blaðið


blaðið - 23.01.2007, Qupperneq 12

blaðið - 23.01.2007, Qupperneq 12
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANUAR 2007 blaöi6 UTAN UR HEIMI PALESTÍNfl: Engin þjóðstjórn mynduð Mahmoud Abbas Palestínuforseta og Khaled Meshaal, leiðtoga Hamas-samtakanna, tókst ekki að mynda nýja þjóöstjórn Palestínumanna á fundi sínum í Sýr- landi á sunnudagskvöldið. Þeir sögðu þó að viðræður yrðu teknar upp að nýju að tveimur vikum liðnum. íslamistar drepnir Stjórnarher Sómalíu og Eþíópíuher drápu að minnsta kosti tvo íslamista þegar reynt var að hand- taka nokkra uppreisnarmenn íslamista í höfuðborg- inni Mogadishu í gær. (slamistar réðust á bilalest Eþíópíumanna um helgina þar sem fjórir létust. Ashkenazy nýr yfirmaður ísraelshers Gaby Ashkenazy, ráðuneytisstjóri ísraelska varnarmála- ráðuneytisins og fyrrum hershöfðingi, hefur verið ráðinn nýr yfirmaður Israelshers. Ashkenazy er 52 ára gamall og tekur við embættinu af Dan Halutz sem sagði af sér í síðustu viku. Bretland: Dæla olíunni úr skipinu Byrjað var að dæla 3.500 tonn- um af olíu úr flutningaskipinu Napoli í gær en skipið strandaði undan Devon í suðausturhluta Bretlands á fimmtudaginn. Nú þegar hafa um tvö hundruð tonn af oliu lekið úr skipinu, en talið er að dæhng olíunnar úr skipinu geti tekið allt upp í viku. Um tvö hundruð gámar hafa þegar farið í sjóinn og hafa tugir manna gengið meðfram strönd Devon í þeirri von að bjarga varningi sem rekið hefur á land. í tveimur gámanna sem fóru í sjóinn var meðal annars að finna efni sem eru hættuleg umhverfinu, svo sem rafgeymasýru og ilmvötn. Erlendir starfsmenn Fyrirtækið Geymir leigði út erlenda starfsmenn án þess að þeir hefðu tilskilin leyfi. Forsvarsmenn Geymis ehf.: Ætla að vanda sig „Þeir er nú komnir með sinn lög- mann til að vinna í málinu og við erum í viðræðum við hann. Ég er að vonast til að þetta mjakist í rétta átt og mér sýnist þeir ætla að fara eftir réttum lögum,“ segir Unnur Sverr- isdóttir, forstöðumaður stjórn- sýslusviðs hjá Vinnumálastofnun. Fyrirtækið Geymir ehf. var kært til Vinnumálastofnunar fyrir að leigja út erlenda starfsmenn án þess að hafa til þess tilskilin leyfi. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir feng- ust engar skýringar frá forsvars- mönnum fyrirtækisins. Málið var tekið föstum tökum og var komið á það stig að starfsemin yrði stöðvuð. Unnur segir komið betra hljóð í forsvarsmenn Geymis ehf. og að þrýst sé á þá að skrá starfsemina með löglegum hætti. „Málið er í vinnslu hjá okkur og við erum í viðræðum við fyrirtækið. Útlit er fyrir að þeir ætli að vanda sig og þá yrðum við alsæl,“ segir Unnur. Treystum tengslin norður yfir heiðar Höfum opnað nýja og glæsilega verslun að Baldursnesi 6, Akureyri Frábær opnunartilboð í verslunum okkar á Akureyri og í Kópavogi Tilboðsdagar ifö moroi vegghandlaugar blöndunartæki tilboð: 25% afsláttur intra eldhúsvaskar tilboð: tilboð: 25% afsláttur 25% afsláttur Sundanctí Spas Heitir pottar Athyglisverð tilboð! ■ GEBERIT innbyggð salerni tilboð: 34.900 kr. Hannaðu heimilið með Tengi Opið: Virka daga Laugardaga 08-18 10-15 T€flGI Smiöjuvegur 76 Kópavogur Sfmi 414 