blaðið - 25.04.2007, Side 12
blaði
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Ritstjóri: Trausti Hafliðason
Fréttastjórar: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Ritstjórnarf ulltrúi: Elín Albertsdóttir
Hjálpin sem ekki fæst
Tíu ára gamalt, fársjúkt barn var sent heim af bráðamóttöku geðsviðs Land-
spítala eftir að hafa tekið inn of stóran skammt af geðlyfjum. Móðir barnsins
greindi frá því í sjónvarpsfréttum að barnið hefði tekið lyfin því það hélt að þá
myndi því líða betur. Sorgleg frétt. Margrét Ómarsdóttir, varaformaður Barna-
geðs, sagði að foreldrum væri haldið í gíslingu vegna þess að geðfötluð börn
þeirra fengju ekki læknishjálp. Um 200 börn eru á biðlista hjá BUGL, barna- og
unglingageðdeild.
Að sögn yfirlæknis BUGL hefur ástandið versnað umtalsvert á síðustu tveimur
árum og ekki væri síst um að kenna að stofnuninni héldist illa á starfsmönnum
vegna lágra launa. Geðhjúkrun er hugsjónastarf og aðeins sérlega vandaðir ein-
staklingar geta sinnt svo erfiðu starfi. Löng menntun er að baki hverjum starfs-
manni, svo og starfsreynsla sem er engan veginn nógu vel metin.
Siv Friðleifsdóttir tók skóflustungu að nýrri byggingu BUGL í febrúar. Víst
er ástæða til að stækka húsakynnin en það þýðir litið að byggja ef innvolsið er í
ólagi. Það þarf að halda í vel þjálfað starfsfólk því það er ekki síst það sem hefur
áhrif á framtíð þessara sjúklinga og þá þjóðfélagsins alls.
Fólk með geðraskanir hefur þurft að mæta miklum fordómum og þess vegna
hljóta það að vera mjög þung skref fyrir foreldra að fara með barn sitt inn á geð-
deild. Þar fyrir utan leggst þessi sjúkdómur ekki einungis á þann sem veikur er
heldur alla fjölskylduna. Það er því rétt sem Margrét segir að foreldrar þessara
sjúklinga eru í gíslingu.
1 janúar 2005 skrifaði heilbrigðisráðherra íslands og annarra Evrópulanda
undir aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum þar sem segir meðal annars: „Með
aukinni áherslu á geðheilbrigði aukast lífsgæði og geðheilbrigði þjóða í heild
sinni, þar með talið einstaklinga með geðræn vandamál og þeirra sem annast
þá. Þróun og innleiðing raunhæfra áætlana um að efla geðheilbrigði mun bæta
líðan allra. Góð geðheilsa er undirstaða heilbrigðs og arðbærs samfélags fyrir
alla. Þróun og innleiðingu stefnu á sviði geðheilbrigðismála má ekki tefla í tví-
sýnu vegna hinna útbreiddu fordóma sem tengjast geðrænum sjúkdómum og
hafa mismunun í för með sér. Á mörgum sviðum nýtur fólk með geðraskanir
ekki jafnréttis vegna slikrar mismununar. Vernda þarf mannréttindi fólks
með geðraskanir. Sjálfsefling er mikilvægt skref í átt að þessum markmiðum
þar sem slíkt stuðlar að þátttöku í samfélagi án aðgreiningar. Stofna þarf til að-
gerða sem vinna gegn fordómum og mismunun og leggja áherslu á hve geðræn
vandamál eru útbreidd, hve meðferð og batahorfur eru almennt góðar, og þá
staðreynd að þau tengjast sjaldan ofbeldi."
Þótt heilbrigðisráðherra hafi skrifað undir þetta stóra og góða skjal, sem lesa
má í heild á síðu heilbrigðisráðuneytisins, fyrir rúmum tveimur árum hefur
lítið breyst til batnaðar í geðheilbrigðismálum þessarar þjóðar svo sem marg-
sinnis hefur verið fjallað um að undanförnu. Bent hefur verið á aðgerðaleysi
varðandi mál fólks með geðræn vandamál á öllum stigum, hvort sem hlut eiga
að máli börn, ungt fólk eða aldraðir. Umræðan um þessi mál hefur verið að
opnast í fjölmiðlum, enda skipta geðheilbrigðismál alla þjóðina máli. Það veit
enginn hvar þessi sjúkdómur getur stungið sér niður eða hvenær. Mörg mál
innan geðfötlunar voru hvorki þekkt né viðurkennd fyrir fáum árum, eins og
t.d. átröskun, hegðunarröskun, einhverfa eða athyglisbrestur. Meira að segja
kvíði og þunglyndi voru mál sem ekki voru rædd manna á meðal. Nú er sem
betur farið að greina þessa sjúkdóma og hægt er að fá góða hjálp við þeim en
hún verður þá líka að vera til staðar fyrir alla.
