blaðið - 25.01.2007, Page 24
JANUAR 2007
Auður Auðuns ráðherra
Áriö 1970 varð Auður Auðuns ráðherra fyrst íslenskra kvenna. Auður
fæddist á (safirði 18. febrúar 1911 og lést í Reykjavík 1999. Auður var
þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn á árunum 1959-1974 og gegndi
hlutverki dóms- og kirkjumálaráðherra 1970 til 1971.
blaðið
Fyrsta konan opnar verslun í Reykjavík
Ágústa Svendsen opnaði hannyrðaverslun í Reykjavík árið 1887 og var
fyrsta konan sem rak verslun á Islandi. Verslunin var í fyrstu til húsa í
Bankastræti en 1903 keypti hún húsnæði undirverslunina í Aðalstræti.
Ágústa afgreiddi og sinnti saumaskap fyrir verslunina allt til dauðadags.
konan
Stúlkubörn of fá á Indlandi
Á hverju ári á Indlandi er talið að
allt að 500.000 stúlkufóstrum
sé eytt eða þær bornar út ný-
fæddar. Gamlar hugmyndir um
að líf drengja sé verðmætara og
nýtist fjölskyldum betur ríkja enn
á Indlandi og nú er svo komið að
óeðlilegt hlutfall milli kynja hefur
skapast í mörgum héruðum lands-
ins. Fleiri konur fæðast yfirleitt í
heiminum en karlar en á Indlandi
er hlutfallið 933 konur á móti 1000
körlum. [ nokkrum héruðum lands-
ins er svo komið að ungir karlmenn
finna sér engar konur til að giftast.
Fóstureyðingar þar sem ástæðan
er kyn fóstursins hafa verið ólög-
legar á Indlandi og læknar þar í
landi mega ekki gefa upp kyn fóst-
ursins. Þó eru margir læknar sem
þrjóta þau lög og gefa pörum
merki um kyn fóstursins. I von um
að þreyta ástandinu og gömlum
hugmyndum hefur umbótasinninn
og trúarleiðtoginn Swami Agnivesh
hafið herferð gegn kynbundnum
fóstureyðingum í norðurhéruðum
landsins.
'Ve trarútsaCa!
Úlpur
á 4.500/voru á 8.900
Peysur/Toppar/Bolir
á 30-70% afslætti
Ódýra sláin
1.200 / 2000 / 3000
Bútasaumsefni
í úrvali á 600 kr/m
Díza
Laugavegi 44 . S: 561-4000 • www.diza.is
'&rxjt i t/qpm
•-cmif'vanrtfr fjjf iatr-rvu f
Kvenréttindafélag íslands
fagnar aldarafmæli og býður til hátíðardagskrár í Tjarnarsal Ráðhúss
Reykjavíkur laugardaginn 27. janúarfrá kl. 14:00-17:00.
Þér er boðið í 100 ára afmæli Kvenréttindafélags Islands.
Að dagskrá lokinni býður Reykjavíkurborg til móttöku í Tjarnarsalnum.
konan@bladid.net
Kvenréttindafélag íslands
Barátta og kraftur
kvenna í heila öld
Kvenréttinda-
félagíslandsheld-
ur upp á íoo ára
afmæli sitt um
þessar mundir
og haldið verður
upp á afmælið
á laugardaginn
næstkomandi í
Ráðhúsi Reykja-
víkur. Félagið
telur rúmlega
700 félaga, bæði
karla og konur.
Núverandi for-
maður þess er
Þorbjörg Inga
Jónsdóttir og
hún hefur gegnt
því hlutverki
síðan árið 2001.
Hún segir að af-
mælisdagskráin
verði mjög glæsi- _________
leg og þar verður
stiklaðáþvíhelsta
í starfi og sögu félagsins og sögu jafn-
réttisbaráttu á íslandi. Einnig verður
sjónum beint að stöðu jafnréttismála
í dag og litið til framtíðar.
Margt gerst á síðustu 100 árum
„Fyrri formenn félagsins ætla að
segja frá helstu baráttumálunum sem
þeir börðust fyrir á sínum tíma sem
formenn og þannig getum við séð að
hvaða leyti okkur hefur orðið ágengt
og hvað má enn fara betur,“ segir Þor-
björg. Hún segir að sjálfsögðu margt
hafa gerst á síðustu 100 árum sem
hægt sé að vera ánægður með.
„Bríet Bjarnhéðinsdóttir var stofn-
andi félagsins og hún var mikill
frumkvöðull í jafnréttisbaráttu á
íslandi. Það er skemmtilegt að rifja
upp hvað félagið lét sig margt varða
á fyrstu áratugum þess. Konurnar
stóðu meðal annars fyrir söfnun fyrir
byggingu Landspítalans og stofnuðu
Mæðrastyrksnefnd. Þær voru mjög
ötular að beita sér í stjórnmálum og
Bríet var til dæmis oft niðri á þingi
Þorbjörg Inga Jónsdóttir, 1
formaður Kvenréttinda-
félags íslands. Þorbjörg H
segir að margt hafi gerst á
siðastliðnum 100 árum en
samt er margt sem enn þarf
að breytast. ;,iyiMyi>ór
-'IMMT . Æm
iÉi ÍP
og hljóp þá á milli hæða hvar sem
hún þurfti að beita sér. Það sem mér
finnst standa upp úr er öll sú vinna
og mikli kraftur þeirra kvenna sem
voru tilbúnar til að beita sér án þess
að fá nokkuð fyrir það greitt og það
eru ómældar vinnustundirnar sem
konur hafa lagt til félagsins í gegnum
árin,” segir Þorbjörg.
