blaðið - 15.05.2007, Blaðsíða 14

blaðið - 15.05.2007, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2007 blaöið Auglýsingar á störfum hjá hinu opinbera Auglýsing um stöðu aðstoðar- ríkislögreglustjóra hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum að undanförnu. Það að auglýs- ingin hafi einungis birst í Lög- birtingablaðinu brýtur alls ekki í bága við lög eða reglur um aug- lýsingu embætta en hins vegar hefur verið bent á að kröfur um embættispróf í lögfræði stang- ist á við nýsamþykkt lögreglu- lög. Eins og fjölmiðlaumfjöllun síðustu daga sannar hvað best Við viljum jú öll að ríkið eigi kost á færum og hæfum starfsmönnum. Umrœðan Halldóra Friðjónsdóttir vekur það tortryggni þegar aug- lýsingar um embætti eru vísvit- andi gerðar lítt áberandi. Reglur um auglýsingu starfa hjá hinu opinbera voru auðvitað settar til að tryggja gagnsæi og góða stjórnsýsluhætti en með regl- unum var líka verið að tryggja að allir ættu að eiga tækifæri á að sækja um laus störf hjá rík- inu. Við viljum jú öll að ríkið eigi kost á færum og hæfum starfsmönnum eins og segir í dreifibréfi fjármálaráðuneytis- ins um auglýsingar á lausum embættum. Formaður Bandalags háskólamanna Eitt atkvæði tryggir meirihluta Morgunblaðið leggst eindregið á þá sveif í leiðara sínum í dag, að rík- isstjórnin eigi að halda áfram, enda hafi hún til þess meirihluta. Forsíðu- frétt blaðsins er einnig í þeim anda. Þar má lesa, að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi sýnt svo mikinn hroka í samtölum við einhverja sjálf- stæðismenn að loknum kosningum, að hafi þeir haft áhuga á að ræða við hana um stjórnarsamstarf, sé hann fokinn út í veður og vind. Hvers vegna halda menn, að vandræðin séu svona mikil í forystu Samfylk- ingarinnar? Hafa menn gleymt því, hvernig Ingibjörg Sólrún kom fram við samstarfsfólk sitt í R-listanum, eftir að hún ákvað að brjótast til valda í landsmálum? ívitlausu landi? Norræna módelið, sem vinstri flokkarnir kynntu í kosningabarátt- unni, blasir við á forsíðu Fréttablaðs- ins, þar sem sagt er frá því, að þau Ingibjörg Sólrún og Steingrímur J. Sigfússon hafi rætt það í gær, að þau mynduðu minnihlutastjórn með hlutleysi eða stuðningi framsókn- armanna. Stundum dettur manni í hug, að fólk sé í vitlausu landi, þegar lesið er um norræna draumóra vinstrisinna. Og nú erum við einnig % Pólitískur vilji 1 er allt sem þarf LT__________ Umrœðan Björn Bjarnason að upplifa skopmyndastríð hér, að vísu ekki vegna spámannsins Mú- hameðs, heldur annars, sem teikn- aður var með skegg og mótmæla- spjald og krefst afsökunar, áður en hann talar við framsóknarmenn. Framlag Morgunvaktar á rás 1 var að kalla á Guðna Th. Jóhannes- son sagnfræðing til að geta sagt það síðan sem fyrstu frétt kl. 08.00, að hér hefðu bæði setið ríkisstjórnir með 32 atkvæði og einnig að þær hefðu talist of veikburða. Allt ræðst þetta af pólitískum vilja, hann var fyrir hendi í viðreisnarstjórninni, en hvorki eftir kosningar 1991 né 1995. Eitt atkvæði tryggir meirihluta - málið er ekki flóknara en það og pól- itískur vilji er allt, sem þarf. Höfundur er dóms- og kirkjumálaráðherra Greinin ertekin af www.bjorn.is 1 námBkelp | Stelpur - Konur/ Staðurinn - Ræktin Ný námskeið hefjast 29. maí Innritun í síma 5813730 í boði eru morgun-, hádegis- og síðdegisnámskeið Þú léttist og styrkist andlega og líkamlega! Átaksnámskeiðin sívinsælu fyrir konur á öllum aldri TT-1 • Lokuð 5 vikna námskeið 3 x f viku • Fræöslufundir 1x í viku, vigtun og mælingar • Líkamsrækt • Persónuleg þjónusta í notalegu umhverfi þar sem alger trúnaður ríkir • Frjáls aðgangur að tímum í opna kerfinu og tækjasal leggur línumar Lágmúla 9 • 108 fíeykjavík • Sími 5813730 • Bréfasími 5813732 • jsh@jsb.is • www.jsb.is Barnagæsla - Leikland JSB Vertu velkomin í okkar hóp! Sumar-TT! 5 vikna námskeið á kr. 18.500.