blaðið - 29.03.2007, Qupperneq 10

blaðið - 29.03.2007, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 29. MARS 2007 blaðið UTAN ÚR HEIMI PAKISTAN (J Rændu eiganda vændishúss Tugir ungra kvenna, sem allar sækja trúarskóla, réðust inn í vændishús í Islamabad, höfuðborg Pakistans, í gær og kröfðust þess að starfseminni yrði hætt þegar í stað. Eftir að eigandinn hafnaði kröfu kvennanna var honum rænt. Fimmtíu drepnir í Talafar Uppreisnarmenn drápu allt að fimmtíu manns í hverfi súnníta i borginni Talafar í norðvesturhluta Iraks í gær. Talið er að drápin hafi verið hefnd vegna sprenginga í einu sjítahverfi borgarinnar á þriðjudaginn þar sem 55 manns létust. IT!> Sannað að sjóliðar voru á írösku hafsvæði Breska varnarmálaráðuneytið segir að gervihnattahnit sýni að bresku sjóliðarnir fimmtán hafi í raun verið 1,7 sjómílur innan írösku landhelginnar þegar þeir voru teknir höndum af írönskum hermönnum á föstudaginn. Utanríkisráðherra Breta sagði í gær að Bretar væru hættir öllum tvíhliða samskiptum við Irana. Ballerínu skór Litir: Hvítt, svart, silfur, gyllt og Leopard. Verð 3995 íPaúnái ATH! opið til kl 21:00 fimmtudag Mikið úrval af heilsuskóm og vinnufatnaði ... Þegar þú vilt þægindi Leðurskór með loftpúðum fást í 3 litum, Svart,brúnt,hvítt Verð Kr. 5.900.- Síðumúli 13 sími 5682878 www.praxis.is SMÁAUGLÝSINGAR KAUFW/SEUA 5103737 blaöiö Nígería: Létust í olíubruna Rúmlega áttatíu létust og tuttugu slösuðust alvarlega þegar sprenging varð í olíuflutninga- bíl í norðvesturhluta Nígeríu á þriðjudaginn. Fórnarlömbin voru að ná sér í olíu eftir að 33 þúsund lítrar af olíu láku út þegar bíllinn valt á hliðina. Að sögn yfirvalda voru flest fórnarlömbin svo illa farin að ekki var nokkur leið að bera kennsl á þau. Slys sem þessi eru mjög algeng í Nígeríu, en fleiri hundruð manna hafa látist eftir að hafa reynt að ná olíu úr sprungnum olíuleiðslum á síðustu mánuðum. Þrátt fyrir að Nígería sé mesti olíuframleiðandi Afríku er olíu- skortur algengur í landinu vegna spillingar og slæmrar stjórnunar. Bjarmaland * ferðaskrifstofa þekking reynsla fagmennska Við þökkum frábærar viðtökur á Rússlandsferðum „Maíkvöld í Moskvuborg 07" tveir vorhátíðisdagar í Moskvu & Pétursborg 30. apríl - 11. maí „Keisaraleiðin" Helsinki - Pétursborg og sigling til Moskvu 20. júní - 2. júlí „Frá Tallinn til Pétursborgar" 17. - 28. júií „Moskva og Baikalvatn í A - Síberíu" einstök náttúrufegurð 6. - 18. ágúst „Moskva - Astrakhan" siglt tll Kaspíahafs með viðkomu í hinnl sögulegu Stalíngradborg 10. - 24. sept Farþegar í „Maíkvöld í Moskvuborg '07" skili pössum laugardag 31. mars frá kl. 15:30 í MÍR salnum Hverfisgötu 105, l.hæð (Menningartengsl íslands og Rússlands). Kaffiveitingar og ferðakynning kl. 16:00, allir velkomnir. Athugið að greiðsla staðfestingargjalds tryggir aðgang í ferðirnar. Fararstjóri er Haukur Hauksson, magister frá Moskvuháskóla sem hefur 17 ára reynslu á svæðinu, útskrifaður úr Leiðsöguskóla íslands í M.K. Hann talar rússneskuna sem innfæddur og leiðsegir á íslensku. Saga, menning og gleði í öndvegi „...metnaðarfyllstu og