blaðið - 28.03.2007, Page 21
blaðið MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007
FERMINGAR 2007 • 21
Guðrún Gísladóttir, þjón
ustustjóri SPK SPK mun
gefa öllum 14 ára börnum
ÍKópavogi reiknivél.
Sparisjóður Kópavogs:
Gefur öllum 14 ára börnum
í Kópavogi reiknivél
Það er ekki ofsögum sagt að á fjór-
tánda ári standi unga fólk á vissum
tímamótum. Það sér fyrir endann
á skylduskólagöngu og þau tvö ár
sem eftir eru í skyldunáminu eru
gríðarlega mikilvæg hvað framtíð-
ina varðar. Á þessum tímamótum
er mikilvægt að haga peninga-
málum af skynsemi svo allir fram-
tíðardraumar geti ræst. Hægt er að
spara reglulega með því að leggja
hluta af vasapeningunum inn á
sparnaðarreikning og þannig auka
sparifé án mikillar fyrirhafnar.
Allur sparnaður leggur góðan
grunn að varasjóði fyrir framtíð-
ina. Að sögn Guðrúnar Gísladóttur,
þjónustustjóra SPK í Hlíðasmára
19, hentar Framtíðarsjóður mjög
vel fyrir börn á þessum aldri.
Framtíðarsjóður ber hæstu vexti
almennra innlánsreikninga og
engin lágmarksupphæð er á inn-
borgun. Reikningurinn er verð-
tryggður og bundinn til 18 ára
aldurs. Á heimasíðu sparisjóðsins,
www.spk.is, er hægt að reikna út
hve mikið ungmenni geta sparað
með Framtíðarsjóði Sparisjóðsins.
„Sjóðurinn gæti orðið lykillinn að
fyrstu íbúðinni, bílnum, drauma-
ferðinni eða skólagjöldum,” segir
Guðrún.
Ásamt því að bjóða hagstæða
vexti leggur Sparisjóður Kópavogs
sitt af mörkum til að styrkja fjár-
málavit og menntun ungra Kópa-
vogsbúa með því að gefa öllum
börnum á fermingaraldri í Kópa-
vogi reiknivél. Það eru allmörg ár
síðan SPK gaf fyrstu reiknivélina
til fermingarbarns í Kópavogi. í
ár verður engin undantekning á
því, öll 14 ára börn, hvort sem þau
kjósa að fermast eða ekki, fá reikni-
vél að gjöf frá SPK. Sparisjóðurinn
býður öllum börnum í Kópavogi
sem fædd eru árið 1993 að koma
í heimsókn að Hlíðasmára 19 eða
á Digranesveg 10 og nálgast sína
reiknivél. Það er von Sparisjóðs
Kópavogs að þessi gjöf muni koma
til með að nýtast vel í námi á kom-
andi árum.
HÖNDLAÐU
HAMINGJUNA!
Á mGOTGsÁmimn
texti og tcikningar eftlr
ANDREW MATTHEWS
kðlMid !MÍMhé«LftiuM lurn illvtMÍIu « kaming|MMi - Ul utg 20*<) lOllOVt VOlt Ht Akl!
Petta er fermingargjöfin í ár,
ef þú vilt hjálpa til við að byggja upp og bæta sjálfsmynd unglingsins!
Fæst í öllum helstu bókabúðum,
einnig er hægt að panta á www.happy.is
LENOVO VIQQ
INTEL CORE 2 DUO
I C3 E3 MINNI
12" TRT BREIÐT JALDSSKJÁR
VEFMVNDAVÉL
IQO C3B HARÐUR DISKUR
FINGRAFARASKANNI
RYNDD - AÐEINS I.B KO
VERÐ 149.500 KR.
VIBRANT VIE W TÆKNI
NÝHERJI
Nýherji hf. Borgartúni 37 105Reykjavik simi 569 7700 fax 569 7799 www.nyherji.is