blaðið - 29.03.2007, Síða 28
Bragðgóð tilbreyting
Páskaegg verða án efa víða á borðum næstu daga. Þó að þau séu
bragðgóð og skemmtileg tilbreyting verða þau seint talin hollustu
fæða og því ráðlegt að neyta þeirra innan skynsamlegra marka
hellsa@bladid.net
blaöið
Hreyfing í fríinu
Páskarnir eru frábær tími til að njóta útiveru og hreyfingar enda flestir í frii
og því nægur tími aflögu. Þá er enn fremur farið að vora í lofti og því upp-
lagt að bregða sér í gönguferðir um fjöll og firnindi eða renna sér á skíðum.
Sjúklingavefur
Gert er ráð fyrir því að sjúklingar
á Landspítala-háskólasjúkrahúsi
fái aðgang að sérstakri síðu á vef
spítalans þar sem þeir hafa yfirsýn
yfir mál sín svo sem tímapantanir,
niðurstöður rannsókna og svo fram-
vegis. Spítalinn stefnir nú að því
að koma upp gagnvirkum vef fyrir
sjúklinga og aðstandendurtil upp-
lýsingamiðlunar og samskipta.
Almenningur geturtekið þátt í
könnun um vefinn sem er meðal
annars aðgengileg á heimasíðum
LSH (landspitali.is) og nokkurra
sjúklingasamtaka. Könnunin er
gerð í því skyni að fá hugmyndir
um efni hans.
fplheilsa
ftk” ./! hjfðo þ*ð gott
C-IOOO
Extra sterkt,
náttúrulegt C-vltamin
með róMberjum. rútlnl
og bSóflavóniðum
60 töflur
Sólargeislinn í skammdeginu
eilsa
-hafðu þaö gott
Matarskammtar stækka Á undanförnum
áratugum hafa matarskammtar á veitinga-
stöðum og í matvöruverslunum stækkað
sem geturýtt undir ofneyslu.
Stærri skammtar í matvöruverslunum og veitingahúsum
Brugðist við vilja mark;
Með stærri matarskömmtum til
dæmis á veitingastöðum og í mat-
vöruverslunum eru framleiðendur
að bregðast við vilja markaðarins
að mati Friðriks Larsens, markaðs-
fræðings og lektors við Háskólann
í Reykjavík.
„Það er svolítið talað um að það
sé framleiðendum að kenna að
skammtar séu orðnir stærri en það
sem ég geng út frá í þessari umræðu
er að það sé verið að bregðast við því
sem markaðurinn vill í raun. Banda-
ríski markaðurinn er kannski svo-
lítið öfgadæmi því að þar færðu
kannski forrétt sem dugir fyrir
fjóra sem aðalréttur en almennt
erum við að bregðast við þörf. Þau
fyrirtæki sem hafa reynt að minnka
skammtana hafa þurft að hætta því
vegna þess að veltan hefur einfald-
lega minnkað. Það er ekki það sem
viðskiptavinirnir vilja eins og stað-
an er núna,“ segir Friðrik.
Næringarfræðingar hafa að und-
anförnu lýst yfir áhyggjum sínum
af stækkandi matarskömmtum
og bent á að á síðastliðnum áratug-
um hefðu matarskammtar aukist
verulega sem aftur ýti undir offitu-
vanda. Sem dæmi má nefna að áður
var algengt að fólk neytti goss í 33
sentilítra flöskum en nú eru hálfs
lítra flöskur algengastar.
Fólk borðar meira á
matsölustöðum
„Skammtarnir hafa verið að
stækka frá því um 1970. Ef þú kaupir
þér franskar og hamborgara þá ertu
að fá kannski 200 kaloríum meira
núna en fyrir 20-30 árum. Það
munar um minna í einni máltíð
en jafnframt hafa rannsóknir sýnt
fram á að þegar fólk fer almennt út
að borða þá borðar það einfaldlega
meira en magamál segir til um,“
segir Friðrik.
Deila má um ágæti þess að matar-
skammtar hafi stækkað en Friðrik
telur ekki hægt að stjórna því með
reglugerðum hvað fólk borðar mik-
ið á matsölustöðum.
„Stjórnvöld geta náttúrlega lagt
skatta á óholl matvæli svo sem
sykur og fitu en ég held að þau geti
ekki sagt fólki hvað það eigi að
gera. Þau geta frætt fólk um það til
dæmis með Lýðheilsustöð og slík-
um stofnunum,“ segir hann.
Friðrik hélt erindi á morgun-
verðarfundi um aukið framboð á
hollum matvörum sem heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytið, Lýð-
heilsustöð og Samtök iðnaðarins
stóðu að í gær. Erindi Friðriks bar
yfirskriftina „Er árangursríkara
að markaðssetja óhollar matvörur?"
og segir hann að þeirri spurningu
megi svara játandi út frá gefnum
forsendum.
„Það er einfaldlega smekkur
manna sem ræður því hvað fólk
vill, framleiðendur framleiða það
sem fólk vill og svo láta þeir fólk
vita með auglýsingum,“ segir hann
en bendir um leið á að málið sé
ekki alltaf svona einfalt því að ekki
séu allir aðeins að bregðast við þörf-
um markaðarins.
g
t
£
GottúnxJcjmaágöngu
ncerjcánacíL
• Vccoama}Jxr
• VdbnshÁmg
^SaunJcus
• CxMvíaá
Skaðsemi tóbaks á mynd
Litmyndir sem sýna skaðsemi
tóbaks verða hugsanlega settar á síg-
arettupakka og aðrar umbúðir utan
um tóbak hér á landi. Munu mynd-
irnar koma í stað textaskilaboða sem
nú prýða bakhlið tóbaksumbúða.
Einnig er vilji til þess að símanúmer
Reyksímans 800 6030 verði skráð á
umbúðirnar en þar geta þeir sem
vilja hætta að reykja fengið ókeypis
ráðgjöf.
Nýju merkingarnar eru í sam-
ræmi við ráðleggingar Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar og reglur
Evrópska efnahagssvæðisins. Miðað
er við að breytingarnar geti komið til
framkvæmda í upphafi næsta árs og
eru íslendingar meðal fyrstu þjóða
sem stefna að því að innleiða þær.
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, hefur ákveð-
ið að hefja undirbúning að setningu
reglugerðar þar sem mælt verður fyr-
ir um breyttar við-varanir.
Hér að neðan má sjá dæmi um
tvær myndir sem koma til greina
sem viðvaranir á tóbaksumbúðir.