blaðið - 09.02.2007, Síða 1
28. tölublaö 3. árgangur
föstudagur
9. febrúar 2007
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKEYPIS!
■ MATUR
Friöriki Val Karlssyni finnst
íslensk kjötsúpa og plokkfiskur
frábær. „Eg er líka voöa veikur
fyrir matarhefðum" |síða23
■ MEWWING
Soffia Gísladóttir er ljósmyndari.
„Ég fæ miklu meira út úr góðum
ljósmyndum en fallegum
málverkum" I siðais
ak *
Grunnskólakennarar vilja útrýma tröllasögum um vinnutíma:
Kennarar í ímyndarherferð
■ Eru ekki alltaf í fríi ■ Svipuð vinnuskylda ■ Of mikil áhersla á annað en kennslu
Flestir á móti reykingum
Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net
í smíðum er upplýsingabæklingur þar sem vinnu-
tími grunnskólakennara er útskýrður i megin-
dráttum og verður hann sendur í öll hús á næstu
dögum.
„I gegnum tíðina hefur verið þrálátur orðrómur
og allskonar tröllasögur um vinnutíma og ekki
vinnutíma kennara. Þessi bæklingur er hugsaður
til þess að fólk geti kynnt sér fyrirkomulag vinnu-
timans, ef það hefur áhuga á því,“ segir Ólafur
Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara.
Bæklingurinn skiptist niður í ýmsa verkþætti
og lengri jóla-, páska- og sumarfrí eru útskýrð.
Ólafur bendir á að þegar öllu sé á botninn hvolft
sé vinnuskyldan sú sama. „Allir kennarar í fullu
starfi skila sínum klukkustundum likt og aðrir,“
segir Ólafur.
Einar Magnússon, skólastjóri Hagaskóla, segir
það hið besta mál að vinnutími kennara sé út-
skýrður með málefnalegum hætti. Hann segir sína
reynslu góða þar sem kennarar víkist ekki undan
vinnuskyldu. „Það er í raun alveg kýrskýrt að
kennarar sinna vel sínu starfi, það er mín reynsla
að minnsta kosti. Á móti fríum vinna kennarar
vinnutímann upp annars staðar, það er samnings-
bundið,“ segir Einar. „Vandinn er sá að starf kenn-
arans er sérhæft og erfitt að bera það saman við
hvaða starf sem er. Okkar viðfangsefni er lifandi
fólk.“
Haraldur Ólafsson, prófessor í veðurfræði, fylg-
ist með skólastarfi en segist þó í raun vita lítið um
hver raunverulegur vinnutími kennara sé. Hann
hefur áhyggjur af því að of mikil áhersla sé lögð á
annað en grunnatriði skólastarfsins. „Stundum læð-
ist að mér sá grunur að önnur verkefni en kennsla
hafi náð að þröngva sér fullhátt á forgangslista skól-
anna. Jafnt og þétt hefur nemendum á hvern kenn-
ara fækkað undanfarin ár. Þrátt fyrir það hvarflar
að manni að í staðinn fyrir að meiri tími nýtist í
kennslu og undirbúning hennar, hafi önnur verk-
efni læðst inn,“ segir Haraldur. „I flestum rekstri
hefur skipulag, stjórnun og umsýsla haft ríka til-
hneigingu til að vaxa mikið á kostnað grunnverk-
efna. í skólastarfi, sem og öllu öðru starfi, skulu
menn gæta þess að verja tíma vel.“
Aðspurður telur Ólafur orðróminn um minni
vinnutíma kennara byggðan á misskilningi þar
sem vinnutími þeirra sé ekki ávallt bundinn við
skólabygginguna. „Við höfum reglulega gert kann-
anir þar sem kemur skýrt í ljós að fólk heldur að
kennarar fái meira frí en aðrir og skili minna
vinnuframlagi. Bæklingurinn er raunverulega
bara útskýring á því að svo er ekki,“ segir Ólafur.
FRETTIR
Útilokar
ekki frekari
hækkanir
Bankastjórn Seðlabanka Islands hefur
ákveðið að stýrivextir skuli haldast
óbreyttir enn um sinn, eða 14,25 pró-
sent. Davíð Oddsson seðlabankastjóri
segir þó að frekari hækkanir séu ekki úti-
lokaðar þar sem enn sé mikið ójafnvægi
í þjóðarbúskapnum.
Ákvörðunin nú byggir á því að verðbólga
hafi hjaðnað frá síðustu vaxtaákvörðun
og að verðbólguhorfur til skamms tíma
hafi batnað þótt hún sé enn langt yfir
verðbólgumarkmiði bankans. Á móti
komi að gríðarlegur viðskiptahalli feli í
sér aö stöðugleiki krónunnar sé háður
vilja alþjóðlegra fjárfesta og lánar-
drottna til að fjármagna hann. Þetta
hafi áhrif á stöðugleika krónunnar, og
komi til lækkunar á gengi hennar muni
verðbólguhorfur versna á ný.
Þar sem ekki sjáist enn merki um minnk-
andi sþennu á vinnumarkaði og laun
hafi hækkað langt umfram framleiðni
undanfarin ár, gætu frekari verðlagsáhrif
átt eftir að koma fram.
Vextir óbreyttir enn um sinn Bankastjórn Seðlabankans tilkynnti í gær þá ákvörðun sína að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum.
Þrátt fyrir að verðbólga hafi hjaðnað að undanförnu og verðbólguhorfur til skamms tíma séu góðar, sagði Davíð Oddsson seðlabankastjóri
að frekari vaxtahækkanir væru ekki útilokaðar.
FOL^
» síða 14
VEÐUR
» síða 2
Heldur meö Eiríki
Tomas Lundin er lands-
mönnum að góðu kunnur úr
Eurovision. „Þau íslensku
sem ég hef heyrt í ár
eru öll mjög góð.“
Kalt
Hæg austlæg átt, en 8-13
m/s syðst. Skýjað og stöku
él suðaustantil, en annars
yfirleitt léttskýjað. Hiti 1 til
4 stig við suðurströndina,
en annars frost 0 til 15 stig.
VIÐTAL
» síður 24-25
Kann orðiö tökin
Guðmundur Pétursson tónlist-
armaður hefur verið áberandi í
íslensku tónlistarlífi á undan-
förnum árum og sett mark
sitt á hljómplötur ýmissa
tónlistarmanna.
Landsmenn eru langflestir sáttir við
reykingabann inni á veitingahúsum.
Samkvæmt skoðanakönnun Blaðsins
sem gerð var á laugardaginn eru 82,5
prósent hlynnt banninu en 17,5 prósent
andvíg því. Lítill munur er á afstöðu kynj-
anna til bannsins.
Opið virka daga 10-18 og laug. 11-15
Mörkinni 4, Reykjavik, sími: 533 3500
Hofsbot 4. Akureyri - Miðvangi 1, Egilsstöðum
alltímatinnáeinumstað
nettö