blaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 42

blaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 42
Fjör og fæða Alþjóðlega matarhá- tíðin Food & Fun fer fram samhliða Vetrarhátíð og munu meistarakokkar sýna listir sínar íporti Hafnarhússins í dag milli kl. 12 og 17. Mynd/ÁmiSxberg UM HELGINA Köntrí á Akureyri Köntrísveit Baggalúts skemmtir Akureyringum og nærsveitar- mönnum á Græna hattinum í kvöld. Á dagskrá verða lög af hljómdiskunum Pabbi þarf að vinna og Aparnir í Eden. Tón- leikarnir hefjast um kl. 22 og er aðgangs- eyrir 2200 krónur. Von í Vélsmiðjunni Hljómsveitin Von leikur fyrir dansi á skemmtistaðnum Vélsmiðjunni á Akureyri f kvöld. Frítt inn til miðnættis. Hláturjóga fyrir alla Hláturkætiklúbburinn verður með opinn hláturjógatíma í dag kl. 10:30 í sal heilsumiðstöðvar- innar í Borgartúni 24. Aðgangs- eyrir er 1000 krónur og eru allir velkomnir. 42 LAUGARDAGUR 24. FEBRUAR 2007 hel helgin@bladid.net Rokkdrottningar á Broadway Söngkonurnar Sigríöur Beinteinsdótttir og Bryndís Ásmundsdóttir túlka helstu perlur rokkdrottningarinnar Tinu Turner á Broadway í kvöld ásamt hópi valin- kunnra listamanna. blaðiö Steinunn og Laxness Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur stýrir stofuspjalli um skáldsöguna Heimsljós eftir Halldór Laxness á Gljúfrasteini á morgun, sunnudag, kl. 16. Hún mun einkum beina sjónum sínum að fyrsta hluta sögunnar, ' Kraftbirtíngarhljómi guðdómsins. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Tónleikar í Hafnarborg Guðlaugur Kristinn Óttarsson heldur tónleika ásamt níu öðrum hljóðfæraleikurum í Hafn- arborg á morgun, sunnudag, kl. 20. Leikin verða verk eftir Vivaldi, Bach og Charles Mingus auk tónverka Guðlaugs sjálfs sem verða í fyrirrúmi á tón- leikunum. Hátíðarstemning verður í Reykjavík um helgina Matur og menning um alla Reykjavík Söngtónleikar í Salnum Sópransöngkonumar Xu Wen og Natalía Chow Hewlett halda söngtónleika í Salnum í Kópa- vogi ásamt Guðnýju Guðmunds- dóttur píanóleikara í Salnum á morgun, sunnudag, kl. 20. Á efnisskránni eru Ijóðaflokkar eftir Mahler og Julian Hewlett og íslensk og erlend sönglög og aríur. Hljómsveitartónleikar Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur seinni hljómsveitartón- leika sfna á þessu starfsári í Neskirkju í dag kl. 17. Stjórn- andi er Gunnsteinn Ólafsson. Aðgangur er ókeypis. Franskur orgelleikari Franski orgelleikarinn Vincent Warnier heldur tónleika á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju á morgun sunnudag kl.17. Almennt verð er 2000 krónur en 1000 krónurfyrir félaga í Listvina- félaginu og 1200 krónur fyrir nem- endur og eldri borgara. Minningartónleikar Minningartónleikar um Svandfsi Þulu Ásgeirsdóttur sem lést í bíl- slysi í desember verða haldnir f Versölum, ráðhúsi ölfuss, á mánudag kl. 18. Á þeim degi hefði hún orðið sex ára. Meðal þeirra sem fram koma eru Lúðrasveit Þorlákshafnar og hljómsveitirnar Tilþrif, Touch og Corda, leikskólakór Bergheima, Leone Tinganelli og Guðrún Árný Karlsdóttir. Allir eru vel- komnir og aðgangur er ókeypis. Reykvíkingar og nágrann- ar þurfa ekki að láta sér leiðast í dag enda Vetrar- hátíð í algleymingi og margt um að vera víða í borginni. Þá er enn fremur franska menningarveislan Pourqoui pas? nýhafin að ógleymdri alþjóðlegu matarhátíðinni Food & Fun. Hún er í fullum gangi í dag og erlendir matreiðslumeistarar að störfum í eldhúsum nokkurra helstu veitinga- staða bæjarins. í dag milli kl. 12 og r7 gefst fólki einmitt tækifæri til að sjá meistarana leika listir sínar í porti