blaðið - 25.04.2007, Page 22
Verslar
Klara Ósk Elíasdóttir er betur þekkt sem Klara
* í Nylon. Klara hefur mikinn áhuga á fötum og
hannar meðal annars peysur sjálf en annars
segist hún ekki fá nóg af jökkum og kaupir
sér reglulega vintage skó á Portobello.
Einn af uppáhaldskjólunum
Þennan kjól keypti ég í
Spútnik. Hann er gamall og
rosalega rómantískur.
Fyrsta hettupeysan Þetta er
fyrsta peysan sem ég hannaði.
Uppáhaldsstígvélin Ég keyptl
stígvélin á Portobello og þau eru
uppáhaldsstígvélin mín þó ég sé
sjaldnast í þeim af stígvélunum
mínum. Þau eru líka svo áPerandi
að það er ekkert gaman að vera í
þeim of oft.
Bestu kaupin Þessi Júníform-
skokkur er í miklu uppáhaldí hjá
mér og ég er í honum mjög oft
þar sem hann gengur við allt.
Hvaða flik langar þig mest í?
Núna langar mig mest í stuttbuxur til
þess að vera í í sumarvið gammósíur.
Helst einhverjar sem eru mjög háar
í mittið þannig að þær séu hnepptar
svona upp undir brjóstum. Ég væri til í buxur
úr gallaefni en það er bara frekar erfitt að finna
þannig án þess að þær séu hallærislegar.
Hvaða flíkur notar þú mest?
Ég er oftast í einhverjum síðum peysum eða
kjólum viö gammósíur. Ég nota líka mikið af
stórum bolum, gammósíum og sandölum eða
stígvélum við og svo er ég sjálf að hanna peysur
sem ég nota mikið. Það eru hettupeysur úr jogg-
^ ing-efni sem eru síðar og í mörgum litum.
^ Ég vel þá ákveðinn grunnlit og svo vel ég
stykki í og nota til dæmis blúndur mikið. Ég
er eitthvað aðeins farin að selja þetta og gera fyrir
helst erlendis
vinkonur mínar en þetta er ekki orðið neinn bisness
ennþá en það kemur kannski að því þegar ég hef
tíma.
Af hverju er mest i fataskápnum þínum?
Bolum, sumarkjólum og jökkum; ég á ótrúlega
mikið af þeim og kaupi mér örugglega jakka í
hverri einustu verslunarferð þegar ég er úti. Suma
nota ég kannski bara einu sinni og svo hangir þetta
uppi í skáp. Þetta eru alls konar jakkar, vindjakkar,
silkijakkar og spari, flauelskápur og síðir jakkar.
Mín fíkn eru því jakkar og yfirhafnir.
Hverju færðu ekki nóg af?
Ég verð auðvitað að segja jökkum en svo fæ ég
heldur ekki nóg af vintage skóm. Ég kaupi enda-
laust af þeim þó ég noti þá kannski ekkert alla.
Þegar við (Nylon) erum í London þá förum við mikið
á Portobello-markaðinn en þar er einn skóbás
sem við förum alltaf á. Konan sem er með hann er
eiginlega orðin vinkona okkar þannig að hún gefur
okkur góðan afslátt.
Hvaða verslanir eru í uppáhaldi?
Ég versla svo lítið hér heima. Þegar maður getur
verslað úti þá gerir maður það miklu
og allar second hand búðirnar eru alltaf skemmti
legar og líka Topshop og Urban Outfitters
sé aðeins dýrara.
Hvað gerirðu til þess að líta vel
Ég reyni að sofa vel. Þetta
gilt beauty tip hjá okkur stelpunum í Nyion.
Maður sér það bara að maður lítur betur
út þegar manni líður vel og svo er
líka ráð að borða vel. Og síðast
ekki síst að vera eðlilegur,
nota of mikinn farða og ekki
oflita á sér hárið. Eðlilegt og
náttúrulegt er fallegra.
Bestu kaupin?
Það er örugglega Júníform-
skokkurinn minn. Ég er mikill aðdá-
andi Birtu, mér finnst eiginlega sama
hvað kemur frá henni, það er alltaf flott.
Ég keypti mér svartan skokk hjá henni
ekki alls fyrir löngu og nota hann mjög mikið,
bæði hversdagslega og við fínni tækifæri.
!►
Hymer-Nova 54!
•ðÍmMÍir'H'
EEHYMER
-Feeling 440
A fyrsta farrými
Hymer-hjolhýsi
Þau allra bestu og flottustu.
Falleg hönnun, fullkomin þægindi
og framúrskarandi gæði.
Margverðlaunuð
þýsk eðalframleiðsla.