blaðið - 09.02.2007, Blaðsíða 23
blaðið
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 23
matur
matur@bladid.net
Heit súpa
Það erfátt hentugra en að elda heita og
Ijúffenga súpu á köldu vetrarkvöldi. Hún
fyllir líkamann hita auk þess að kitla
bragðlaukana.
Sykraðar appelsínur
Margir muna eftir æskubrekum þar sem sykri var dreift
yfir appelsínurnar svo þær brögðuðust betur. Hví ekki
að rifja upp gamla tíma og fá sér sykraðar appelsínur?
Skítt með alla hollustu svona einu sinni.
Friðrik Valur eldar heima hjá sér og i vinnunxii
Hef brennandi
áhuga á matseld
Friðrik Valur Karlsson
matreiðslumaður ætl-
aði sér að verða kokkur
frá unga aldri en hann
og kona hans, Arnrún
Magnúsdóttir, eiga veit-
ingastaðinn Friðrik V á
Akureyri. Friðrik segir
vinnuna vera skemmtilega enda er
eldamennska eitt helsta áhugamál
hans.
„Ég veit ekki hvort ég er eitthvað
skrýtinn en hjá mér er eldamennsk-
an afslöppunarform. Kannski af því
ég þykist vera listamaður. Ég ímynda
mér að ég sé svipaður og tónlistarmað-
ur sem vinnur við að spila einhverja
tónlist. Þegar hann fer heim og vill
slappa af þá spilar hann tónlist sem
honum þykir skemmtileg."
Les matreiðslubækur í rúminu
Friðrik segist vera mikill íslend-
ingur í sér og hafa sérstakt dálæti á
íslenskum mat. „Til dæmis finnst
mér íslensk kjötsúpa og plokkfiskur
frábær. Ég er líka voða veikur fyrir
hefðum, mér finnst æðislegt að fá
mér skötu á Þorláksmessu en ann-
ars borða ég hana aldrei. Ég held að
við Islendingar mættum alveg vera
meira með árstíðabundinn mat. Ég
hef líka ofboðslega gaman af að
ferðast og borða og ég legg mig mjög
eftir því að borða svæðisbundinn
mat þar sem ég er,“ segir Friðrik og
bætir við að hann sé í fríi tvisvar í
viku, á sunnudögum og mánudög-
um. „Þá eldum ég og börnin saman
og það er ákveðin hefð. Á sunnudög-
um erum við með sunnudagsmat
en á mánudögum erum við yfirleitt
með fisk. Ég er ótrúlega heppinn að
helsta áhugamál mitt og vinnan er
það sama. Það er ljótt að segja frá
því en svo þegar maður leggst upp í
rúm og kíkir í bók þá er það yfirleitt
matreiðslubók," segir Friðrik og hlær.
„Þetta er þannig fag að ef maður hef-
ur ekki brennandi áhuga þá er ekki
gáfulegt að vinna við þetta.“
Virðing borin fyrir matnum
Friðrik er í Slow Food-samtök-
unum á Islandi sem eru alþjóðleg
grasrótarsamtök sem vilja stuðla að
og vernda bragðgæði og matarmenn-
ingu. Friðrik segir að hugmynda-
fræðin á Friðriki V sé svipuð. „Við
leitumst við að nota hráefni héðan
af svæðinu og vita upprunann. Við
merkjum alla villibráð þannig að
við vitum hvaðan dýrið kemur, hver
skaut það, hvar og hvenær,“ segir
Friðrik að lokum og lætur fylgja með
dýrindisuppskrift að súkkulaðimús.
svanhvit@bladid.net
Skyr og súkkulaði-mousse
Fyrir 6 til ío manns
• 300 gr hvítt súkkulaði,
t.d. Callebaut eða Lindt
• 300 gr vanilluskyr frá KEA
• 2 eggjarauður
• 4 dl þeyttur rjómi
Bræðið súkkulaðið [ stórri skál, ekki
of heitt. Hrærið egjarauðurnar varlega
saman við áður en skyrinu er hrært
út I með sleif og að lokum rjómanum.
Blandan er sett í sprautupoka og
kæld eða sett beint f form og kæld
þannig. Gott er að bera fram ber,
ávexti og eða berjasósur með þessari
skyrsúkkulaði-mousse.
Friðrik Valur Karlsson „Við leitumst við að
nota hráefni héðan af svæðinu og vita upp-
runann. Við merkjum alla villibráö þannig
að við vitum hvaðan dýrið kemur, hver skaut
það. hvarog hvenær."
______________Mynd/Raqnheidin
Þvottavélar, þurrkarar
og uppþvottavélar
EFTIRSOTTASTA
PAR LANDSINS
AEG LAVAMAT 76820
ÞVOTTAVÉL með islensku stjómborði
• Taumagn: 7 kg • Vinduhraði 1600/1200/1000/600 s/min.
