blaðið - 09.02.2007, Blaðsíða 30

blaðið - 09.02.2007, Blaðsíða 30
blaðið 30 FOSTUDAGUR 9. FEBRUAR 2007 KARIBRYNJÓLFSSON18 ÁRA Höfuðborg hvaöa lands er Aþena? Grikklands I hvað bók kemur sögupersónan Bjartur í Sumarhúsum fyrir? Eftir Halldór Laxness, man ekkl hvað hún heitir Hvað er 100 sinnum 0 mikið? 0 LILJA GUÐRUN LILJARSDÖTTIR 21 ÁRS Höfuðborg hvaða lands er Aþena? Ekki hugmynd I hvað bók kemur sögupersónan Bjartur í Sumarhúsum fyrir? Ég veit það ekki Hvað er 100 sinnum 0 mikið? 0 Hvað eru mörg bein i mannslikamanum? Ég veit það ekki Hvað heitir heilbrigðisráðherra? Ég veit það ekki GUNNAR PÁLSSON 23 ÁRA Höfuðborg hvaða lands er Aþena? Ekki hugmynd f hvað bók kemur sögupersónan Bjartur í Sumarhúsum fyrir? Ekki hugmynd Hvað er 100 sinnum 0 mikið? 0 Hvað eru mörg bein í mannslikamanum? Ég man það ekki Hvað heitir heilbrigðisráðherra? Ekki hugmynd Fyrrverandi Strákur, kosningastjóri og nýskipaður framkvæmdastjóri V-dagssamtakanna Hipp í baráttunni JfBELOiO BlW kil aldrei við mig: Þeir missa sem eiga. Það er enginn hlutur sem mér finnst ómissandi í lífinu. Elska: Það fyrsta sem ég sé á morgnana. Þoli ekki: [ augnablikinu þoli ég ekki viðskiptablöð dagblað- anna. Ég þoli ekki þegar talað eru um samleið og stýrivexti í sömu setningu. Matur: Það er erfitt að velja, ég veit ekki. Tónlist: Tónlist sem ekki er í boði Doritos. Bók: Væri rétt að segja Biblían en mér fannst Alkemistinn rosa góð og síðan bef líka gaman af Stóru hundabókinni. Draumaverkefni: Ég væri alveg til í að vera dóms- og kirkju- málaráðherra einhvern tímann í framtíðinni. Ráð og speki: Lifa eins og enginn sé morgundagurinn. Hamingjan felst í: Já já. Blallö/íyþór Gunnar Sigurðs- son vakti athygli almennings þeg- arhannslóstílið með Strákunum á Stöð 2 og sprell- aði þar og gerði grín að frægum einstaklingum sem og sjálfum sér og strákunum. Hann hefur nóg fyrir stafni þessa dagana en auk þess sem hann skipuleggur kosningabaráttu Samfylkingarinnar tók hann nýlega við framkvæmda- stjórastöðu V-dagssamtakanna. Gunnar er sótsvartur almúgi að eigin sögn og hefur lagt stund á fiskvinnslu auk þess sem hann nam stjórnmála- og stjórnsýslufræði og er einmitt þessa dagana auk alls annars að klambra saman mastersritgerð í opinberri stjórnsýslu. Skyggði á strákana Gunnar segir innkomu sína í þátt- inn hafi verið nokkuð óvænta. „Mig vantaði eitthvað að gera hálfan dag- inn og sló til þegar mér var boðin þessi vinna enda bara vinna eftir hádegi. Þetta var vinna eins og hvað annað, bara eins og að vinna í fiski. Okkar á milli þá held ég að strákana hafi vantað einhvern í þáttinn til að draga fram þeirra sól en svo reis mín aðeins hærra og þá hætti þátturinn. “ Stillir saman pólitíska strengi Gunnar hefur ekki setið auðum höndum síðan hann hætti að grínast í sjónvarpi en hann er sem fyrr segir kosningastjóri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi og tók við því starfi í. janúar. Áður hafði hann ekki tekið þátt í pólitísku starfi en hann játar að hann kjósi Samfylkinguna og sé sammála því sem flokkurinn stendur fyrir. „Starfið fellst í að tryggja flokknum fylgi og stilla saman strengi á milli kjördæma. Ég trúi því að allir séu pólitískir og sá sem ekki segist vera pólitískur er raunar með því að taka pólitíska afstöðu." Hipp og kúl barátta Gunnar segir að hann sé í 6oo pró- sent vinnu þessa dagana en hann tók nýlega við starfi framkvæmdastjóri V-dagssamtakanna. V-dagssamtök- in eru samtök að bandarískri fyr- irmynd sem berjast gegn ofbeldi á konum. Gunnar segir að hann hafi séð starfið auglýst og séð að þarna væri eitthvað sem félli að hans skauti, eins oghannorðar það. „Ég er alinn upp við góð gildi og finnst eðlilegt að berjast fyrir þess- um hlutum. Ég