vönduðustu ferðir sem í boði eru". Sendum gögn í pósti hvert á land sem er! Komdu með í Bjarmalandsför! Ferðaskiilstofa www.austur.com bjarmaland@strik.is moskva@torg.is Leitið nánari uppi. hjá Hauki Haukssyni í sima 848 44 29 Haukur Hauksson leiðsögumaður iWdkPlioti-AFP Hélt 32 börnum sem gislum Gíslatökumaðurinn krafðist þess að stjórnvöld bættu úr aðstæðum I® barna í fátækrahverfum Maniia. Gíslatökumál á Filippseyjum: Hélt börnum sem gíslum Gaf sig fram eftir tíu klukkustundir Önnur gíslataka mannsins Eftir Atla ísleifsson atlii@bladid.net Forstöðumaður dagheimilis hélt 32 börnum og tveimur kennurum sem gíslum í langferðabíl í Manila, höfuðborg Filippseyja, í gær. For- stöðumaðurinn Jun Ducat sagðist með gíslatökunni fara fram á að bætt yrði úr aðstæðum þeirra 145 barna sem sóttu dagheimili hans í einu fátækrahverfi borgarinnar, en langferðabílnum var komið fyrir við tröppur ráðhússins í Man- ila. Mikill mannfjöldi safnaðist saman við ráðhúsið þegar leið á daginn, þar á meðal áhyggju fullir foreldrar barnanna. Börnunum var sleppt tæpum tíu tímum síðar, þegar Ducat og aðstoðarmaður hans gáfu sig fram við lögreglu. Börnin voru upphaflega á leið í vettvangsferð þegar gísla- tökumennirnir beindu bílnum að ráðhúsinu. Þeim skila- boðum var komið til lögreglu að þeir væru með riffil, skammbyssu, tvær handsprengjur og tveggja daga birgðir af mat. Þegar nokkrar klukkustundir voru liðnar af gíslatökunni gekk þingmaðurinn Ramon Revilla um borð í bílinn og reyndi að fá Ducat til að gefa sig fram. Eftir viðræður við lög- reglu samþykkti Ducat að sleppa börnunum nokkrum klukkustundum síðar, gegn því að lögreglumenn héldu á logandi kertum þegar börnunum yrði sleppt og að fjölmiðlum yrði frjálst að fjalla um gíslatökuna. Sumir foreldrar barnanna neituðu að fordæma gjörðir Ducat. „Hann er góður maður. Ég er handviss um að hann muni ekki meiða sex ára I dóttur mína,“ sagði Jojo Abuyan,| faðir eins barnsins, meðan á gísla-l tökunni stóð. Alfredo Lim, fyrrum lögreglu-| stjóri Manilaborgar, sagði að | Ducathefðiáðurstaðiðísvipuðum | aðgerðum til að vekja athygli á mál- stað sínum. Lim sagði hann I hafa tekið tvo presta I sem gísla með gervi-| handsprengjumárið f 1989, þegar hann átti í deilu um byggingarrétt í | borginni. OLYMPUS FE-210 7.1 mitljón pMar • 3x aftfáttartinja (38-114mm) Stór 6,4cm (2.5') LCD sk|ár • 15 handtisgar tókustillingar ■ Tekur nsrmyndir (macro) altt nióur aó 5 cm fjartægð Kr. 15.900 SHARR XL-MP2H • Geislaspilart, útvarp og kassettutækl ■ Spilar MP3/WMA, CD-R/RW ■ Fyrirferöalttil og smekklega hónnuð stsða - Magnari: 2 x 5W RMS • AM/FM útvarp meö RDS • Vekjaraklukka • Tónjafnari • Elnföld og þægiteg fjarstýring Kr. 12.900 5AMSUNO YP-Z5F Frábærir MP3 spilarar - flottir, vandaðir og óflugir. • 43 klst. rafhlóðuending ■ Ltta skjár • 4 litir - svartur, hvítur, silfur, bleikur • 1 GB = 14.900 kr. •2 GB = 19.900 kr. • 4 GB = 27.900 kr. Frá kr. 14.900 Fermingargjöf ____ frá Ormsson I hljomar vel. 1»»^ ORMSSON ELLEFU VERSLANIR OG UMBOÐSMENN UM LAND ALLT

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.