blaðið - 24.02.2007, Qupperneq 32
32 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007
Fraxismenn á förum
Um helgina eru síðustu forvöð að sjá sýn-
ingarnar Frelsun litarins og Jón Stefánsson-
nemandi Matisse og klassísk myndhefð í
Listasafni Islands.
blaöiö
Margir bíða spenntir eftir Listahátíð og sífellt er hulunni
svipt af fleiri dagskrárliðum. Heimasíða hátíðarinnar er upp-
færð reglulega og þar er hægt að finna allar upplýsingar
um dagskrána.
Æfingar hafnar á
Hjónabandsglæpum
Þjóðleikhúsiö frumsýnir nýtt leikrit
eftir Eric-Emmanuel Schmitt,
Hjónabandsglæpi, á Stóra sviðinu
18. apríl. Leikrit Schmitts Abel
Snorko býr einn og Gesturinn
hafa notið gífurlegra vinsælda
meðal íslenskra áhorfenda. Æf-
ingar eru nú hafnar undir stjórn
Eddu Heiðrúnar Backman leik-
stjóra. Hjónabandsglæpir er eitt
af nýjustu leikverkum skáldsins
og hefur hlotið frábærar viðtökur,
jafnt í heimalandi höfundar sem
erlendis. Með hlutverkin tvö í sýn-
ingunni fara tveir af ástsælustu
leikurum þjóðarinnar, þau Elva
Ósk Ólafsdóttir og Hilmir Snær
Guðnason. Leikstjóri sýningar-
innar er Edda Heiðrún Backman,
höfundur leikmyndar og búninga
er Jón Axel Björnsson, tónlist
semur Óskar Guðjónsson og þýð-
andi er Kristján Þórður Hrafnsson.
Eric-Emmanuel Schmitt verður
viðstaddur frumsýninguna, en
hann verður einn af gestum í Viku
bókarinnar 16.-22. apríl.
Hjónabandsglæpir er nærgöngult
og átakaþrungið leikrit um ástina,
minnið og gleymskuna. Þau hafa
verið gift í fimmtán ár þegar hann
verður skyndilega fyrir því að
missa minnið. Með aðstoð hennar
reynir hann að komast að því hver
hann er. Nýtt verk eftir vinsælasta
leikskáld Frakka í dag, þar sem
fjallað er um það sársaukafulla
hlutskipti að þurfa að sækja sjálfs-
mynd sína til annarra.
Fagmannlegir
framhaldsskólanemar
erslingar hafa síðastliðin
ár sett upp hvern íburð-
armikinn söngleikinn á
fætur öðrum, og í ár er
engin undantekning frá
þeirri hefð. Söngleikurinn „Sextán“
var frumsýndur í Austurbæ þann
í. febrúar á 75. nemendamóti Verzl-
unarskólans, og er framhaldsskóla-
söngleikur í bókstaflegri merkingu.
Verkið fjallar um Hólmfríði Júní-
usdóttur, og 16 ára afmælisdaginn
hennar. Hún er dæmigerður íslensk-
ur unglingur, og þarf að kljást við
dæmigerð vandamál þeirra. Enginn
í fjölskyldunni man ekki eftir afmæl-
inu, enda öll upptekin við undirbún-
ing brúðkaups eldri systurinnar. Og
ekki bætir úr skák að fyrsta ballið
hennar í Versló er þá um kvöldið. Og
þar verður draumaprinsinn, þriðja
árs neminn Benóní. Bólur, fegurðar-
drottningar og Egyptar virðast ætla
að klúðra kvöldinu, en, eins og í góð-
um söngleik fer allt vel að lokum.
Söngleikir Versló hafa svarið sig
í þá ætt leiklistarinnar sem dæmir
gæði út frá fjölda litaðra hreyfiljósa
í loftinu og styrk hljóðkerfisins. Það
hefur sýnt sig að það er ekki svo vit-
laus markaðsfræði. Froðukenndir
söngleikir á borð við Fame, Footlo-
ose og Hárið hafa dregið mikið fleiri
í leikhús heldur en Dario Fo og Ib-
sen.
Fagmannlegt og pottþétt
Krökkunum ungu, undir styrkri
leikstjórn Selmu Björnsdóttur og
Rúnars Freys tekst með eindæm-
um vel að halda salnum spenntum
í gegnum alla sýninguna. Ólöf Jara
Valgeirsdóttir í hlutverki Hófíar geisl-
ar á sviðinu þó að lítil sé og Benedikt
Valsson er hinn týpíski góði gæi sem
Sextán________________________________
Nemendamótssýning Verzlunarskóla Islands.
