blaðið - 15.05.2007, Síða 1

blaðið - 15.05.2007, Síða 1
Umferðarskóli í 40 ár »/j Umferðarskólinn fagnar 40 ára afmæli sínu í ár. Umferðar- |H stofa, lögreglan og sveitar- félögin starfrækja skólann H á vori hverju, krökkum til [ mikillar ánægju. Ilmandi blóm Aðþrengda eiginkonan Marcia Cross eignaðist tvíburadætur í febrúar og bera þær nöfnin Savannah og Eden. Hún líkir dætrum sínum við ilmandi blóm. Sandra Erlingsdóttir var dregin á námskeið í afró- dansi fyrir 12 árum þegar hún var unglingur og kennir nú á byrjenda- og framhaldsnámskeiðum. SÉRBLAл 17-24 89. tölublaö 3. árgangur þriðjudagur 15. maí 20QÍ7! V Jk Þriðjud Úr kjötborði Kjötfars 421 kr. kílóið Opið alla daga frá kl. 10.-20 SPT R Bæjarlind 1 - Sími 544 4510 Viðræður stjórnarflokkanna í kjölfar kosninga: Geir telur góðar líkur á að stjórnin haldi áfram ■ Jón segir að komast þurfi að samkomulagi um málefni ■ Geir líst hörmulega á vinstri stjórn Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@bladid.net ----------------------------------*------------- Góðarlíkureruáað stjórnarflokkarnir haldi sam- starfi sínu áfram að sögn Geirs H. Haarde, forsæt- isráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins. „Það eru náttúrlega engar stjórnarmyndunar- viðræður hafnar enda hélt þessi stjórn,” sagði Geir í samtali við Blaðið í gær. „Ég túlka niður- stöðu kosninganna fyrst og fremst sem áskorun frá þjóðinni um að Sjálfstæðisflokkurinn leiði áfram ríkisstjórn.” Geir segist hafa verið í góðu sambandi við Jón Sigurðsson, formann Framsóknarflokksins, síðan úrslitin urðu ljós. Þeir hafi rætt saman í gær og muni halda áfram að ræða saman um það hvort grundvöllur sé fyrir áframhaldandi samstarfi. Géir segir alveg ljóst að meirihlutinn hafi veikst eftir þessar kosningar og það torveldi málið nokkuð. Hann segir ekki hægt að rekja laka útkomu Framsóknarflokksins í kosning- unum til stjórnarsamstarfsins heldur innri mála flokksins. Að sögn Jóns veltur áframhaldandi ríkisstjórn- arsamstarf alfarið á því hvort samkomulag næst um málefni. „Það fer náttúrlega eftir málefn- unum og því hverskonar málefnasamningur yrði gerður. Við erum í þessu samstarfi og verðum að halda okkur við það á meðan svo er. Síðan þarf að komast niðurstaða í það hvort við teljum að við getum haldið því áfram og það verður þá fyrst og fremst ef samstaða er um málefni.“ Aðspurður hvort formenn annarra flokka en Framsóknarflokksins hafi gert honum einhvers konar tilboð segist Geir ekkert geta sagt um það. Honum hugnast engan veginn sú hugmynd sem viðruð hefur verið um að mynda hér vinstri stjórn. „Mér líst alveg hörmulega á þá tilhugsun ef menn reyndu að berja saman slíka ríkisstjórn.” FRÉTTIR » 4 og 10 20 prósent ölvaðra ökumanna erlendir Fimmtungur þeirra sem voru kærðir vegna ölvunar við akstur á íslandi fyrstu fjóra mánuði ársins var með erlent ríkisfang. Það er tvöföldun miðað viö árið 2005. Brátt hefst átaktil að kynna erlendum reglur um ölvun við akstur. FRÉTTIR » 2 Fjölskylda slapp með skrekkinn Hjón og tvö börn ásamt heimilishund- inum sluppu með skrekkinn er eldur kom upp í húsi þeirra á sunnudags- morguninn. „Maður er náttúrlega bara í sjokki," segir Óli Þór Barðdal en hann varð fyrstur heimilisfólks eldsins var. FRÉTTIR » 8 Með nýja stjórn í hendi sér Geir H. Haarde hitti þingflokk sinn á fundi í gær. Honum og aðstoðarkonu hans og nú einnig þingmanni Suðvesturkjördæmis, Ragnheiði Elínu Árnadóttur, var vel tekið af nýju þingmönnunum Björk Guðjónsdóttur og Ólöfu Nordal. FRÉTTIR » 4 Djúpsteiktir hrútspungar [ gegnum tíðina hefur erlendum gestum á (slandi jafnan veriö boðið upp hrútspunga í þeim tilgangi að ganga fram af þeim. Nú virðist sá íslenski siður að leggja sér eistu búfénaðar til munns vera aö breiðast út um heimsbyggðina. [ Wisconsin í Bandríkjunum er nú haldin árleg eistnahátíð og var sú tólfta í röðinni um helgina. Á hátíðinni var reyndar ekki boðið upp súrsaða punga heldur djúpsteikta punga af hrútum, nautum og höfrum. Eistun voru ýmist snædd ein og sér eða á samlokum. „Um leið og þú kemst yfir þann andlega þröskuld að þú sért að borða eistu þá er þetta bara eins og hver annar matur og bragðast vel,“ sagði Buster Hoffman, einn gesta hátíðarinnar. NEYTENDAVAKTIN Snúður m/glassúr r#i Bakarí Krónur Mosfellsbakarí 122 kr. Reynir bakari 135 kr. Guðnabakari, Selfossi 136 kr. Bakarameistarinn 150 kr. Björnsbakarí 160 kr. Bæjarbakarí 165 kr. Verð á snúði m/glassúr í völdum bakaríum Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA SALA % m usd 63,72 -0,83 ▼ fefgj GBP 126,20 -0,95 ▼ SS dkk 11,59 -0,67 ▼ • JPY 0,53 -0,99 ▼ na eur 86,33 -0,68 ▼ GENGISVÍSITALA 116,68 -0,77 ▼ ÚRVALSVÍSITALA 7.932,13 1,0 A Veldu 5 stjörnu öryggi lífsins vegna! ***** RENAULT MEGANE II Nýskn 05/2005,1600cc, 4 dyra, Flmmgíra, IJósgrár, eklnn 20.000 þ. Verð: 1.840.000 RB-771 ***** RENAULT MEGANE II Nýskr: 06/2005, ISOOcc, 5 dyra, Hmmgíra, IJósgrár, Eklnn 29.500 þ. Verð: 1.790.000 TT-641 ★ ★ ★ ★ ★ RENAULT MODUS Nýskr: 10/2006,1600cc, 5 dyra, sjálffsklptur, IJósgrár, oklnn 5000 þ. Verð: 2.090.000 UY-173 bilolond.is 575 1230

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.