blaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 17
blaðið MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007
Litadýrðin og föndrið
ríkjandi Fólk frakkara við
að gefa sköpunargleðinni
lausan tauminn.
Litadýrð og föndur
vinsælt á ný
Það er óhætt að segja að und-
anfarin ár hafi borðskreytingar
í fermingum verið almennt séð
frekar fábrotnar. Nú virðist sem
litadýrðin sé á nýjan leik að ná fót-
festu í borðskreytingum. Heiðrún
Björk jóhannsdóttir, innkaupa-
stjóri hjá Blómavali, segir að und-
anfarið hafi fólk verið að leyfa sér í
sífellt meira mæli að nota ímyndun-
araflið og sköpunargleðina þegar
kemur að borðskreytingum fyrir
ferminguna.
Allskonar borðskraut er nú orðið
algengt á veisluborðunum og Heið-
rún segir að það sé mikil breyting
frá því sem áður var. „Það er allt
búið að vera svo ofboðslega einfalt
undanfarin ár en nú er dúlleríið að
koma aðeins meira inn. Fólk er að
setja allskonar fiðrildi, fjaðrir og
smáskraut á borðið." Fólk er því
farið að leyfa sér mun meira föndur
við veisluborðið en áður tíðkaðist.
í gegnum tíðina hefur litadýrð í
islenskum fermingum verið frekar
fábrotin. Heiðrún segir að nú sé
það orðið algengt að fólk blandi
saman litum eða litatónum við
fermingarveisluna.
„Fólk er ekki feimið við að blanda
saman litum, hér áður fyrr var alltaf
einn og sami tónninn í gegnum
ferminguna." Hún segir að vinsæl-
ustu litirnir séu sem fyrr blátt fyrir
drengi og bleikt fyrir stelpur en þó
eru margar litablöndur einnig vin-
sælar. „I strákafermingunum eru
helstu litirnir blátt og limegrænt,
jafnvel blátt, limegrænt og túrkis-
blátt. Hvað stelpurnar varðar þá
er þetta mjög mikið bleikt og svo
bleikt og appelsínugult. Svo hefur
líka bleikt, rautt og appelsínugult
verið vinsælt.“
Heiðrún segir að þó litadýrðin
og föndrið sé vissulega áberandi
um þessar mundir þá sé það síður
en svo ríkjandi. „Einfaldleikinn er
vissulega ennþá til staðar."
ywaö \5Ú 9enr
sVóptir
30.00°
&*»**?*
KAorBooV.íarto
,a trte\ra 'U"
t\\ vtöbótar \
ltttakenduro
pöa 'Pod sVlV
Landsbankinn
&|ÉÍ!pS.
Wr-rrr,
rrrr,rm;r
■M
; v: A-,1,' 1 ' '.' v .-.
■
www.mjolka.is
Veldu þann sem þér þykir bestur!
Q ÁN BRAGÐEFNA Q ÁN GELATÍN* Q ÁN ROTVARNAREFNA
* i8% Sýrður rjómi