blaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 24
32
FIMMTUDAGUR 29. MARS 2007
blaðið
48k
48k@bladid.net
Kílóbæt
f
f
A>j.nijn.iy!i',i
Fullt af litum
ZX Spectrum var fyrsta fjöldaframleitfda breska einkatölvan. Hún kom á markað
árið 1982. Helsti keppinautur hennar var hin ameríska Commadore64. Nafnið
Spectrum átti að undirstrika litaskjá vélarinnar. Tölvan var vinsæl leikjavél og
voru framleidd hátt í 14.000 forrit fyrir hana, mestmegnis leikir.
Raftækjaeftirhermur skjóta upp kollinum:
MILLJÚN DOLLARA FERÐAVÉL Breska
fyrirtækið Luvaglio hefur nú líklegast fram-
leitt dýrustu ferðatölvu í heimi. Vélin státar
af 17" LED upplýstum skjá, Blu Ray-drifi,
120gb flash hörðum diski og innbyggðum
skjáhreinsibúnaði.
Vélin er svo skreytt
með fágætum
gimsteinum og
mun komatil með
að kosta hátt í 70
milljónir.
ÞRIÐJA HÖNNUNARSVÍTAN I vikunni
kynnti Adobe-fyrirtækið nýjan Creative
Suite 3 forrita pakka. Hafa öll forritin eins
og Photoshop, lllustrator og InDesign
fengið stórar uppfærslur,
ásamt því að forritin
sem Adobe eignaðist
frá Macromedia eins
og Dreamweaver og
Fiash, verið samhæfð
öðrum Adobe-forritum.
Makkar fá núna fuil-
kominn stuðning fyrir
Intel-örgjörva sem
mun gleðja margan
Makkamanninn.
EPLA-SJÓNVARPIÐ HAKKAÐ AppleTV
fór í sölu í Bandaríkjunum nú í vikunni.
Tækið gerir manni kleift að streyma hljóð
og vídeó úr tölvu í sjónvarp. Tækið spilar
þó ekki allar tegundir vídeó-skráa, en þaö
leið ekki á löngu þar til tækið var „hakkað"
til að spila fleiri tegundir skráa. Ferlið fyrir
það þykir þó
með ein-
dæmum .
flókið.
PS3 HJÁLPAR AÐEINS TILI nýjustu upp-
færslu Playstation 3-stýrikerfisins kemur
forrit sem kallast folding@home. Forritinu
er ætlað að aðstoða við leit lækninga
á sjúkdómum á borð við
Alzheimers. Forritið sækir
gögn á Netinu, reiknar
og sendir svo niðurstöð-
urnar út. PS3 er strax
komin átopp 10 lista
yfir afkastamestu tölv-
urnar, á aðeinsfáeinum
dögum.
SAMSUNG MINNKAR FLÖGURNAR Sam-
sung kynnti um daginn nýja 8,4 megapixla
CMOSflögu. Hún er minni og þarfnast
minni orku en sambærileg-
ar CMOS- og CCD-flögur.
Nýja flagan gerir það
mögulegt að hafa t.d.
öflugri myndavélar í far-
símum, ásamt því sem
rafhlöður símans endast
mun lengur.
SPILAKASSAR ERU EKKI ALVEG
DAUÐIR Japanski tölvuleikjaframleið-
andinn Namco stendur nú í þróun næstu
kynslóðar af spilakössum, en spilakassar
eru enn mjög vinsælir í
Japan. Namco hefur
ákveðið að notast
við vélbúnað byggð-
an á PS3 í kassana.
Fyrsti leikurinn sem
kemur verður að öll-
um líkindum Tekken
6 og mun nýr Time
Crisis-leíkur fylgja
I skömmu seinna.
Treysti of mikið á tæknina
Tæknin er ekki alltaf það allra
besta sem völ er á. Fólk hefur í
síauknum mæli verið að leggja
meira og meira traust á tæknina,
stundum það mikið traust að
það tekur frekar mark á tækninni
en sinni eigin dómgreind. Bresk
kona á þrítugsaldri ætti virkilega
að fara að athuga sinn gang eftir
að hún ók rándýrum Mercedes
Benz SL500 út í á fyrr í mánuð-
inum. Þetta óhapp er hægt að
rekja til þess að konan tók frekar
mark á GPS-leiðsögutækinu í
hinum fokdýra Benz en að treysta
hinum fjölmörgu skiltum sem vör-
uðu við því að vegurinn væri ekki
hæfur vélknúnum ökutækjum
Konan barst með bílnum um
200 metra niður eftir ánni en var
þá bjargað af bónda sem var í
grenndinni. Hin 12 milljóna króna
Benz-bifreið slapp hins vegar
ekki eins vel þar sem hún náðist
ekki úr ánni fyrr en eftir viku og
var þá afskrifuð sem ónýt. Það
er alveg spurning hvort fólk ætti
ekki að horfa aðeins betur á veg-
inn heldur en að glápa á leiðsögu-
tækið.
Árás klónanna
Eftir Elías R. Ragnarsson
elli@bladid.net
Með vinsælum vörum koma óvin-
sælar eftirhermur. Alveg eins að öllu
leyti nema fyrir smávægilegar útlits-
breytingar og mikinn gæðamun.
