blaðið - 15.05.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 15.05.2007, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2007 blaöiö INNLENT UMFERÐARLAGABROT Tveggja mánaða fangelsi Karlmaður á þrítugsaldrí var í gær dæmdur í tveggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir aðaka bíl án ökuréttinda. Maðurinn fullyrti að unnusta sín hefði ekið bílnum en lögreglumennirnir fullyrtu að maður- inn hefði sjálfur verið undir stýri. VIÐURKENNING Helgi Tómasson fær stórkross Helgi Tómasson, stjórnandi San Francisco ballettsins, hiaut í gær stórkross hinnar íslensku fálkaorðu. Það er æðsta viðurkenning sem forsetinn, Ólafur Ragnar Grímsson, veitir einstaklingum fyrir hönd lýðveldisins. Halldór Laxness hlaut þessa viðurkenningu á sínum tíma. EUROVISION ísland fékk 77 stig fsland fékk 77 stig í undankeppni Eurovision. Svíar, Finnar og Norðmenn gáfu íslenska laginu 12 stig. Þaö fékk tíu stig frá Dönum og Ungverjum, sex frá Eistum og fsraelum, fimm frá Litháum, þrjú frá Hvít-Rússum og eitt frá Georgíumönnum. ítalska undralyftan, sem kemst um allt innanhúss. Samanþjöppuð og fljótvirk Auðveld í flutningi Hefur aðgengi á flesta staði Lítið viðhald Sparar vinnuafl og vinnutíma Þessi frábæru tæki eru til afgreiðslu með stuttum fyrirvara Smiöjuveg 4 A 200 Kópavogur Sími: 564-3220 Farsímar: 894-3836 894-3933 m iV Auglýsingasíminn er 510 3744 Sjálfstæðisflokkurinn í lykilstöðu við stjórnarmyndun: Allir vilja í sæng með Geir ■ Framsókn gæti kallaö inn varaþingmenn ■ Tortryggni milli Framsóknar og Vinstri grænna Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net Meiri líkur en minni eru á að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknar- flokkur myndi nýja ríkisstjórn. For- menn flokkanna hafa verið í stöð- ugu sambandi eftir kosningar, en báðir hafa gefið það út að þeir ætli sér að taka nokkra daga til ákvörð- unar. Forystumenn Framsóknar- flokksins hafa dregið verulega úr þeim ummælum sem þeir viðhöfðu fyrir kosningar, að flokkurinn færi ekki í stjórnarsamstarf fengi hann slæma kosningu. Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla f slands, segir að slík stjórn yrði vel starfhæf þrátt fyrir aðeins eins manns meiri- hluta. „Það hefur verið gott á milli flokkanna og það eru engir erfiðir þingmenn innan þeirra, ef svo má komast að orði. Það er hins vegar ágreiningur innan Framsóknar- flokksins um hvað beri að gera. Það er spurning hversu mikill þrýst- ingur verður innan flokksins á að fara í vinstri stjórn eða hreinlega að vera utan stjórnar.“ Jón áfram ráðherra í ljósi niðurstaðna kosninganna er talið líklegt að Framsóknar- flokkurinn verði að láta Sjálfstæð- isflokknum eftir að minnsta kosti eitt ráðherraembætti. Flokkurinn hefur aðeins sjö þingmenn og þar af gætu fimm orðið ráðherrar og einn yrði þingflokksformaður. Þá stæði aðeins eftir einn óbreyttur þingmaður. Baldur gerir ráð fyrir að Jón Sig- urðsson haldi áfram sem ráðherra, þrátt fyrir að hann hafi ekki náð kjöri áþing. Hann minnir á að árið 1983 hafi Geir Hallgrlmsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, orðið ráðherra þrátt fyrir að hafa dottið út af þingi. „Það gæti líka gerst að því verði hagað þannig til að vara- þingmenn verði kallaðir inn á þing fyrir ráðherra flokksins, sem yrðu þá bara ráðherrar. Þannig myndi Framsóknarflokkurinn nærri tvö- falda fjölda þeirra sem ættu aðkomu að þinginu. Þeir munu skoða þann möguleika mjög vel. En þá má velta því fyrir sér hvort það sé eðlilegt að flokkur- inn minnki um helming en tvöfaldi hann næstum með þessu móti aftur.