1000 Fax 414 1001 tengi.is Baldursnes6 Akureyri Simi 414 1050 Fax 414 1051 Tölvuglæpir algengari Óprúttnir náungar stálu um það bil 80 milljónum króna af sænska bankanum Nordea en slíkir glæpir færast sifellt íaukana. Óprúttnir netglæpamenn: Stálu 80 milljónum ■ Heilbrigð skynsemi besta vörnin ■ Angi af skipulagðri glæpastarfsemi Sænski bankinn Nordea hefur greint frá því að hann hafi orðið fyrir barðinu á óprúttnum net- glæpamönnum sem hafi tekist að stela um það bil átta milljónum sænskra króna, sem samsvarar 8o milljónum íslenskra króna. Þetta er eitt stærsta netbankarán sem um getur en á síðustu 15 mánuðum hafa um 250 viðskiptavinir bankans lent í klónum á glæpamönnunum. Friðik Skúlason tölvusérfræð- ingur segir að svona atvik séu mjög algeng og tengist sífellt oftar skipulagðri glæpastarfsemi. „Það er fyrst og fremst verið að stíla upp á trúgirni og tæknilega vankunnáttu fólks. Þessir aðilar sigta fýrst og fremst út stóru bankana og sérstak- lega eru bankar í Brasilíu vinsælir. Við höfum verið tiltölulega örugg hér á Islandi af tveimur ástæðum. I fyrsta lagi vegna þess að menn eru ekki að herja á íslensku bankana vegna smæðar þeirra og í öðru lagi er mjög erfitt að millifæra peninga út úr landi i íslenskum netbönkum.“ { tilfelli Nordea fengu viðskipta- vinir bankans tölvupóst í nafni bankans þar sem þeir voru hvattir til að opna meðfylgjandi viðhengi til að sækja vörn gegn ruslpósti. Spilað inn á trúgimi og vankunnáttu fóiks Friðrik Skúlason, tölvusérfræðingur. Friðrik segir að slík aðferð sé mjög algeng. „Fólk smellir þá á tengil sem fylgir tölvupóstinum og fer þá inn á síðu sem er eins og heimasíða bank- ans en er í raun eitthvað allt annað. Það slær þá inn lykilorðið sitt en fær aðgangsvillu þar sem fólki er bent á að reyna aftur eftir fimm mínútur. En á meðan er bankareikningurinn hreinsaður.“ Friðrik segir að í flestum til- fellum sé heilbrigð skynsemi besta vörnin. „Best er að opna ekki grun- samleg viðhengi í tölvupósti og ef maður fær eitthvað i tölvupósti sem hljómar of vel til að geta verið satt er það sennilega haugalygi. Heilbrigð skynsemi er því oft besta vörnin. Svo er hægt að láta sía hjá sér tölv- upóstinn auk þess sem vírusvarnar- forrit gera oft gagn en oft eru vírus- arnir það nýir að forritin eiga ekki til svör við þeim.“ Torquay á Bretlandi: Fawlty í brons Bæjarstjórnin í Torquay á suður- strönd Englands hefur ákveðið að láta búa til sty ttu af hóteleigandanum Basil Fawlty, sem John Cleese lék eft- irminnilega í bresku sjón- varpsþáttunum um Hótel Tindastól. Þættirnir sem framleiddir voru á áttunda áratug síðustu aldar gerð- ust í sjávarbænum, en Cleese segist hafa skapað Fawlty í huganum eftir að hafa komist í kynni við afskaplega dóna- legan hótelstjóra í Torquay. Bæjarfulltrúinn Andy Westwood segir að það sé kom- inn tími til að bæjaryfirvöld í Tor- quay heiðri þennan sérstaka son bæj- arins. „Þættirnir hafa notið fádæma vinsælda í gegnum tíðina. Þeir eru sýndir einhvers staðar í heiminum á hverjum klukkutíma." Að sögn breskra fjölmiðla hefur Cleese þegar lagt yfir áform

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.