blaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 10

blaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 10
10 • FERMINGAR 2007 MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 blaöiö Hollustu Mmsendingar heimí? Ávaxtabíllinn keyrir til heimila síðdegis á fimmtudögum www.avaxtabillinn.is Skartgripaskrín er góð gjöf Margar gerðir 0r£ingey Smáralind, sími 5288800, www.drangey.is k- iÉ*- Fermingarfræðsla: Séra Vigfús hefur staðið fermingarvaktina i 30 ár. FERÐATÖSKUR ÍÞRÓTTATÖSKUR BEAUTYBOX BAKPOKAR SEÐLAVESKI blaöi Auglýsingasíminn er 510 3744 Hefur fermt mörg þúsund íslendinga Fermingarbamið svaraði „yes Vigfús Þór Árnason, sóknar- prestur í Grafarvogskirkju, hefur fermt íslensk ungmenni í 30 ár. Hann stendur vaktina sem aldrei fyrr og leiðir stærsta söfnuð lands- ins en meðlimir hans eru um 20.000. „í ár fermast 316 börn i Grafarvogs- kirkju. Það er reyndar stórfrétt að segja frá því að nánast hvert einasta barn í 8. bekk í Grafarvogi fermist í einhverri þjóðkirkju, sem er óvenju- legt miðað við þéttbýli.” í vor verða 16 fermingar í Grafar- vogskirkju, tvær á hverjum helgum degi og er hver þeirra í umsjón tveggja presta en við kirkjuna eru starfandi fjórir prestar. Vigfús hefur verið lengi að og hefur að eigin sögn fermt mörg þús- und íslendinga. Finnst honum vorið einn skemmtilegasti tími kirkjuárs- ins vegna páskahátíðarinnar og ferminga. „Varðandi fermingarbörnin í heild, þá eru þau víðsýn, alveg ótrúlega jákvæð og einfaldlega skemmtileg. Þau vita alveg hvað athöfnin snýst um.” Vinnan fyrir fermingardaginn hefst strax í ágúst; setnar eru kennslustundir í fermingarfræð- unum, farið í fræðslu- og skemmti- ferð í Vatnaskóg auk þess sem ýmis verkefni eru unnin allt fram að vori. Þá er þreytt próf sem á að tryggja grunnkunnáttu í fermingarkverinu, en ef útkoma þess er eigi ásættan- leg eru fermingarbörn send í þar til gerða aukatíma. „Þegar ég fermdist, fyrir 46 árum, þá vissu fermingarbörn ekki næstum því jafnmikið og þau gera í dag,” segir Vigfús og minnir á að fermingar hafi í gegnum tíðina haft mikil og sterk áhrif á íslenskt þjóðlif. Aðspurður hvort hann haldi að ungmenni láti einungis ferma sig vegna gjafanna stendur ekki á svörum hjá Vigfúsi. „Ég held nú að fermingarbörn myndu ekki standa í vinnunni við ferminguna frá því i ágúst og fram á vor einungis vegna gjafanna, þó það sé að sjálfsögðu gaman að fá þær. Alveg eins og fólki finnst skemmtilegt að fá góðar gjafir í fimmtugs- eða sextugsafmælisgjöf. Við förum nú í gegnum þessi mál í JJ fræðslunni og börnin brosa og vita alveg hvað þau eru að gera.” Þegar Vigfús er inntur eftir eft- irminnilegu atviki á fermingarferl- inum minnist hann sérstaklega eins atviks. „Það átti sér stað þegar áhrifin frá enskri tungu leyndu sér ekki meðal yngri kynslóðarinnar. Þá spurði ég eitt fermingarbarnið hvort það vildi leitast við að gera Jesú Krist að leiðtoga lífs sína. Og það svaraði, mjög ákveðið í bragði: „yes” svo ómaði um alla kirkju. Að sjálfsögðu skelltu margir kirkju- gestir upp úr en fermingarbarnið sá alls ekki hvað var svona skondið við tilsvar þess.” Nú hafa miklar öfgar sprottið upp af markaðnum í sambandi við gjafir og útlitsfegranir fermingarbarna; brúnkumeðferðir, rándýrar gjafir og svo framvegis. Hvað ætli Guðs mönnum þyki um það? „1 þeim efnum má ekki síður benda þeim eldri á að kunna sér hóf. En hingað til hefur nú reynst allra best að fara milt í þau efni,” segir séra Vigfús að lokum, sem hefur farið í ansi margar fermingarveislur á ævinni. 1 ássLil ■ 20 % fermingarafsláttur á öllum trönum og málarasettum til páska LITIR OG FOMPUR Skólavörðustíg 12 Reykjavík og Smiðjuvegi 4 Kópavogi HPI Firestorm ÍOT Nýr og öflugur bíll frá HPI Tómstundahúsið Nethyl 2, sími 5870600, www.tomstundahusid.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.