“ T r e y s t i flokkarnir sér ekki til að starfa með svo naumum meirihluta, er sá möguleiki fyrir hendi að Frjálslynda flokknum verði boðið að treysta meirihlutann með stjórn arþátttöku. Hefur þessi möguleiki verið kall- aður þríhjólsleiðin eða varadekks- leiðin. Sú leið hefur þó ekki enn verið rædd af fullri alvöru. Vinstri stjórn ólíkleg Forystumenn vinstri flokkanna hafa gælt við þá hugmynd að mynduð verði vinstri stjórn af sömu flokkum og mynd- uðu R-listann í Reykjavík. Yrði sú stjórn undir for- sæti Samfylkingarinnar. Baldur segir slíkt stjórn- armynstur ólíklegt, ekki síst vegna þeirrar tortryggni sem ríkir milli VG og Framsóknar. „Það vekur athygli mína hvað Vinstrl grænir hafa gagnrýnt Framsókn mikið Baldur Þórhallsson, pró- fessor í stjórnmálafræöi við Háskóla Islands Steingrímur og Vinstri grænir hafa gagnrýnt Framsóknarflokk- inn mikið að loknum kosningum. Þeir útiloka Framsókn ekki beint, en þeir hafa gengið það langt að ég efast um að framsóknarmenn leiti til þeirra eftir stjórnarsamstarfi." Möguleiki á minnihlutastjórn Samfylkingar og VG hefur verið uppi á borðinu, þá með hlutleysi Framsóknarflokksins. Baldur telur hins vegar þann möguleika ekki fyrir hendi, af sömu ástæðum og vinstri stjórn. „Ég á eftir að sjá ráðherra Framsóknarflokksins gefa eftir embættin og hleypa öðrum í þau með því að styðja minnihlutastjórn. Það er ekki spennandi kosturfyrirFramsóknar- flokkinn. Ég hefði talið vænlegra til árangurs fyrir VG og Samfylk- inguna að bjóða Fram- sóknarflokknum til samstarfs." Þess vegna telur Baldur að sjálfstæðis- menn sitji uppi með öll tromp á hendi, því bæði Samfylk- ingin og VG hafa lýst yfir áhuga á að ganga til viðræðna við Sjálfstæðisflokk- inn. „Þessum tveimur flokkum virðist vera það mikið kappsmál að komast í ríkisstjórn. Af um- mælum forystumanna VG er ljóst að þeir geta vel hugsað sér að vinna með Sjálfstæðisflokki. Sama gildir um Samfylkinguna.“ Jón segir flokkinn ákveða hvort hann verður ráðherra: Útstrikanir: Rí kisst j ór nar samstar f ið veltur á málefnasamningum „Staðan er óbreytt. Við erum að tala saman innan flokksins og það hafa verið haldnir óformlegir fundir. Ég held að það sé þannig bæði hjá sjálfstæðismönnum og okkur,“ segir Jón Sigurðsson, formaður Fram- sóknarflokksins. Hann telur menn einfaldlega vera að fara yfir málin og ræða þá stöðu sem upp sé komin í íslenskum stjórnmálum. „Menn eru að hittast og það er náttúrlega ríkisstjórnarfundur í fyrramálið [í dag] með reglulegum hætti. Við erum bara að fara yfir þetta, ráðherrarnir og þingmenn- irnir, eins og gengur. En málið er „ enn á umræðustigi.“ Jón segir að hann hafi verið í sam- bandi við Geir H. Haarde forsætis- ráðherra en að ekki sé um formlegar viðræður að ræða. „Við Geir höfum verið í sambandi í dag og erum að leyfa hvor öðrum að fylgjast með. Ég held að sjálfstæðismenn séu með ýmsa fundi hjá sér í dag líka. Það eru mörg mál sem þarf að fara yfir, skoða og ræða.“ Að sögn Jóns veltur áframhald- andi ríkisstjórnarsamstarf Fram- sóknar og Sjálfstæðisflokks alfarið á því hvort samkomulag næst um málefni. „Það fer náttúrlega eftir málefnunum og því hverskonar málefnasamningur yrði gerður. Við erum í þessu samstarfi og verðum að halda okkur við það á meðan svo er. Siðan þarf að komast niðurstaða í það hvort við teljum að við getum haldið því áfram og það verður þá fyrst og fremst ef samstaða er um málefni." Jón náði sjálfur ekki kjöri til Alþingis og því hafa verið uppi efa- semdaraddir um tilkall hans til ráðherraembættis ef ríkisstjórnin heldur samstarfi sínu áfram. Hann segir það vera þingflokksins að skera úr um slíkt ef af verður. „Það eru flokksmennirnir sem íhuga það og segja mér svo frá því. Þetta gerist þannig. Það er þingflokkurinn sem ákveður það.“ Um 2.000 höfnuðu Árna Árni John- sen fellur að öllum lík- indum niður um eitt sæti á framboðslista Sjálfstæðis- flokksins í Suð- urkjördæmi. Um 1.940 manns strikuðu nafn Árna út eða 21,4 prósent. Næst á eftir Árna Johnsen kom Lúðvík Bergvinsson Samfylkingunni en 2,4 prósent kjósenda strikuðu nafn hans út. Nafn Árna Mathie- sen fjármálaráðherra var strikað út af 2,2 prósentum kjósenda. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem nafn Árna Johnsen er strikað út af kjósendum því árið 1999 strik- uðu 5,6 prósent kjósenda nafnið hans út á kjörseðlum. Sjónvarpið greindi frá því í kvöldfréttum í gær að útlit væri fyrir að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra færðist niður um tvö þingsæti.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.