blaðið - 25.01.2007, Blaðsíða 17
blaðið
FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2007 17
Borgarstjórahagfræðin breiðir úr
Það er nú að rætast sem Samfylk-
ingin, verkalýðshreyfingin og Neyt-
endasamtökin vöruðu við. Fjölmargir
aðilar hækka nú vörur og þjónustu
um allt samfélagið í skjóli hækkana-
hrinu borgarstjórnarmeirihlutans í
Reykjavík og verðbólguraka borgar-
stjóra sem fylgdi þeim úr hlaði. Strætó
hefur boðað fráleitar hækkanir á
gjaldskrá eða io% að meðaltali. Þetta
er merkilegt, ekki síst í ljósi þess að
nágrannasveitarfélögin héldu aftur
af sér í gjaldskrárhækkunum um ára-
mót. Borgarstjórahagfræðin breiðir
greinilega úr sér. Hneykslisfréttir af
verðhækkunum birgja á matvörusviði
renna eftir sömu braut. Reiknikúnst-
Á augabragði
hefur okkur
verið kippt tvo
áratugi aftur í
tímann
Umrœðan
Dagur B. Eggertsson
irnar sem notaðar eru til réttlætingar
standast engan veginn. En viti menn,
þær eru nánast samhljóða skýring-
unum sem boðið var upp á til að fylgja
gjaldskrárhækkunum hjá Reykjavík-
urborg. Og halda jafnlitlu vatni. Þetta
eru réttlætingar sem raunar hafa
ekki heyrst frá því fyrir daga þjóðar-
sáttarinnar 1991. Á augabragði hefur
okkur verið kippt tvo áratugi aftur í
tímann þegar opinberir aðilar drógu
verðbólguvagninn. Eins og þá sitja
þeir sem hafa úr minnstu að spila eftir
með sárt ennið. Það á greinilega að
leggja allt í sölurnar til að endurvekja
gamla tíma í Reykjavík. Uppfærður
topp-tíu listi yfir gjaldskrárhækkanir
í Reykjavík fylgir hér með:
Topp-tíu listi yfir gjaldskrár-
hækkanir í Reykjavík:
1. Gjaldskrá strætó hækkar um
10% að meðaltali.
Hækkanir á eldri borgara
2. Gjaldskrá fyrir frístundastarf
eldri borgara hækkar um 9,7%.
3. Gjaldskrá fyrirhádegis- ogkvöld-
mat hækkar um 9,2-9,6%.
4. Kaffi, te, mjólk og drykkjarvörur
hækka um 10%.
Hækkanir á barnafjölskyldur
5. Sundferðir fullorðinna hækka
um 25% fyrir hvert skipti, 10
miða kort um 10% en árskort um
8,8%.
6. Gjaldskrá fyrir leikskóla hækkar
um 8,8%.
sér
7. Gjaldskrá fyrir frístundaheim-
ili hækkar um 8,8% og hefur þá
hækkað um 14,9% á árinu.
8. Gjaldskrá grunnnáms skóla
hljómsveita hækkar um 20%.
Hækkanir á sorphirðu og í
stöðumæla í miðbænum
9. Gjaldskrá fyrir sorphirðu á að
hækka um 22,8%.
ío.Gjaldskrá í stöðumæla fyrir
þriðju og fjórðu stund hækkar
um 50-100%.
Höfundur er borgarfulltrúi
Samfylkingarinnar
Kompás-
þátturinn
Enn ein tálbeitan var notuð í þætt-
inum Kompás á sunnudaginn með
það að markmiði að blekkja verstu
glæpamenn þessa samfélags, barna-
níðinga. Kompás er gott dæmi um
fjölmiðil sem getur dregið fram í
dagsljósið hvernig vanrækslu á laga-
umhverfinu og eftirliti fangelsisyfir-
valda er háttað í þessu landi.