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðaisími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
Inniheldur hátt hlutfall Omega
3 fitusýrur
ÓRTÚLEGUR ÁRANGUR
POLAROLÍU!!!!!
"Eftir að hafa verið of þungur í
mörg ár og þjáðst af verkjum í
iiðum og stoðkerfi tók ég mig
til og létti mig um 65-70 kg. Ég
sat eftir með þessar þjáningar
og reyndi ailt til að mér liði
betur. Það var ekki fyrr en ég
uppgötvaði POLAROLÍU að
þjáningar mínar hurfu og nú
get ég þess vegna hlaupið
100 m grindarhlaup."
--------------\
Polarolje
Selolía
einstökolía
Gott fyrir:
• Liðina
• Maga- og þarma-
starfsemi
Magnús Ólafsson, leikari.
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
Polarolían fæst í apótekum, heilsuhúsum og Fjarðarkaupum
L Á
12
MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2007
blaðið
...FHH...R.‘ÉTTLár 1
He-Fmu FyRHI /|LMÍ 1
^FSSa KoLKtoKKPVU '
u UQ9ÓM5PtWj*l |
| í SAMFELffGíMU?
jLm HElMlLAwn
CT LtEKkAi/pi
i FYfiíri/ ibú-p
(0íoc(ui$íhhi FYaP
iiiBtiEBHH nSawlS
Geir Haarde og geislabaugurinn
í kjölfar landsfundar Sjálfstæðis-
flokksins hafa talsmenn flokksins
reynt að láta líta svo út sem formaður
þeirra væri eins og nýbaðaður vatns-
greiddur kórdrengur sem ekkert aumt
mætti sjá og ekkert hefði á pólitískri
samvisku sinni. Flestir fjölmiðlar
landsins eru hallir undir Sjálfstæðis-
flokkinn og hafa tekið undir þennan
áróður af fullum þunga. í kosninga-
baráttu reyna stjórnmálaflokkar að
tjalda því sem þeir telja best fyrir sig
og greinilegt er að sjálfstæðismenn
telja best að reyna að koma þeirri
ímynd inn hjá venjulegum f slendingi
að Geir Haarde forsætisráðherra hafi
aldrei komið að neinu misjöfnu eða
því sem ágreiningur kann að hafa
verið um í stjórnmálum undanfar-
inna ára. Þessi mynd er röng. Geir
Haarde er búinn að vera þingmaður
Sjálfstæðisflokksins um langan tíma,
varaformaður Sjálfstæðisflokksins
og fjármálaráðherra. Geir Haarde
var nánasti samverkamaður Dav-
íðs Oddssonar og vissi því af og tók
ákvarðanir í þeim málum sem þeir
félagar töldu nauðsynlegt að komið
yrði fram.
Geir Haarde var ekki sofandi þegar
ákvörðun var tekin um að breyta um
stefnu í utanríkismálum og víkja frá
þeirri farsælu stefnu sem Bjarni Bene-
diktsson, fyrrum formaður Sjálfstæð-
isflokksins, mótaði um að við færum
ekki með ófriði á hendur öðrum
þjóðum. Hann tók þátt í að setja
okkur á lista hinna viljugu ríkja sem
fóru með hernaði á hendur f rak. Auk
heldur ver Sjálfstæðisflokkurinn enn
innrásina í írak og neitar að verða við
sanngjörnum óskum um að fsland
verði tekið af lista yfir hinar viljugu
þjóðir.
Geir Haarde ber fulla ábyrgð á
gjafakvótakerfinu. Hann ber ásamt
öðrum stjórnarþingmönnum
ábyrgð á því að athafna- og ein-
staklingsfrelsi hefur verið skert og
stærsta ráni íslandssögunnar er
viðhaldið.
Geir Haarde stóð að því ásamt fé-
lögum sínum í stjórnarflokkunum
að samþykkja umdeild eftirlaunalög
sem sennilega er ein mesta svívirða
sem meirihluti Alþingis hefur sam-
Jón Magnússon
þykkt. Alþingismenn ákváðu með
því að úthluta sjálfum sér einstökum
sérkjörum á kostnað skattgreiðenda.
Meira að segja Halldór Ásgrímsson
sagði að það þyrfti að taka þessi lög
til endurskoðunar en Geir Haarde
tók það ekki í mál. Hann krafðist
þess að þessari hræðilegu spillingu
yrði viðhaldið.
Geir Haarde var fjármálaráðherra
meðan ríkisútgjöld jukust til muna,
báknið óx úr hófi og skattar hækk-
uðu meira hér á landi sem hlutfall af
vergri þjóðarframleiðslu en í nokkru
öðru þróuðu ríki. Með því var vikið
frá þeirri grundvallarstefnu Sjálf-
stæðisflokksins að gæta aðhalds og
sparnaðar í ríkisbúskapnum. Geir
Haarde stóð að skerðingu á bótum
aldraðra og öryrkja allan sinn ráð-
herraferil þrátt fyrir endalaust tal
um góðæri í landinu. Skattkerfinu
var beitt í fjármálaráðherratíð hans
til að auka mismun í þjóðfélaginu.
