blaðið - 25.01.2007, Qupperneq 20
Oscar Wilde
KoWft
kolbrun@bladid.net
Þú skalt alltaf fyrirgefa
óvinum þínum; ekkert
fer meira í taugarnar mí\
Afmælisborn dagsins
WILLIAM SOMERSET MAUGHAM
RITHÖFUNDUR, 1874
VIRGINIA WOOLF RITHÖFUNDUR, 1882
ROBERT BURNS SKÁLD, 1759
blaði6
32 FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2007
Þórdís sýnir í
Kaupmannahöfn
Sýning a verkum Þórdísar Aðal-
steinsdóttur hefur verið opnuð
á Norður-Atlantshafsbryggjunni
í Kaupmannahöfn. Sýningih
er sett á laggirnar í samstarfi
við Listasafn Reykjavíkur og er
fyrsta einkasýning Þórdísar í
Danmörku. Sýningin nefnist Því
heyrist þó hvíslað, að einhverjir
muni komast af og stendur til
15. apríl.
Þórdís stundaði nám við Lista-
háskóla íslands og í Barcelona
og New York, þar sem hún býr
og vinnur í föstum tengslum við
galleríið STUX.
Metsölulistinn - íslenskar bækur
1.
2.
3.
4.
Almanak Háskóla fslands 2007
Háskóli fslands
Konungsbók
Arnaldur Indriöason
Góðan dag barnið mitt
August Strindberg ofl.
Flugdrekahlauparinn - kilja
Khaled Hosseini
Asíuréttir
PPforlag
Breytingaskeiðið
Ruth Appleby
Eragon - Öldungurinn
Christopher Paolini
8 H.C. Andersen pakki
H.C. Andersen
j Sérgrefurgröf
Yrsa Sigurðardóttir
10.
Tertur
PP foriag
Listinn er gerður út frá sölu dagana 17.01 - 23.011 Bókabúö
Máls og menningar og Pennanum Eymundsson.
Metsölulistinn - erlendar bækur
^ Two Little Girls in Blue
Mary Higgins Clark
^ TheTemplarLegacy
Steve Berry
The Husband
Dean R. Koontz
4 The Alchemist - Gift Edition
Paulo Coelho
Valley of Silence (Cirde Tritogy 3)
Nora Roberts
Sea Change
Robert B. Parker
? AThousandSuns
Alex Scarrow
8 TheCell
Stephen King
9 WhattoWeartoaSeduction
SariRobins-
Listinn er gerður útfrá sölu dagana 17.01.07 - 24.01.07
í Pennanum Eymundsson og Bókabúö Máls og menningar
TÆKIFÆRI
blaöiö
SMAAUGLYSINGAR
María Ellingsen „Auðvitað er
þetta sérstakur kokteill en verkið
er oröið ansi meitlað í meðförum
okkar og hópsins. Það ergríp-
andi og vekur til umhugsunar."
BlaÖið/Frikki
Heilmikið ferðalag
að var gaman að fá
símtal frá Tinnu Gunn-
laugsdóttur þjóðleik-
hússtjóra þar sem hún
bauð mér að leikstýra
Sælueyjunni," segir María Ellings-
en leikstjóri. Leikritið, sem er eftir
Jacob Hirdwall, hefst á því að ung-
ur maður finnst nær dauða en lífi
uppi á hálendi. Hann krefst þess
að ná tali af umdeildum forstjóra
erfðagreiningarfyrirtækisins Gen-
ome Genetics. Maðurinn trúir for-
stjóranum fyrir mikilvægu leynd-
armáli.
Mikilvægar spurningar
„Ég tók að mér leikstjórnina með
þeim formerkjum að höfundurinn
yrði með í því að þróa leikritið
áfram,“ segir María. „Ég fann að
höfundinum lá mikið á hjarta og
viðfangsefni verksins er mikilvægt
fyrir alþjóðasamfélagið: Hvar ligg-
ur víglínan í vísindum og siðferði
í dag? Er vísindamaðurinn að
leika Guð? Hvernig guðir erum við
fólkið? Hversu langt ætlum við að
ganga til að útrýma erfðasjúkdóm-
um?