Sýnt í Austurbæ. Miðasala á midi.is
Lelkstjórn: Selma Björnsdóttir og Rúnar Freyr
Gislason.
Tónlistarstjórn: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og
VignirSnærVigfússon.
Handrit: Gísli Rúnar Jónsson.
Danshöfundar: Birna og Guðfinna Bjömsdætur.
Hljóð: Andri Guðmundsson og Hrannar B. Krist-
jánsson.
Lýsing: Geir Magnússon.
Aðalhlutverk: Benedikt Valsson, Ólöf Jara Val-
geirsdóttir, Pálmi Ragnar Ásgeirsson, Sigurbjörg
Alma Ingólfsdóttir og Sigurður Þór Óskarsson.
Leiklist ★★★★★
draumaprinsinn Benóní. Hann er
greinilega fínn leikari og leysir sín
söngnúmer með glæsibrag, eins og
reyndar þau flest. f aðalatriðum er
leikurinn fagmannlegur og flottur
og vert er að hrósa leikurum fyrir
skýra framsögn. Ég heyrði í það
minnsta skýrt og greinilega hvert
orð hvaðan ég sat.
Tæknileg atriði sýningarinnar
voru eins og frammistaðan á svið-
inu fagmannleg og pottþétt. Allar
skiptingar gengu mjúklega og hratt
fyrir sig, sem skiptir mildu máli í
jafn hraðri sýningu og þessari. Tón-
listin er.brot bestu íslensku tónlistar
síðustu áratuga, allt frá Bo til Jeff
Who? og Quarashi. Þessi sýning jafn-
ast fýllilega á við söngleiki á borð við
Fame og Hárið sem settar hafa verið
upp hér á landi, sýningar með fag-
mönnum í öllum hlutverkum.
Hollt að rækta gelgjuna
Áhorfendur, sem virtust vera að
meirihluta til krakkar á aldrinum
11-16 ára, skemmtu sér konunglega.
Og ég og mömmurnar fjórar við
hliðina á mér skemmtum okkur
mjög vel líka, þó svo við hefðum
kannski hlegið á öðrum stöðum en
þau yngri. Það er jú tilgangurinn
með þessu öllu, og það að krökkun-
um hafi tekist að senda mig syngj-
andi og glaðan út, með alla mína
fordóma gagnvart Versló og söng-
leikjum, er tilefni til að mæla með
verkinu við alla þá sem eru að leita
að góðri skemmtun sem ekki krefst
mikils vits og hugsunar. Það getur
nefnilega verið hollt að rækta gelgj-
una í sér. Sýningin stóð fyrir sínu,
og stelpa sem sat ekki langt frá mér
sannaði það þegar að ljósin komu
upp; „Oh, er það búið?“
ingimarb@bladid.net
Flottir krakkar „Þaö aö krokkunum hafi tekist
aö senda mig syngjandi og glaðan út, með
alla mína fordóma gagnvart Versló og söng-
leikjum, er tilefni til að mæ/a með verkinu við
alla þá sem eru að leita að góðri skemmtun"
VERKJALYF
FRUNSUKREM
VLyf&heilsa
Við hlustum!
NEFÚÐI HÁLSTÖFLUR
Það er engin ástæða til að láta sér liða illa.
Komdu og fáðu ráðgjöfhjá okkur.
KVEF?
Otrivjn
Vectavtr krem er áhrifartrt lyf til meöferöar á frunsu af vðtóum Herpes Simplex. Vectavir virkar á óllum stigum frunsunnar frá sting eöa æðasláttar til btöðru. I Vectavir er virka efnið penctklóvir sem stöövar framgang
veimnnar. Vedavir er astöö fuBorönum og bömiín ekfri en 12 »a. Balð Vectavir á frunsusvaDÖið á 2 klst fresíi í 4 daga. Berið á rétl fyrir sveín og wn leiö og vaknaö er. Dæmigfift er að frunsa komi fram við ofreynslu, kvef
eða jnfhiensu eða í mfiólli sói (Ld. á skíðum). Btki a að nota lyfíð ef að áður hefu komið fram ofnæml fyrir pencðdóvir, famdklóvir eða öðrum innihaldsefnum. Með Vectavir grær fninsan hraöar, verkir minnka og smittimi
stytösí. Vectavir kremið 2 g fæst án lyfseðils. Lesið vel tóðbetehgar sem fytgja lyfinu. Geymiö þar sem böm hvorki ná tii né sjá.
