blaðið - 29.03.2007, Side 29
blaðið
FIMMTUDAGUR 29. MARS 2007
37
■■n
Sjópottur í Laugardal
I Laugardalslaug er nýbúið að
koma upp heitum potti sem fylltur
er með 40 gráða heitum sjó úr bor-
holu Orkuveitu Reykjavíkur við
Laugarnes. „Fyrir nokkrum árum
var lögð sjólögn úr Laugarnesinu
upp í selalaugina í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum. Við fórum í
samstarf við Orkuveituna og þeir
aðstoðuðu okkur við að koma af-
leggjara úr lögninni inn í laugina,“
segir Logi Sigurfinnsson, forstöðu-
maður Laugardalslaugar.
Sjórinn fer í gegnum öflugan
hreinsibúnað og er hitaður áður
en honum er veitt í pottinn sem
er úr plasti til að koma í veg fyrir
tæringu af völdum salts. Svipaður
pottur er í betri stofunni í World
Class en hann er innandyra og veit
Logi ekki um annan slíkan pott
undir berum himni.
Potturinn var tekinn í notkun
fyrir nokkrum dögum og hefur
slegið í gegn að sögn Loga.
„Fólk talar mikið um hvað þetta
er þægilegt og hvað húðin sé góð
á eftir og líkar þetta vel. Ef fram
heldur sem horfir þá þurfum við
að bæta öðrum við því að hann
er stöðugt stútfullur. Við ætlum
aðeins að sjá hvort nýjabrumið
fer af þessu. Annars þurfum við
að íhuga alvarlega að bæta öðrum
við,“ segir hann.
„Gárungarnir, þeir allra hörð-
ustu sem eru búnir að vera í pott- kominn tími á að fá þetta í laugina
inum frá því að hann var opnaður, líka. Það er alla vega hugmynd,'
hafa verið að tala um að það sé segir Logi að lokum.
3arins
Þrýstihópar áhrifamiklir
„Ég tók dæmi af þrýstihópum
framleiðenda, og þá átti ég frekar
við lobbýismann í Bandaríkjunum
en Mjólkurdagsnefnd eða eitthvað
slíkt, sem hugsa meira um hag
sinna umbjóðenda en lýðheilsu.
Samtök sykurframleiðenda vilja
meina að ekki hafi verið sýnt fram
á nein tengsl milli sykurs í matvæl-
um og offitu og óhollustu. Það eru
náttúrlega bara þeirra rannsóknir
sem má algerlega vefengja. Hins veg-
ar tók ég dæmi af markaðssetningu
gagnvart börnum en óhollum mat
er aðallega haldið að þeim. Það er
kannski líka á jaðrinum yfir hvað
er siðferðilega rétt þó að það brjóti
ekki endilega í bága við lög,“ segir
Friðrik að lokum.
Nautakjöt og
sæðismyndun
Hætt er við því að mikil nautakjöts-
neysla bandarískra kvenna meðan
á meðgöngu stendur komi niður á
sæðismyndun sona þeirra þegar
þeir vaxa úr grasi.
Þetta eru niðurstöður rannsókna
vísindamanna við læknadeild Roc-
hester-háskóla sem birtar voru
fyrr í vikunni. Vísindamennir telja
að hugsanlega sé við skordýra-
eitur, hormón og aðskotaefni (
nautgripafóðri að sakast.
Efni geta safnast saman í fitu dýr-
anna sem éta fóðrið og þeim eru
jafnframt reglulega gefin hormón
til að auka vöxt þeirra.
Rannsóknirnar leiddu í Ijós að hjá
uppkomnum sonum mæðra sem
neyttu mikils af nautakjöti (meira
en sjö nautakjötsmáltíða á viku) á
meðgöngu var sæðismagn 24,3%
lægra en að meðaltali.