Hygla þeim tekjuhæstu en láta
skattbyrðina bitna þyngst á lágum
tekjum og millitekjum.
Furðuhlutir vegna einkavæðingar
ríkisfyrirtækja voru ekki bara á
borði Davíðs Oddssonar, nánasti
ráðgjafi hans ber fulla ábyrgð á því
sem þá gerðist.
Sem fjármálaráðherra leitaði Geir
Haarde eftir því að einu fyrirtæki
yrði veitt 200 milljóna dollara víkj-
andi lán. Eftirlitsstofnun EFTA sam-
þykkti það ekki og fyrirtækið fékk
lán annars staðar. Skattgreiðendur
komust hjá að greiða 200 milljónir
dollara en fyrirtækið hefur tapað
þessum fjármunum á þessu kjör-
tímabili. Þannig var fjármálaráð-
herra tilbúinn til að víkja frá öllum
grundvallarreglum markaðssinna.
Það var raunar með ólíkindum að
sjálfstæðismenn skyldú láta sér
detta slíkt og þvílíkt í hug en þannig
var það.
Sjálfstæðisflokkurinn og Fram-
sóknarflokkurinn töldu nauðsyn-
legt að skipta um formenn áður en
gengið yrði til kosninga vegna valda-
hroka þeirra og spillingar. Imyndar-
fræðingum flokkanna var ljóst að
fyrri formenn höfðu farið þannig
fram að stórum hluta þjóðarinnar
var nóg boðið. Það sem boðið var
upp á í staðinn voru helstu ráðgjafar
hinna föllnu foringja. Þeir báðir, Jón
Sigurðsson og Geir H. Haarde, bera
því sem nánustu samstarfsmenn
forvera sinna fulla ábyrgð á öllu því
sem gert var. Þar fara ekki hvítskúr-
aðir kórdrengir.
Höfundur er hæstaréttarlögmaður
Klippt & skorið
Athyglisvert væri
að vita hvað
rætt er utandag-
skrár hjá stjórn knatt-
spyrnufélagsins Víkings
í Reykjavík. Ástæðan er
sú að þrír af fimm stjórn-
armönnum þar starfa hjá bönkum þessa
lands sem væri vart í frásögur færandi
nema fyrir þá sök að þeir starfa hjá öllum
stærstu bankarisum fslands. Friðrik Magn-
ússon vinnur hjá Glitni, Jón Otti Jónsson hjá
Landsbankanum og formaður stjórnarinnar,
Róbert Agnarsson, hjá Kaupþingi. Gárungar
gætu fullyrt að allt samráð þar væri óbeint
bankasamráð en væntanlega koma hinir
tveir meðlimir stjórnarinnar í veg fyrir
slíkarumræður.
Einnersá biðlisti í heil-
brigðiskerfi Islend-
inga sem lítið ferfyrir
en hefur lengst mikið undan-
farináren það er biðlisti eftir
tíma á húð- og kynsjúkdóma-
deild Landspítala-háskólasjúkrahúss. Fyrir tíu
árum var biðtíminn einn til tveir dagar en er nú
allt að tveimur vikum og stöku sinnum lengri en
það. Stutt er síðan könnun smokkafyrirtækisins
Ourex hérá landi sýndi að 60 prósent aðspurðra
vildu að ríkið sæi um að gera getnaðarvarnir
aðgengilegar og ókeypis fyrir landsmenn. Er
ekki þarna tækifæri fyrir heilbrigðisráðherra að
ráðast að rót vandans í stað þess að bregðast
við honum? Bjóða ókeypis getnaðarvarnir og
bíða þess svoað biðlistar vegna húð- og kynsjúk-
dóma styttist?
Nokkrir prestar hafa
skipt um skoðun
Orkusamningur
undirritaður - Jeltsín lát-
inn - Kosningar í Frakklandi.
Þessar fréttir voru fyrstar
hjá Sjónvarpinu á mánudagskvöld og munu að
flestra mati vera allbærilegt fréttaefni. Fimmta
frétt bar fyrirsögnina „Tíu ára barn í sjálfsvígs-
hugleiðingum sent heim". Fjallaði fréttin um
langa biðlista á barna- og unglingageðdeild LSH
en hefð hefur myndast fyrir biðlistum þar undan-
farin ár. En að alvarlega veikum börnum niður í
tíu ára aldur sé vísað frá með pillur í poka er væg-
ast sagt óhugnanleg tilhugsun. Slíkar fréttir eiga
brýnna erindi við almenning en þærfjórar fréttir
sem fréttastjóri RÚV kaus að sýna á undan.
albert@bladid.net