Þegar ég hitti höfundinn fannst
mér hann mjög klár og djúpt þenkj-
andi. Ég og Gréta María Bergsdótt-
ir fórum í að þróa þetta leikrit
áfram með höfundinum, skutum
að honum hugmyndum og hann
hélt áfram að skrifa. Síðan gerðist
það að í stað þess að setja verkið
upp á Stóra sviðinu með tuttugu
leikurum þá var ákveðið að stytta
verkið um helming og hafa hlut-
verkin átta. Þá- var höfundurinn
kominn í önnur verkefni. Auðvit-
að veltum við Gréta því fyrir okk-
ur hvort við treystum okkur til
að stytta og endurvinna verkið
án hans því við Gréta erum ekki
leikskáld þótt við séum glöggar á
dramatískan strúktúr. En okkur
fannst synd að hætta eftir svona
mikla vinnu og því var ákveðið að
sigla verkinu í höfn.“
Frábær leikarahópur
Gagnrýnendur hafa tekið verkinu
fremur fálega. „Þeir eru ekki hrifn-
ir af verkinu sjálfu en mér fannst
sýningin sjálf fá góða dóma,“ segir
María. „Ég er stolt af sýningunni og
fann á áhorfendum að hún hreif þá.
Ég er með frábæran leikarahóp sem
setti sitt mark á leikgerðina á æfinga-
tímanum. Verkið var að þróast fram
á síðustu stundu. En ef ég hefði mátt
breyta einhverju þá hefði ég viljað
hafa höfundinn með alla leið. Það er
ekki alveg að marka þegar hann dett-
ur úr úr ferlinu miðja vegu.
Þetta verk er svolítið sérkennilegt.
Það er að hluta til heimildarverk um
gagnagrunninn og á þann hátt sam-
tímarevía. Það er líka eins konar vis-
indaskáldsaga með þeim ólíkindum
sem því fylgja og svo spyr það djúpra
heimspekilegra spurninga. Auðvitað
er þetta sérstakur kokteill en verkið
er orðið ansi meitlað í meðförum okk-
ar og hópsins. Það er grípandi og vek-
ur til umhugsunar.“
Ánægjuleg reynsla
Maria ber mikið lof á leikara-
hópinn: „Hjálmar Hjálmarsson
sýnir á sér nýja hlið í dramatísku
hlutverki og túlkun hans er flott
og djörf og Sólveig Arnarsdóttir
leikur konu sem er með erfða-
sjúkdóm sem ágerist og gerir það
fantavel.
Það var munaður fyrir mig sem
leikstjóra að hafa leikara af þessu
kaliberi sem eru bæði fljúgandi
greindir, geta auðveldlega túlkað
tilfinningar og hafa sterka nær-
veru.
Svo verð ég að nefna Atla Rafn
Sigurðarson sem leikur 150 ára
gamlan mann í líkama þrítugs
manns og gerir það óskaplega vel.
Aðrir leikarar standa sig sömuleið-
is vel, búa til skemmtilegar persón-
ur og draga þær skörpum línum.
Hvað mig sjálfa varðar þá er ég
ánægð með þessa reynslu. Þetta
var heilmikið ferðalag og fyrir
vikið finnst mér ég vera sterkari.“
Dauöi
A1 Capone
menningarmolinn
Á þessum degi árið 1947 lést hinn
alræmdi glæpaforingi A1 Capone á
Miami, 47 ára gamall. Capone fædd-
ist í Brooklyn og skólaganga hans
varð ekki löng. í tíu ár var hann
félagi i glæpaflokkum í Brooklyn
en flutti síðan til Chicago. Seint
á þriðja áratugnum varð Capone
valdamesti glæpamaðurinn í und-
irheimum Chicago-borgar og út-
rýmdi óvinum sínum kerfisbundið.
Þrátt fyrir að vera alræmdur glæpa-
maður og morðingi slapp Capone
hvað eftir annað úr höndum rétt-
vísinnar. Árið 1931 var hann sótt-
ur til saka fyrir skattsvik og fékk
ellefu ára dóm. Hluta af þeim tíma
eyddi hann í hinu fræga öryggis-
fangelsi, Alcatraz, en var látinn
laus árið 1939. Hann þjáðist af sýfil-
is og eyddi síðustu æviárum sínum
í Miami.