Hafnarhússins við Tryggvagötu. Dionysos tryllir lýðinn Danshópurinn La Guardia Fle- menca verður með danssýningu á sama stað í kvöld kl. 21:30 og að dansinum loknum stígur franska hljómsveitin Dionysos á svið og skemmtir áhorfendum. Gömlu kartöflugeymslurnar í Ár- túnsbrekku fyllast lífi á Vetrarhátíð og þar fer fram fjölbreytt dagskrá í allan dag. Sýningarnar Ólátagarður og Dýrið í mér verða opnar þar milli kl. 14 og 21. Þá verða kvikmyndir sem Loftur Guðmundsson tók i Reykjavík árið 1944 varpað á vegg allan daginn. Ryþmísk áflog Dansleikhús með Ekka verður með uppákomu í kartöflugeymslun- um í tilefni af tíu ára afmæli sínu kl. 20. Á sama tíma hefjast þar tónleikar Flís tríós og Steintryggs sem standa til kl. 22. Borgarbókasafn býður upp á ljóðagöngu í Elliðaárdal kl.14 en þar hefur verið komið upp sértstakri ljóðasýningu. Úlfhildur Dagsdóttir og Jónína Óskarsdótttir leiða gesti um sýninguna og skáldin Einar Már Guðmundsson og Ingunn Snædal slást í för. Lagt verður af stað frá Raf- veituheimilinu. Söguslóðir Frakka Guðjón Friðriksson sagnfræðing- ur leiðir göngu um slóðir Frakka í Reykjavík og hefst gangan kl. 14 við Vesturgötu 2 (Ingólfsnaust). Gengið verður um miðbæinn auk þess sem ekið verður að Franska spítalanum og Höfða. Sérstök hátíðardagskrá fyrir eldri borgara fer fram í Tjarnarsal Ráð- hússins kl. 15 þar sem Gerðuberg- skórinn, Vinabandið, Sönghópur Árskóga, hagyrðingar og grínistar koma fram ásamt fleirum. Yngri kynslóðin fær aftur á móti eitthvað fyrir sinn snúð i Kjallaran- um í Hinu húsinu þar sem fjölmarg- ar efnilegar hljómsveitir troða upp kl. 18. Tónleikar í kartöflugeymslum Flís tríó ásamt Steintryggi kemur fram á tónleikum íkvöld kl. 20. Mynd/Kristinn Aðgangur er ókeypis á nær alla viðburði Vetrarhátíðar. Dag- skrána í heild sinni má sjá á vetrarhatid.is. Heimsmenning í Gerðubergi Alþjóðlegt andrúmsloft fyllir sali Gerðubergs í dag þar sem Heims- dagur barnanna verður haldinn há- tíðlegur í þriðja skipti. Þar fá börn og unglingar tækifæri til að kynna sér menningu frá öllum heimsálf- unum og taka þátt í fjölbreyttum listsmiðjum. Dagskráin hefst kl. 13 í samkomusalnum þar sem nemend- ur úr Háteigsskóla munu meðal ann- ars setja á svið leikrit. Klukkustund síðar hefjast listsmiðjurnar og tekur hver um 45 mínútur þannig að krakk- arnir geta tekið þátt í fleiri en einni. Guðrún Dís Jónatansdóttir verkefna- stjóri í Gerðubergi segir að smiðjun- um sé ætlað að höfða til breiðs hóps. ,Það sem er nýtt að þessu sinni er að nú erum við að reyna að fá ungling- ana með líka,“ segir Guðrún Dís en áður hefur dagskráin einkum verið miðuð við yngri börn. Óhætt er að segja að fjölbreytni ein- kenni listsmiðjurnar og geta krakk- arnir meðal annars lært að leika á ástralska frumbyggjahljóðfærið did- geridoo, kynnt sér arabíska stafrófið, smíðað víkingavopn eða búið til tæ- lenskar ávaxtaskreytingar. Einnig er boðið upp á fjölda danssmiðja meðal annars í afródansi, salsa, Bollywood, íslenskum þjóðdönsum og krump sem er nýjasti dansstíllinn frá Los Angeles. „1 lokin verður afrakstur af nokkrum smiðjum sýndur og við vonum að þar verði sannkölluð karni- valstemning þar sem allir koma og sýna hvað þeir eru búnir að læra,“ segir Guðrún Dís. Þeir sem ekki hafa áhuga á að taka þátt í smiðju ættu samt sem áður ekki að þurfa að láta sér leiðast því að ýmsar uppákomur verða í anddyri Gerðubergs og nóg að sjá og gera. ?r. Dansarfrá Balkanskaga Boöið verður upp á fjölda danssmiðja á Heimsdegi barna til dæmis í afródansi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.