Otrtvin nefúöinn og nefdropamir innihalda xýiómetasólin sem virmur gegn bólgu, nefstíflu og slímmyndun vegia kvefs og bráðrar bólgu í ermis- og kinnholum. Otrivin virkar fljótt og áhrifm vara í 6-10 klst. Otrivtn getur
valdið aukaverkunum, s.s. ertingu í slímhúð og sviðaöfinrengu. Einnig ógieði og höfuðverk. Otrivin má nota þhsvar á dag en ekki lengur en í 10 daga í senn. Varúð: Langtímanotkun Otrivin getur leitt til þurrks í nefslímhúð.
SjúkJingar með 0áku eða þeir sem hafa ofnæmi fyrir xýlómetasólin ættu ekki að nota Otrtvin. Kyrmið ykkur vel ieiðöeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið þar sem böm hvorki ná til né sjá.
Strcpsis tölur eru látnar renna í mumi og leysast þar hægt upp. Þarmig nást fram staðbundir[sótthreinsandi áhrif í munni og koki. Auk þess hafa bragðefnm væg kælandi áhrif sem slá á ertingu. Venjulega er ein tafla látin
leysit hægt upp (munni á 2-3 klst fresti. Lyfið þarf venjulega að nota í 3-4 daga og stundum i allt að eina vlku. Eirmig má leysa upp 1 -2 töflur (heitu vatni og drekka sem heitan drykk. Notkun lyísins hefur engin áhrif á
örmur lyf sem notuð eru samtímis. Ofnæmi eða ofnæmislík viðbrögð geta komið fyrir en eru afar sjaldgæf. Hver pakki af Strepsils inniheldur 24 murmsogstöfter, sem eru í hentugum þynnupakkningum. Hverri pakkningu
fylgjaviðurkenndarteiðbeiningaráislenskuumnotkunlyfsirs.semgotteraðkynnasérvel. Geymlð þar sern böm hvorki ná til né sjá.
Vottaren Doto® (dðdófenak kalíum) 12,5 mg töflu. Notaðar við vægum eða frekar vægum verkjum, ðvo sem höfuðverk, tannpínu og tíðaþrautum. Verkar einnig hitaiækkandi. Dragi ekki úr einkennum á nokkrum dögum,
skal lerta til læknis. Þefr sem enj með eöa hafa haft sögu um maga- eöa skerfugamarsár eöa skerta Irfrarstarfsemi ættu aö ráðfaera sig við lækni áður en lyfið er notað. Þeir sem þola ekki acetýlsalisýru, íbuprófen eda önnur
bólgueyðandi lyf eða eru með astma eiga ekki að nota Voitaren Dolo®. Notiö lyfið ekki á meðgöngu nema í samráði við lækni, en aldrei á síðasta þriðjungi meðgöngu. Leitið ráða læknis eða lyf jatræðings um millíverkanir
viðönnurlyf.Lesaskalvandlegaleiðbeteingaráumbúðumogfylgiseðli. Geymið þar sem böm hvorki ná til né sjá.
Skyrkonfekt
og Mýbiti
lenskri náttúru og hyggjuviti
íslenskra hönnuða. Forvitnir
ættu til dæmis að smakka á Blóð-
bergsdrykknum sem er afrakstur
nemenda Listaháskólans og blóð-
bergsbóndans Sigfúsar Bjartmars-
sonar á Sandi í Aðaldal. Drykk-
urinn byggir á krafti íslenskrar
náttúru og svalandi auk þess sem
kraftar blóðbergsins njóta sín til
fulls. Meðal annars er talið að það
geti læknað kvef, hausverk, svefn-
leysi og timburmenn. Matarmark-
aðurinn stendur frá 14-18 í dag og
er kynningin öllum opin.
Sky rkonfekt Afrakst-
ur gjöfullar samvinnu
bænda og hönnuða.
Það verður mikið um dýrðir
í Matarsetrinu, Grandagarði 8 í
dag. Þar munu nemendur í Vöru-
hönnunardeild Listaháskóla Is-
lands kynna verkefni sem þau
hafa unnið að í samstarfi við ís-
lenska bændur undanfarnar vikur.
Bændurnir eru allir í heimafram-
leiðslu á matvælum og eru flestir
þeirra einnig partur af verkefninu
„Beint frá býli“ sem snýst um það
að bændur geti selt afurðir sínar
milliliðalaust. Verkefni nemanda
var að koma með vöruþróun og ný-
sköpun inn í matvælaframleiðslu
þeirra og kynna þau nú til sögunn-
ar: Mýbitann, Blóðbergsdrykk,
Skyrkonfekt og Geitabar.
Allt eru þetta
ferskar og
heilnæm-
ar vörur,
sprottn-
ar beint
úr ís-