• 24 þvottakerfi ásamt sérstöku sparnaðarkerfi
• Sérstakt vindingarkerfi fyrir viðkvæman þvott og ull
AEG LAVATHERM 57820
ÞURRKARI barkalaus með Islensku stjórnborði
• Taumagn: 6 kg • Mjög hljóðlátur
• Rakaskynjari: 9 mismunandi þurrkstig
8fsr
mWVBISIA
Itarleg notendahandbók i Islensku fylgir béðum tækjunum.
FULLKOMIN LÖGUN OG LEIKNI
AEG 50862U-W Hvlt
AEG 50862U-W Stál
' ■ .''.Li^slÍstSÍlHXMÍ
AEG 50862U-W og 50862U-M
AEG uppþvottavél
5 kerfi, íslenskt stjómborð,
Mjög hljóðlát - aðeins 41 db
SAMSUNG Q1457/Q1657
SAMSUNG þvottavél
1400snúninga, 7,5 kg.
Óvenju stórtromla - 57,51.
Vatnsnotkun 601 pr. 7,5 kg.
Mjög hljóðlát - aðeins 50. db
5AMSUNG P1253 / B1445
SAMSUNG þvottavél
1200 snúninga, 6 kg.
Mjög hláðlát
Tölvustýrð
Hraðþvottur á aðeins 30 mín.
LAVAMAT 52820
AEG þvottavél
1200 snúninga, 6 kg.
Fjöldi prógramma
Islenskt stjómborð
(1200 snún.)
(1400snún.)
(1400snúrv.)
' (IKJOsnúTL).
RADIONAUST
SÍMI461 5000
ORMSSON
KEFLAVÍK
SÍMI 421 1535
MODEL
AKRANESI
SÍM1431 3333
ARVIRKINN
SELFOSSI
SÍMI 480 1160
Súkkulaði
og konur
Valentínusardagurinn er á næsta
leiti og því ekki úr vegi að búa til
Ijúffenga súkkulaðimús í tilefni
dagsins.
Súkkulaðimús
• 170 g smátt skorið hálfsætt eða
sætbeiskt súkkulaði, eða blanda
af þessu tvennu
• 1 bolli þeyttur rjómi
• 1 tsk. heitt vatn
• V4 tsk. espresso-duft
• 1 stórt egg
• 2 stórar eggjarauður
• örlítið af fínu salti
• 1/3 bolli sykur
Súkkulaðið er sett í skál sem þolir
hita. Um 3 cl af vatni sett í pönnu
og látið sjóða. Haldið skálinni
yfir vatninu en látið hana ekki
snerta vatnið. Hrærið reglulega í
súkkulaðinu þar til það er bráðið.
Þeytið rjóma í miðlungsstórri skál
en varist að þeyta hann of mikið.
Setjið lok á skálina og geymið í
kæli. Hrærið vatn og espresso-duft
saman í lítilli skál. Setjið eggin í
aðra skál sem er líka haldið yfir
vatninu í pönnunni. Hrærið saman
eggjarauður, salt og sykur þar til
það er létt og froðukennt eða í um
það bil 30 sekúndur. Setjið skálina
yfir vatnið og þeytið blönduna í
hringi í skálinni þartil eggin eru
mjúk, létt og heit viðkomu eða um
þrjár mínútur. Fjarlægið skálina frá
vatninu og haldið áfram að þeyta
á fullum styrk í um það bil fimm
mínútur. Hellið espresso ofan í.
Setjið um það bil fjórðung af eggj-
unum í súkkulaðiblönduna til að
lýsa hana og setjið svo afganginn
af eggjunum. Að lokum má setja
þeytta rjómann ofan í súkkulaðið
til að búa til Ijósa mús. Hellið súkku-
laðimúsinni í 4 diska eða vínglös.
Hyljið og geymið í ísskáp í um það
bil klukkustund. Skreytið að vild
áður en borið er fram.
* 1
Fullkomið pasta
Börn hafa alltaf gaman af því að
taka til hendinni í eldhúsinu en til
að allt gangi vel er best að hafa
uppskriftirnar einfaldar svo börnin
fái raunveruleg verkefni.
Hráefni:
• 200 g pastaskrúfur
• 175 g spergilkál
• 2 kjúklingabringur, steiktar
• 4 msk. hungang
• 2 msk. hrísgrjónaedik
• 2 msk. sojasósa
• 1 msk. sesamolía
• 150 g maís
• 2 vorlaukar
Aðferð:
Eldið skrúfurnar eftir leiðbeiningum
á pakka. Bætið spergilkálinu í pott-
inn síðustu þrjár mínúturnar. Skerið
kjúklinginn í litla munnbita og fjar-
lægið allt skinn. Skerið vorlaukana
varlega. Búið til dressingu úr hun-
angi, ediki, sojasósu og sesamoliú.
Blandið saman pasta, spergilkáli,
kjúklingi, vorlauk og dressingu.