Apple-tölvurisinn er oft fórnarlamb
eftirhermu-fyrirtækja, þá sérstak-
lega iPod-spilarinn. Frægt er kæru-
mál Apple gegn fyrirtækinu LuxPro
sem gaf út SuperShuffle-spilarann
örfáum vikum eftir að Apple gaf út
iPod Shuffle. Ekki var nóg með að
spilarinn væri alveg eins, heldur var
auglýsingaherferð LuxPro
nánast alveg eins
og auglýsingar
iPod Shuffle
Eftir lagabar-
áttu við Apple
var hönnun
s p i 1 a r a n s
breytt lítillega
og nafninu einn-
ig í SuperTangent.
Meizu er annað fyrirtæki sem hef-
ur gert það gott með eftirhermum.
Þeir ganga þó ennþá lengra, því spil-
arinn þeirra „Meizu MiniPlayer" hef-
ur verið í framleiðslu um nokkurn
tíma. Þegar Apple kynnti iPhone-sí-
mann liðu aðeins nokkrar vikur þar
til Meizu kynnti M8 MiniOne, sem
er nánast alveg eins og iPhone í út-
liti. Hvorki iPhone né M8 eru komn-
ir á markaðinn en tilraunir Apple til
að banna söiu hans ganga illa. Sam-
i kvæmt Meizu
Lhermdu þeir
" bara smá“ eftir
iPhone. Það er far-
ið að verða
algengara
að fyr-
i r t ækin
selji svokall-
aða Apple iP-
hone. Nú þegar
eru nokkur dæmi
þar sem gengið er
svo langt að stela
bakgrunnum og
íkonum úr MacOS
X-stýrikerfinu og setja í símana.
Þó er meira af eftirhermum sem
eru líkar en þó auðsjáanlega eftir-
hermur. Apple-merkið snýr öfugt
eða er með tvö lauf, svo eru breyting-
ar á nöfnum sem geta oftar en ekki
hljómað hálfkjánalega, eins og til
Gígabæt
dæmis iBob nano.
Apple er þó langt
frá því að vera eina fyr-
irtækið sem hermt er
eftir. Stuttu eftir að Nok-
ia kynnti 7260 tískusí-
mann, kom á markaðinn
sími sem var nánast alveg
eins. Hann var þó kallaður
MP4 7260. Eftirhermufram-
leiðendur auglýsa gjarnan
tækin með mögu-
leika á afspilun
Mp4-skráa. Eða
einfaldlega kalla tækið
MP4, hvort semþað spil-
ar slíkar skrár eður ei.
Gjarnan er hermt eftir
Razr-símum Motorola
og Walkman-símum
SonyEricsson, sem þá
eru auglýstir sem Mp4-
símar. Leikjatölvur eru
einnig klónaðar. Sony
PSP, Gameboy og Nin-
tendoDS eru mjög
vinsælar, hins vegar
spila þessar vélar
náttúrlega enga leiki, nema kannski
innbyggðan Tetris-leik.
Þessi iðja er ólögleg um mestallan
heim, hins vegar eru höfundarrétta-
lög víða i Austurlöndum ónákvæm.
Því er hægt að framleiða þessar vör-
ur og dreifa, án þess að fyrirtækin
Mikil litadýrð Þessir auglýsa sig
bara sem iPod Mini, samt eru þeir
augijósiega frábrugðnir þeim up-
prunalegu
sem hermt er eftir geti nokkuð gert
í því. Til dæmis hefur Apple tapað
lögsóknum vegna iPod-klóna. Ein-
hver dæmi hafa komið upp um sölu
klóna í Evrópu, þar á meðal hér á Is-
landi, þegar reynt var að flytja inn
iPod-miniklóna. Þó er lítið um slík
tæki á Vesturlöndum þar sem sala
og dreifing klóna er ólögleg.
blaðið
SMAAUGLYS!NGAR@BLADID.
Skjálfhentir varist þennan
Það er hægara sagt en gert að
flokka Kororinpa-leikinn með ein-
hverjum öðrum leikjum. Á vissan
hátt má segja að ef Locoroco- og Merc-
ury-leikirnir myndu eignast afkvæmi
þá væri Kororinpa afsprengið. í leikn-
um reynir spilarinn að stýra litlum
kúlum í gegnum þrautabraut, safna
kristöllum og passa sig á gildrum.
Það er pottþétt að Kororinpa gæti
ekki gengið á neinni annarri tölvu
en Wii, a.m.k. ekki nema með mjög
breyttum stýritækjum. Leiknum
er stýrt með því að halla fjarstýring-
unni á alla kanta og með því er braut-
inni hallað og kúlan rúllar sína leið.
Þarna kemur sér vel hversu næm Wii-
fjarstýringin er og bókað mál að PS3
Sixaxis-stýripinninn gæti ekki höndl-
að þessar stýringar.
Kúlurnar í leiknum eru með mis-
munandi útliti, eiginleikum og hljóð-
=37%
um. Spilarinn vinnur sér inn fleiri
kúlur með því að vinna fleiri borð og
eru kúlurnar til dæmis í formi panda-
bjarna, kettlinga og ýmissa annarra
fígúra. Bæði grafíkin og hljóðin í
leiknum eru einföld. Kúlurnar tísta
og skrækja en annars er hljóðið í
leiknum eitthvað sem tekur vart að
minnast á.
Leikurinn er bæði í útliti og spilun
barnalegur og er því ekki fyrir alla
að taka þennan undarlega leik í sátt.
Einnig er vert að taka það fram að
skjálfhentum mun væntanlega ganga
mjög illa að spila leikinn því einn smá-
vægilegur kippur getur orsakað það
að kúlan fellur út af borðinu og því
þarf að byrja borðið upp á nýtt. Það
gerir það að verkum að leikurinn nær
að breyta mesta rólyndisfólki í garg-
andi villidýr á mettíma.