blaðið - 28.03.2007, Síða 14
14 • FERMINGAR 2007
MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 MaðÍA
ferminqar-
gjöf!
Seðlaveski úr
leðri með
nafngyllingu
fyrir stelpur
og stráka.
persónuleg og nytsamleg gjöf
www.drangey.is
Smáralind 528 88 00
NYKOMIN skart
gripaskrín sem
eru tilvalin til
fermingargjafa
Töskur i miktu
urvati sem
aldrei fyrr!
Reyk|avft: Blórmgdllerv Hagamd 67. Hliðarblóm Mlklubraut 6B. VrllatuyBBoch Kringlan. Tekk Kristall Kringian.
Blómasmiiljan Grimsbæ, Blómin i banum Suðurlandsbraul 10. Dalia Fíkaleni 11. Ís-Blóm Háaleybsbraul 58-60.
Brerdholtsblóm Álfabakka 14b. Blómav. Michelsen lóuhólum 2-6. RS - blóm HvetafoW 1-3.
SIA-buóin Laugavegi 86-94
SeHjarnarnes: Blómastotan Eiðistorgi Kópavogw: 18 Rauóar róslr Hamraborg 3. Tekk Company Bæjarlmd 14-16
Garóabar Forný Wnbúó 1 HalnartjórBur: Blóma og Kaltí Reykjavikuiv 60 Mostellabar. Hlln 8lómahús
Reykjanesbzr: draumalan Tjarnargala 3.
Úra og skartgr.Guóm.Hannab Akranesi/ llmur StykkishólmV Maria GrundalpHrund Ötalsvik/ Blómaturninn ísalj./
Blóma og gjatab SauðárkU Fyrarbúðm SigluljY Blómabúó Akureyrar/ Fsar Húsavrk/ Húsgagnaval Hóln/ Gamla-
búóin HvolfsvellV Blómablig Hverageiói/ Blómast.Brynju Porláksh./ Sveitab. Sóley Tungu Gaulvetabæ/ Callas
Vestm.eyjum.
Pingvallakirkja:
Kirkja allra
landsmanna
Þingvellir eiga fastan sess í
hjörtum landsmanna. Segja má
að Þingvellir séu fæðingarstaður
þjóðarinnar og ber fólk því sterkar
tilfinningar til staðarins, óháð
aldri, kyni og trú. 1 gegnum tíðina
hefur það verið vinsælt hjá fólki að
skíra, ferma eða giftast í Þingvalla-
kirkju, enda engin furða því það
hefur alltaf verið viss dýrðarljómi
yfir hinni fábrotnu sveitakirkju að
Þingvöllum.
Þetta árið er fyrirhuguð ein
ferming í Þingvallakirkju. Guð-
rún Kristinsdóttir, yfirlandvörður
á Þingvöllum, segir að fermingar
séu ekki tíðar í kirkjunni vegna
smæðar sóknarinnar. „Það er þó
alltaf svolítið um það í Þingvalla-
kirkju að fermd séu börn sem eiga
heima erlendis. Það sama gildir
einnig um brúðkaup og skírnir.
Þingvellir eru á vissan hátt nokk-
urs konar heimastaður í hugum
margra og kirkjan er það líka.
Fyrir utan auðvitað mikla fegurð
bæði kirkjunnar og staðarins."
Athvarf íslendinga í útlöndum
Kristján Valur Ingólfsson, sókn-
arprestur á Þingvöllum, segir
að kirkjan hafi um árabil verið
nokkurs konar athvarf þeirra Is-
lendinga sem búsettir eru erlendis
og tilheyra því ekki neinni ákveð-
inni sókn. „Ég mun ferma pilt á
hvítasunnunni sem búsettur er
í London og fyrir tveimur árum
fermdi ég stúlku sem er búsett í
Hollandi. Islendingar sem búa er-
lendis og eru með lögheimili þar
eru kannski ekki með nein bein
tengsl við ákveðinn stað hér á ís-
landi og hafa því sérstaka tilfinn-
ingu fyrir Þingvöllum sem helsta
helgistað þjóðarinnar." Kristján
bætir því við að það séu ekki bara
sóknarlausir íslendingar sem fái
athvarf þarna. „Það kemur fyrir
að fólk fær að koma og ferma á
Þingvöllum þótt það eigi kost á því
að gera það annars staðar og ég
hef auðvitað fermt undir þannig
kringumstæðum. Svo hafa aðrir
prestar fengið að koma hingað til
að ferma.“
„Hún hefur sér-
stöðu að því leyti
að Þingvellir eru
helgistaður allr-
ar þjóðarinnar
þó að menn séu
ekki endilega
kristnir eða í
kirkjunni. Þetta
er þjóðarhelgi-
dómur á helgasta
stað þessa lands."
Hann segir að í flestum tilfellum
sé það vegna þess að fólk hefur ein-
hver sterk tengsl við Þingvelli.
Kristján segir að Þingvallakirkja
sé á margan hátt sérstök kirkja.
„Þingvallakirkja hefur algjöra sér-
stöðu meðal kirkna á Islandi af
því að hún stendur á Þingvöllum. 1
rauninni er ekki aðalmálið hvernig
hún lítur út eða hvernig hún er
heldur það að hún skuli standa
þarna. Hún hefur sérstöðu að því
leyti að Þingvellir eru helgistaður
allrar þjóðarinnar þó að menn séu
ekki endilega kristnir eða í kirkj-
unni. Þetta er þjóðarhelgidómur á
helgasta stað þessa lands.“
Til dæmis eru ásatrúarmenn
bundnir sterkum tengslum við
Þingvelli og Kristján segir að þó
svo að ásatrúarmenn deili kannski
ekki kirkjunni með honum deili
þeir þó ástinni á staðnum.
Sérstök kirkja
Kristján hefur á sínum langa
prestsferli starfað ansi víða. Hann
var um árabil í Skálholti, var á ísa-
firði, Raufarhöfn, Grenjaðarstað og
starfaði lengi erlendis. Um þessar
mundir býr hann í Hallgríms-
kirkjusókn og þjónustar stundum
þar. Hann segir að á vissan hátt
skipti það engu hversu stór eða lítil
kirkjan er heldur sé það samhugur-
inn og tilfinningin í kirkjunni sem
skipti öllu máli. Hann bætir við að
vissulega sé Þingvallakirkja frá-
brugðin öðrum kirkjum sem hann
hefur starfað í. „Það er hins vegar
þannig að það er sannarlega öðru-
vísi að vera prestur á Þingvöllum
heldur en annars staðar. Það er
líka þannig að fólkið sem mætir
á Þingvöllum er í annars konar
stemningu en það sem þú hittir
fyrir utan Hallgrímskirkju. Það
er bara þannig að staðurinn talar
við íslendinga með sérstökum
hætti. Það er engin spurning og
mér þykir mjög vænt um að fá að
vera þarna."