Ríkisvaldið ætti
að sjá sóma
sinn í því að
veita fórnar-
lömbum ókeypis
sálfræðiráðgjöf
Umrœðan
Bryndis ísfold Hlöðversdóttir
Að mínu mati er það löngu orðið
ljóst að barnaníðingar eiga skilið
bæði lengri og betri afplánun. Þegar
ég segi betri þá meina ég að þeir
verða að sækja meðferð og dómarnir
eiga að hljóða upp á meðferð og eftir-
lit eftir að afplánun lýkur. Það á ekki
að bjóða börnum upp á þessa hættu
sem í því felst að alast upp í samfé-
lagi sem tekur barnaníðinga eins
léttvægt og við sjáum svo greinilega
í þættinum þar sem margdæmdur
maður endurtekur glæpinn á meðan
hann er búsettur á Vernd.
Vænlegast væri að lagaramminn
yrði þyngdur og fyrning afbrotanna
lengd. Þá þarf að setja upp eftirlit
með dæmdum afbrotamönnum eftir
að þeir afplána dóm. Svo þarf að nást
sátt um barnahús sem stað til yfir-
heyrslu á börnum. Ekki síst þarf að
uppfræða almenning og því miður
börn um hætturnar og vinna þannig
að fækkun þessara hrikalegu mála.
Svo finnst mér að ríkisvaldið ætti
sjá sóma sinn í því að veita fórnar-
lömbum ókeypis sálfræðiráðgjöf
eins lengi og þörf krefur og jafnvel
þótt fórnarlamb hafi ekki fengið
glæpamanninn dæmdan.
Bendi þó á að einkamál.is er greini-
lega ekki með mikið eftirlit á sínum
vef því ef maður fer á forsíðuna og
smellir á konur þá er auglýsing frá
stúlku sem er fædd 1993 (ég hef látið
forsvarsmenn einkamál.is vita). Ég
vona að 365 samsteypan bæti um
betur eftir þáttinn og geri eftirlit á
síðunni skilvirkara, enda er það í
gegnum vefinn einkamal.is sem þeir
hafa fundið glæpamennina. Með því
að koma í veg fyrir að slík sambönd
geti myndast á þessum vef væri klár-
lega hægt að koma í veg fýrir einhver
afbrot þótt það leysi ekki mál.
AFL OG HAGKVÆMNI
SAMEINAST
TÆKNIUNDRIÐ TDI® DÍSILVÉLIN EYÐIR AÐEINS 4,9 LÍTRUM
SkodaOctavia
Skoda Octavia með 1,9 lítra TDIR dísilvél sannar að afl
og hagkvæmni getur farió saman. Vélin skilar 105
hestöflum en eyðslan er einungis 4,9 lítrar í blönduðum
akstri á hverja 100 km.
Svo er Octavia TDIR einnig fáanleg fjórhjóladrifin og
meira en tilbúin í átök vetrarins. Hvort sem hindrunin er
háir snjóskaflar eða hátt eldsneytisverð þá ertu í
toppmálum á Skoda Octavia TDIR.
í ágúst 2006 tókst Stefáni Ásgrímssyni, ritstjóra FÍB blaðsins, að ná eyðslu
bílsins í 3,63 lítra þegar hann ók rúmlega hringveginn, alls 1.515 km, i
áheitaakstri HEKLU fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna.
\ \ f
Umboðsmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 • HEKLA, Borgarnesi, slmi 437 2100 • HEKLA, Isafirði, sími 456 4666 HEKLA, Laugavegi 172-174, sími 590 5000
HEKLA, Reyðarfiröi, simi 470 5100 • HEKLA, Reykjanesbæ, sími 420 5000 ■ HEKLA, Selfossi, sími 482 1416 www.hekla.is, hekla@hekla.is
LANGAR ÞIG Á HM
í HANDBOLTA?
Komdu þá og reynsluaktu Skoda og þú
gætir unnið miða fyrir tvo á úrslitaleikinn á
HM f handbolta í Þýskalandi 4. febrúar, flug
með lcelandair og gistingu á glæsihóteli.
HEKLA er stuðningsaðili HSÍ
- ÁFRAM (SLAND!
Höfundur er samfylkingarkona