Ennþá margt sem þarf að breytast
„Við erum formlega búin að ná jafn-
rétti kynjanna en það er margt í dag
sem má fara betur. Þar ber fyrst að
nefna launamálin; þar virðumst við
standa í stað og jafnvel dragast aftur
úr ef eitthvað er. Það virðist lítið ger-
ast i þessum málum þrátt fyrir fögur
fyrirheit bæði frá einkafyrirtækjum
og því opinbera. Einnig eru of fáar
konur í efstu stöðum og stjórnunar-
stöðum innan fyrirtækja og því þarf
líka að breyta. Kannski þarf að grípa
til róttækari aðgerða eins og gert hef-
ur verið í Noregi þar sem fyrirtæki
eru skylduð til að hafa jafnt hlutfall
kvenna og karla í stjórnunarstöðum.
Síðast en ekki síst
þarf að breyta
hugarfarialmenn-
ingssem ogstjórn-
valda gagnvart of-
beldigegnkonum
ogþað vantar enn
mikið upp á að
uppræta fordóma
í garð kvenna
sem verða fyrir
ofbeldi sem og að
taka harðar á ger-
endum í slíkum
málum.”
Félagið beitir
sér á ýmsum
vettvangi
Starfsemi Kven-
réttindafélagsins
er margþætt að
sögn Þorbjargar.
________________ Félagið stendur
fyrir útkomu
tímaritsins 19. júlí
sem kemur út árlega á þeim degi.
Tímaritið fjallar um jafnréttismál og
er elsta timarit þess efnis sem kemur
út á íslandi, en það kom fyrst út árið
1949- „Félagið stendur líka fyrir mál-
þingum og ráðstefnum um jafnréttis-
mál. Við vinnum líka að því að koma
jafnréttismálum á framfæri bæði
innan fyrirtækja og á opinberum
vettvangi. Fulltrúar frá okkur sitja
líka víða í nefndum og ráðum sem
varða jafnréttismál og miðla þar af
þekkingu sinni. Við leyfum okkur
ákveðið eftirlitsvald og sendum frá
okkur ályktanir ef okkur finnst pott-
ur vera brotinn hvað varðar jafnrétti,
hvort sem er hjá ríki eða einkafyrir-
tækjum.”
Þorbjörg segist hlakka mikið til af-
mælisins á laugardaginn og vonar að
sem flestir sem hafa áhuga á jafnrétti
sjái sér fært að mæta. Dagskrána er
hægt að kynna sér á vefsíðu Kvenrétt-
indafélagsins www.krfi.is.
loa@bladid.net
Þórey Vilhjálmsdóttir
Aldur: 34 ára Starfsheiti: Viðskiptafrœðingur ogMBA nemi
ALLIR VELKOMNIR
Kv<bnr<4tirv3Af(Hðt} ttlí
1. Hvað ætlaðir þú að verða
þegar þú varst lítil?
Eg ætlaði að verða mjög margt,
breyttist dag frá degi. Einu sinni
arkitekt, reyndi að teikna hús en
kom ekki stiganum fyrir á tvívíðri
mynd og hætti þá við.
2. Ef ekki hér, hvar þá?
í sjálfsþurftarbúskap, langt frá
mannabyggðum, í framandi landi.
3. Hvað er kvenlegt?
Réttlæti, ákveðni og fram-
kvæmdagleði.
4. Er munur á körlum og konum
og ef svo er hver er hann?
Já, í launum.
5. Er fullu jafnrétti náð?
Nei, það væri fjarstæða að halda
því fram! Á meðan launamunur
kynjana er enn allt að 30 prósent þá
erlangt í land. Ég skil ekki hvern-
ig þetta getur viðgengist í upplýstu
samfélagi að konur fái lægri laun
eingöngu vegna kyns. Það er ekki
verið að nýta nema hluta af þeim
krafti og getu sem konur hafa fram
að færa. Ég vil sjá fleiri konur í
forstjórastöðum og stjórnum fyrir-
tækja en til þess þarf að vera sam-
vinna á heimilunum og karlmenn
þurfa að vera jafnlíklegir til að taka
að sér uppeldis- og heimilisstörf.
ó.Hvað skiptir þlg mestu í lífinu?
Fjölskylda mín og vinir.
7. Helstu fyrirmyndir?
Eve Ensler, stofnandi V-day-sam-
takanna, er ein af mínum helstu
fyrirmyndum.
8. Ráð eða speki sem hef-
ur reynst þér vel?
Hver er sinnar gæfu smiður.
9. Uppáhaldsbók?
Eins og er þá eru námsbækurn-
ar í mestu uppáhaldi, annars er ég
mjög hrifin af bókum Steinunnar
Sigurðar, Gerðar Kristnýjar og
Guðrúnar Evu Mínervudóttur.
lO.Draumurinn minn?
Að skapa umhverfi fyrir börnin
mín þar sem eru jöfn tækifæri fyrir
alla.