blaðið - 28.03.2007, Page 3
blaðiö MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007
FERMINGAR 2007 ■ 3
Fermingarboðskort í gegnum Netið
Pósturinn hefur tekið upp á því
að bjóða önnum köfnum ferming-
arbörnum og foreldrum að senda
út boðskort í veisluna frá heim-
ilistölvum fjölskyldunnar. Sú
nýlunda var tekin í gagnið fyrir
rúmlega ári og er í sífelldri þróun,
bæði hvað varðar tækniatriði og
aukna þjónustu við notendur. Á
vefsíðunni www.postur.is er hægt
að hanna sitt eigið boðskort fyrir
hvers kyns veislu. Fyrst er forsíðu-
myndvalin.annað hvortúrmynda-
banka Póstsins eða úr einkasafni,
þá er texti boðskortsins settur
saman og loks er tilgreint hvert
boðskortið skuli senda. Að því
Tæknivæddar
fermingargjafir
Steingrímur Árnason, þróunarstjóri
Apple á íslandi, gefur blaðamanni
þær upplýsingar að vörumerkið
Ápple hafi verið til sölu á islandi
síðustu tvo áratugi. „Núverandi
Apple-fyrirtæki var þó ekki stofnað
fyrr en fyrir fjórum árum og hefur
síðan þá verið gríðarleg aukning
á eftirspurn eftir vörum þess."
Aðspurður hvaða tæknivæddu ferm-
ingargjafir séu vinsælastar bendir
Steingrímur á iPod sem kostar frá
tíu þúsund og Mac-Book-fartölvur
en þær kosta rúmlega hundrað þús-
und. „Það er varla hægt að taka
þátt í samfélagi ungmenna í dag án
þess að hafa aðgang að myspace-i
og MSN. Foreldrar sjá þess vegna
ágætis lausn í því að gefa fartölvur
í fermingargjöf, því börnin munu
eignast þær á endanum.”
[ dag eru fartölvur orðnar vinsælli
en borðtölvur og eru um 60% af
seldum tölvum frá Apple, sem er
með tvær verslanir hérlendis, í
Kauphallarhúsinu við Laugaveg og
í Kringlunni. „Varðandi fartölvurnar
má að sjálfsögðu benda á þann
nýja möguleika að hægt er að
keyra Windows-forritin öll í Apple-
tölvum. Sú nýjung var í raun síðasti
múrinn.”
íslendingar virðast hrifnir af vör-
unum frá Apple og fermingarbörnin
eru greinilega engin undantekning
en varðandi þau efni bendir Stein-
grímur á bransa-slagorð Apple-geir-
ans: „Once you go Mac, you don’t
go back.”
►
10f 14
NowPtaying
OaniCaUfomia
RedHotChiliPe
StadiumArcadii
búnu er hægt að skoða heildarút-
lit boðskorta á Netinu. Þar með er
hlutverki veisluhaldara lokið, því
boðskortið verður í framhaldi sett
í umslag, frímerkt og borið í hús
til veislugesta. Hægt er að skrifa
mismunandi texta fyrir hvert og
eitt boðskort, ef ólík skilaboð skal
senda til afabróður og vina.
Þessi aðgerð sparar án efa
mikinn tíma í annasömu undir-
búningsferli og eykur þægindi
auk þess sem forritið er auðvelt
í notkun og leiðir notendur skref
fyrir skref í gegnum framkvæmd-
irnar. Sífellt er verið að þróa tækni-
atriði en eins og staðan er núna er
hægt að velja um nokkrar stærðir
og leturgerðir boðskortanna. Lág-
mark er að panta 25 boðskort af
Netinu en fermingarbörn setja sig
venjulega aftast á útsendilistann
og fá innan nokkurra daga boðs-
kort í eigin fermingarveislu.
Tæknin látin vinna fyrir sig Getur
sparað mikinn tíma aö hanna og pahta
boðskortin í gegnum netið.
Fermingargjöf frá okkur:
Viö gefum 5.000 kr.
upp í fermingarrúm.
RÚM
Opið alla virka daga frá kl. 8-18 og á laugardögum frá kl. 10-14.
RB-rúm Dalshrauni 8 220 Hafnarfirði Sími 555 0397 rbrum@rbrum.is www.rbrum.is
RUM
Stofnað 1943
4 V
hm í 3VtfnS/(
Úrval fylgihluta:
Rúmteppi, púðar, pífur,
sænqurverasett, dýnuhlífar,
néttborð og fleira.
Eftir þínu höfði:
RB-rúmin og qaflar eru sérsmíðuð eftir þínum
óskum. Þú ræður lengd, breidd, hæð, fótum og
lit á gafli og botni.
RB-rúm er í heimssamtökunum ISPA, sem eru gæðsamtök fyrirtækja
sem sérhæfa sig í framleiðslu og hönnun springdýna.