hafði fylgst með starfi samtakanna, enda ekki ann- að hægt, og séð að þau hafa verið að gera hluti sem eru bæði hipp og kúl og mjög þarfir. Ég hugsaði með sjálf- um mér að ég væri bæði hipp og kúl og tilbúinn að leggja þessu þarfa mál- efni lið þannig að það kom ekki ann- að til greina en að sækjast eftir þess- ari stöðu,“ segir Gunnar sem enn er að fóta sig í starfinu en hlakkar til að takast á við verkefnin sem framund- an eru. Mein karlmanna Gunnar segir það ekki endilega betra að hann sé karlmaður að berj- ast gegn ofbeldi á konum. „Ég stend fyrir jafnrétti þannig að ég sé engan mun að því, en að sjálfsögðu eru kost- ir við það að ég er karl að berjast fyrir þessum málum. Gerendur eru í flest- um tilvikum karlmenn og ofbeldi gegn konum er mein karlmanna og við þurfum að takast á við það.“ „Ég reyni alltafað sjá spaugilegar hliðar á hlut- unum og annars held ég að maður væri einhvers staðará vondum stað.“ Gunnar segir að baráttan eigi ekki bara að vera í höndum kvenna og seg- ir að karlmenn hafi tekið þessa um- ræðu á öðrum forsendum. Hann trú- ir því að sigur náist enda ekki annað hægt, en sú staðreynd að samtökin eru til segir að ofbeldi sé til staðar. „Ég held að ofbeldi haldist í hend- ur við það ójafnrétti sem ríkir í samfélagi okkar. Hundrað prósent jafnvægi byggir á því gildismati að koma fram við náungann eins og þú vilt láta koma fram við þig. Ég held líka að það megi ekki einblína bara á að ná jafnrétti á einu sviði eins og að horfa bara á launamun kynjanna. Það þarf líka að horfa til þess ójafn- réttis þegar feður og börn eiga í hlut til dæmis í forræðismálum en þar rík- ir ójafnrétti sem hallar á karlmenn. Góðir hlutir gerast hægt en margt hefur gerst á undanförnum árum og það tekur kynslóðir að þurrka út ójafnrétti en ég vona svo sannar- lega að því verði náð áður en ég fer undir græna torfu. Ég veit að hægt er að berjast gegn ofbeldi á konum svo að sigur náist annars myndi ég ekki taka þátt í þessari baráttu.“ Hugsjónamaður Gunnar játar því að hann sé hug- sjónamaður. „Égtrúi áþau endalaust góðu, fallegu og kærleiksríku gildi sem fyrir mér voru höfð þegar ég var að alast upp og ég hef alltaf reynt að hafa þau til hliðsjónar í mínu lífi. “ Hann segir að hann eigi sér engar ákveðnar fyrirmyndir heldur hafi ákveðið að vera sjálfum sér fyrir- mynd. „Ég myndi lýsa mér þannig að ég fari mínar eigin leiðir og ég reyni að fara ótroðnar slóðir. Ég hef komist að því að því fylgir að hugsa innan í kassanum þar sem allir aðr- ir eru að reyna að hugsa fyrir utan hann.” Lífíð er brandari Þegar Gunnar er spurður út í grín- ið og hvort það sé alltaf með í för svar- ar hann að lífið sé í raun bara einn stór brandari og glottir. „Ég reyni alltaf að sjá spaugilegar hliðar á hlut- unum og annars held ég að maður væri einhvers staðar á vondum stað. Maður verður alltaf að sjá eitthvað sniðugt í öllu og barátta má aldrei vera leiðinleg þó að um alvarlega hluti sé að ræða.“ viðtal Hvað eru mörg bein i mannslíkamanum? 365 Hvað heitir heilbrigðisráðherra? Man það ekki HÖSKULDUR HERMANNSON19 ÁRA Höfuðborg hvaða lands er Aþena? Grikklands I hvað bók kemur sögupersónan Bjartur í Sumarhúsum fyrir? f Bjarti í Sumarhúsum Hvað er 100 sinnum 0 mikið? 0 Hvað eru mörg bein i mannslíkamanum? Það eru nokkur Hvað heitir heilbrigðisráðherra? Ekki hugmynd ALDÍS HAUKSDÓTTIR18 ÁRA Höfuðborg hvaða lands er Aþena? Grikklandi i hvað bók kemur sögupersónan Bjartur i Sumarhúsum fyrir? Ekki hugmynd Hvað er 100 sinnum 0 mikið? 100 Hvað eru mörg bein í mannslikamanum? 200 og eitthvað Hvað heitir heilbrigðisráðherra? Ég veit það ekki J!P9PSj|8|giy ais 'S 903 'fr 0'EM|OH)æiS|19[S'Z puemuO't'.JORS

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.