blaðið - 29.03.2007, Side 39

blaðið - 29.03.2007, Side 39
Austurland tækifæranna Tækifæri til að nýta og njóta Á Mið-Austurlandi er að myndast öflugur byggðaklasi í skjóli einstakrar náttúru, friðsæll og fjölskylduvænn staður. Hátt í þúsund ný framtíðar- störf bjóðast fólki með margs konar menntun og reynslu. Með eflingu atvinnulífs og fjölgun íbúa skapast fjölbreytt viðskiptatækifæri fyrir hugmyndaríka frumkvöðla. Sveitarfélög á Mið-Austurlandi hafa kostað kapps um að styrkja innviði samfélagsins og hundruð nýrra íbúðarhúsa eru að rísa. Á svæðinu er yfirbyggður knattspyrnuvöllur, glæsilegar útisundlaugar og frábært skíðasvæði. Þjónusta á Mið-Austurlandi færist stöðugt nær því sem gerist á höfuðborgarsvæðinu og neytendur hafa úr mörgu að velja. Samgöngur til og frá svæðinu eru góðar, á landi, í lofti og á sjó. Tækifæri til hvers konar útivistar eru fjölmörg. Fallegar gönguleiðir eru við hvert fótmál, stærsti skógur landsins og góðir hálendisvegir. Hægt er að stunda hvers kyns veiðar, hestaíþróttir njóta vaxandi vinsælda og golfurum fjölgar stöðugt. Einnig bjóðast frábær tækifæri til afþreyingar, listirnar dafna og íþróttastarfsemi er öflug. AUSTURLAND TÆKIFÆRANNA Gríptu þitt tækifæri Hjá Fjaröaáli er nú búið að ráða hátt í 300 starfsmenn og við leitum enn að fólki sem vill starfa með okkur, að konum jafnt sem körlum. Konur er nú um þriðjungur starfsmanna hjá Fjarðaáli og hlutfall kvenna af starfsmannafjölda í álveri er hvergi í heiminum jafnhátt. Síðustu 100 störfin í boði Framleiðslustarfsmenn Okkur vantar fleiri eldhressa starfsnienn í álframleiðslu og málmvinnslu. Til framleiðslustarfsmanna eru ekki gerðar ákveðnar kröfur um menntun eða kunnáttu. Allir fá viðamikla þjálfun og fræðslu í fyrirtækinu. Verkefni hvers starfsmanns verða fjölbreytt og mikið er lagt upp úr starfsþróun og símenntun. Rafiðnaðarmenn og véliðnaðarmenn Við leitum að faglærðum rafiðnaðarmönnum og véliðnaðar- mönnum til að sinna viðhaldi tækja og búnaðar í hátæknivæddu álveri Fjarðaáls. Hjá fyrirtækinu verða um 1 20 tæknimenntaðir starfsmenn. Faglegur metnaður og stöðug þróun verða leiðarljós okkar inn í framtíðina. Öll störf henta bæði konum og körlum. Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl. Viðkomandi munu hefja störf á næstu sex mánuðum. capacenb RÁÐNINGAR Hægt er að sækja um störf hjá Alcoa Fjarðaáli á capacent.is (áður IMC-Mannafl). Nánari upplýsingar fást á www.alcoa.is og hjá Sigurlaugu Þorsteinsdóttur (sigurlaug.thorsteinsdottir@capacent.is) og Helgu Snædal (helga.snaedal@capacent.is) hjá Capacent í síma 540 1000. www.alcoa.is Alcoa Fjarðaál s ALCOA

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.