsmálaráðherra að hann end-
urskoði reglugerðina. Núna fá for-
eldrar 80 prósent af 80 prósentum
frá sjóðnum sé stutt á milli barna.
„Ráðherra ber að breyta reglugerð-
inni í samræmi við niðurstöðuna og
hann hlýtur að gera það. Mér hefur
alltaf fundist þetta mjög óeðlilegt
og þetta hefur ekki verið í anda
tilgangs laganna. Þetta er mikið
réttlætismál.“ Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, fagnar áliti umboðs-
manns Alþingis um greiðslur úr
Fæðingarorlofssjóði en flokkurinn
hefur lagt fram frumvarp um ýmsar
breytingar á greiðslum úr sjóðnum.
Umboðsmanni barst kvörtun frá
konu sem eignaðist barn í upphafi
árs 2003. Hún fékk greiðslur úr Fæð-
ingarorlofssjóði í sex mánuði og
miðuðust þær við meðaltal launa
síðustu tveggja ára fyrir fæðingu
barnsins. í júlí 2005 eignaðist konan
annað barn. Tryggingastofnun taldi
greiðslur úr sjóðnum á árinu 2003
til launa þegar greiðslur vegna se-
inna barnsins voru reiknaðar út.
Þess vegna fékk hún 80 prósent af
þeim 80 prósentum sem hún hafði
fengið af meðaltali heildarlauna síð-
ustu tveggja ára fyrir fæðingu fyrra
barnsins.
Konan kvartaði til úrskurðar-
nefndar fæðingar- og foreldraorlofs-
mála sem staðfesti ákvörðun Trygg-
ingastofnunar. Umboðsmaður
komst hins vegar að þeirri niður-
stöðu að ákvæði reglugerðarinnar
um að taka skyldi tillit til orlofs við
útreikning á meðaltali heildarlauna
væri ekki í samræmi við lög um fæð-
ingar- og foreldraorlof.
Umboðsmaður benti jafnframt á
að verkefni úrskurðarnefndarinnar
Alltaf fundist
þetta óeðlilegt
Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar.
væri að úrskurða um réttindi ein-
staklinga samkvæmt lögunum og
þar gengju ákvæði laganna framar
reglugerðum. Nefndin hafði svarað
fyrirspurn umboðsmanns á þann
veg að hún hefði almennt talið sig
bundna af ákvæðum reglugerða
og ekki tekið beina afstöðu til þess
hvort lagaheimild væri nægjanleg
en talið það hlutverk dómstóla.
Mannræninginn Michael Devlin:
Hamingjusamur með Shawn
Michael Devlin, maðurinn sem
hélt tveimur drengjum föngnum á
heimili sínu nálægt St. Louis í Misso-
uri-ríki í Bandaríkjunum, segir að
hann reikni með að hann hafi verið
tiltölulega hamingjusamur árin
fjögur sem hann hélt hinum fimrn-
tán ára gamla Shawn Hornbeck
föngnum.
„Ég finn hins vegar ekki fyrir
neinu þessa stundina. Nú fel ég til-
finningar mínar fyrir öðru fólki,“
segir Devlin í viðtali við New York
Post.
f viðtalinu lýsir Devlin sjálfum
sér sem einfara sem hafi ekki áhuga
á kynlífi og aldrei haft löngun til að
stofna til rómantísks sambands við
aðra manneskju. Hann segir að árið
2002 hafi tilvera sín hrunið þegar
hann greindist með sykursýki og
Michael Devlin Segirað tilvera sín
hafi hruniö árið 2002 þegar hann
greindist meö sykursýki.
læknar hafi neyðst til að skera af
honum tvær tær. f kjölfarið hafi
hann átt í vandræðum með að halda
jafnvægi og neyðst til að hætta skot-
veiðum og fiskveiðum með félögum
sínum sem voru helstu áhugamál
Devlin. Shawn hvarf um svipað
leyti.
Devlin lýsir því að þar áður hafi
hann átt fjölda vina; flestir þeirra
voru samstarfsfélagar á pitsuveit-
ingastaðnum þar sem hann gegndi
stöðu framkvæmdastjóra. Devlin og
félagar hans spiluðu oft tölvuleiki
og póker, en hann missti tengslin
við þá þegar þeir gengu í hjónaband
og eignuðust börn.
Devlin er nú haldið í einangrun
af ótta yfirvalda við að aðrir fangar
ráðist á hann. Sjálfur segist Devlin
ekki hafa áhyggjur af slíku. „Ég
mun neyðast til að kljást við það
fyrr eða síðar.“