blaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 44

blaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 24. FEBRUAR 2007 blaðið íþróttir ithrottir@bladid.net Skeytin in^ Stórkostleg frammi- ■ staða Cristiano Ronaldo hjá Manchester United í vetur hefur ekki farið fram hjá nein um.Ýmsar kenningar eru uppi um brottför hans í sumar og nú hefúr forseti Inter Milan haít á orði að skipti á honum og brasilíska sóknar- manninum Adriano séu möguleg. Óliklegt er þó að Ferguson sé hrifinn af því enda hefúr Adriano náð hylli í Milan fyrir partístand fremur en knattspyrnuhæfileika. 20.00 Sýn Extra Golf Accenture mótiö 20.50 Sýn Knattspyrna Atletico Marfrirt - Sunnudagur 12.50 SkjárSport Knattspyrna Wigan - Newcastle 14.45 Sýn Knattspyrna Arsenal - Chelsea 14.50 SkjárSport Knattspyrna Tottenham - Bolton Fallbaráttuslagur Sáttur viö Pardew Líklega meö í dag Ósammála Eggerti 17.50 Sýn Knattspyrna Gimnastic - Valencia 19.50 Sýn Knattspyrna Barcelona - Athletic Bilbao 20.00 Sýn Extra Golf Accenture mótiö Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@bladid.net Það kann að vera tilviljun ein að gengi Charlton Athletic í ensku úr- valsdeildinni á sama tíma og Her- mann Hreiðarsson hefur verið frá vegna meiðsla er hörmulegt. Hitt er aftur á móti staðreynd að hans er sárt saknað en þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Líkurnar á að Hermann verði í leikmannahópi Charlton fyrir botnslaginn við West Ham í dag eru góðar. Mikilvægasti leikur leiktíðarinnar Verði Hermann Hreiðarsson með liði Charlton í dag er það vart vatn á myllu annars íslendings sem kemur að leiknum f dag. Egg- ert Magnússon, stjórnarformaður West Ham, mun ekki eiga sjö dag- ana sæla nái fjárfesting hans ekki stigi eða stigum gegn Charlton því þá er farið að syrta verulega i álinn eigi að takast að bjarga liðinu frá falli úr úrvalsdeildinni. Sömu sögu er að segja um Charlton en bæði lið eru sex stigum frá 17. sætinu góða eins og staðan er í dag. Ánægður með Pardew Fyrir utan þjóðernið eiga Her- mann og Eggert fátt sameiginlegt. Eggert sparkaði núverandi þjálfara Charlton úr starfi hjá West Ham vegna þess að mórallinn var svo slæmur og við tók fyrrverandi þjálf- ari Charlton, Alan Curbishley. Hermann segir Pardew hafi verið sem ferskur gustur í herbúðum Charlton og stemmningin hafi ekki verið betri hjá liðinu í langan tíma. „Ég kann afar vel við hann og hans aðferðir. Þetta var orðið dapur- legt undir stjórn Ian Dowie og langt síðan það var svona gaman að æfa og spila eins og nú þó staða liðsins sé ekki góð. Fyrir mitt leyti skil ég ekki gagnrýni Eggerts á Pardew því ég þekki hann af góðu einu.“ Klár í slaginn Hermann segist vona að meiðsl sín séu yfirstaðin en hann hefur átt við hnémeiðsl að stríða síðan fyrir jól sem hafa angrað hann af og til síðan. „Þetta er ekkert alvarlegt og ég næ mér alveg fullkomlega. Ég var bara of fljótur af stað síðast og hef verið að bíta í súrt út af því nú. Það er alltaf þessi keyrsla á manni og ég vil spila hvern leik þannig að kappið verður stundum meira en forsjáin. En vissulega er einnig pressa frá liðinu og þjálfara enda hópurinn ekki stór og það munar um hvern og einn.“ Hverjum degi nægir sín þjáning Aðspurður hvort hann hafi hugsað sér til hreyfings frá Charl- ton segir Hermann svo ekki vera. „Auðvitað er freistandi að álykta sem svo þegar liðinu gengur illa að leikmenn skoði slíka mögu- leika' en það geri ég ekki. Mín trú er að við björgum okkur frá falli og að þvi vil ég einbeita mér. Samningur minn rennur ekki út fyrr en eftir tvö ár og þann tíma sé ég mig spila fyrir Charlton og enga aðra.“ B0TN ENSKU DEILDARINNAR: Sætl Félag Leikir Mörk Stig 15 Sheffield Utd. 27 -12 30 16 Man.City; 26 -12 30 17 Wigan 1 27 -16 26 18 West Ham, 27 -24 20 19 Charlton i 27 -27 20 20 Watford f 27 -22 19 LIKUR VEÐBANKA: Heimasigur (2,4) Jafntefli (3,3) Utisigur (3,1) Fyrri leikir: 19. ágúst 2006 West Ham - Charlton 3-1 02. apríl 2006 West Ham - Charlton 0-0 31. des. 2005 Charlton - West Ham 2-0 22. jan. 2003 Charlton - West Ham 4-2 ÁRANGUR LIÐANNA Charlton í vetur: Heimasigrar 40% Jafntefli heima 20% Töp heima 40% West Ham í vetur: Útisigrar 34% Jafntefli úti 18% Töp úti 48% Eggert Magnússon og West Ham United: uð-aktín Fallbaráttan ekki eina áhyggjuefnið GXTRA Glucosamine & Chondroitirt 60 töflur Heldur liöunum liöugum! fH) heilsa M haföu þaö gott Það eru spennuþrungnir dagar framundan hjá Eggert Magnússyni, eiganda West Ham United. í dag spilar liðið við Charlton á útivelli en báðum liðum er bráðnauðsynlegt að ná stigum í fallbaráttu ensku deildarinnar. En það er fleira sem Eggert þarf að hafa áhyggjur af. Enska knattspyrnusambandið mun ákveða í dag eða strax eftir helgina hvort refsa beri West Ham vegna kaupanna á Argentínu- mönnunum Javier Mascherano og Carlos Tevez. Þykir margt und- arlegt við hvernig þau kaup fóru fram gegnum þriðja aðila sem átti „réttinn” að leikmönnunum tveimur. Reglur sambandsins eru skýrar um aðkomu þriðja aðila að kaupum og sölum á leikmönnum og þykir æði margt vafasamt varð- andi West Ham. Til dæmis að West Ham, þrátt fyrir samning við þá tvo félaga, hafði engan rétt til mót- mæla ef fyrirtæki það er á réttinn hefði ákveðið að selja. Er mögulega hér komin ástæða þess hversu lítið Argentínumennirnir voru notaðir í vetur. Hefðu báðir staðið sig vel hefði enginn grætt á því nema við- skiptajöfrar þeir er réttinn eiga. Þeir hefðu þá báðir verið seldir þegar rétt verð hefði fengist, burt- séð frá óskum West Ham. West Ham getur verið sektað og jafnvel dæmt til að tapa stigum þyki sannað að reglur hafi verið brotnar. Þá gæti fyrst virkilega farið að kólna á gljáðum kolli Eggerts.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.