- 7 vikur í opna kerfinu í bónus! DflNSRfEKT Samfylkingm fær næstbestu útkomu í sögu vinstri flokka Einum mest spennandi kosn- ingum í seinni tíð er lokið. Eflaust geta flestir flokkar fagnað einhverju þótt allir hafi viljað fá eitthvað meira. Við í Samfylkingunni erum auð- vitað ánægð með að hafa náð næst- besta árangri sem nokkur vinstri flokkur hefur náð á íslandi. Gömlu A-flokkarnir náðu aldrei hærra fylgi en við höfum séð hjá Samfylk- ingunni í undanförnum þrennum alþingiskosningum. Sömuleiðis er rétt að halda því til haga að árangur Samfylkingarinnar er talsvert betri en skoðanakannanir síðustu mán- aða gáfu til kynna. Stærstu tíðindin sem lúta að Samfylkingunni eru þó vitanlega þau að með kosningunum er fengin staðfesting á því að flokka- kerfið hér á landi hefur gjörbreyst með tilkomu Samfylkingarinnar. 2,6 prósenta munur á Framsókn og VG Vinstri græn ná sömuleiðis ágætis kosningu þótt fylgi þeirra sé langt undir því sem skoðanakann- anir gáfu til kynna að væri þeim mögulegt. Einungis er 2,6 prósenta munur á fylgi Framsóknar sem geldur afhroð og síðan fylgi Vinstri grænna. Fylgi Vinstri grænna í kosn- ingunum í gær er nákvæmlega jafn- mikið og Alþýðubandalagið fékk í sínum síðustu kosningum árið 1995 og það er eilítið minna en það sem Alþýðubandalagið fékk árið 1991. Samfylkingin verður með helm- ingi fleiri þingmenn en Vinstri græn næsta kjörtímabil og vantar í rauninni einungis tvo þingmenn upp á til að hafa jafnmarga þing- menn og allur samanlagður þing- mannafjöldi VG, Framsóknar og Frjálslyndra. Samfylkingin er því þriðju kosningarnar í röð annar stærsti stjórnmálaflokkurinn. Sjötta versta útkoma Sjálf- stæðisflokksins í 60 ár Sjálfstæðismenn hrósa sigri eins Utstrikanirá tilteknum þing- mönnum Sjálf- stæðisflokksins eru nánast Jordæmalausar Umrœðan Ágúst Ólafur Ágústsson og þeim er einum líkt og líta hentug- lega framhjá þeirri staðreynd að ár- angur þeirra fyrir fjórum árum var einn sá versti frá stofnun flokksins. Sé árangurinn núna settur í sögu- legt samhengi má raunar glöggva sig á því að á síðastliðnum 60 árum hefur hann einungis fimm sinnum fengið verri útkomu. Útstrikanir á tilteknum þingmönnum Sjálfstæðis- flokksinserueinnignánastfordæma- lausar í íslenskum stjórnmálum. Ríkisstjórnin með minni- hluta atkvæða Auðvitað eru það vonbrigði að ríkisstjórnin skyldi ekki falla. En það er þó rétt að benda á að rík- isstjórnarflokkarnir fengu bæði minnihluta atkvæða (48,3 prósent) og færri atkvæði en kaffibandalagið svokallaða. Samanlagt fylgi Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks hefur aldrei verið eins lítið og í þessum kosningum sé litið framhjá því þegar Borgaraflokkurinn klauf Sjálfstæðisflokkinn 1987. En þótt ríkisstjórnin haldi velli með einum manni þá finnst mér það ólíklegt að Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn haldi inn í sitt þrettánda ár saman í ríkisstjórn. Ekki þegar hver einasti stjórnarþingmaður hefur í raun neit- unarvald um öll mál sem sett verða á dagskrá. Að mínu viti er því allt óvíst um hvernig næsta ríkisstjórn muni líta út. Höfundur er varaformaður Samfylkingarinnar Greinin er tekin af www.agustolafur.blog.is Undarleg kennsla í fagmennsku Trausti Hafliðason ritstjóri skrifaði leiðara Blaðsins þann 10. maí, síðastliðinn. I leiðara þessum tekur Trausti undir þá kröfu Sveins Magnússonar, framkvæmdastjóra Geðhjálpar, að fram fari faglegri greining á þunglyndi íslendinga en nú mun tíðkast, að mati Sveins. En Sveinn þessi Magnússon hafði, í við- tali við Blaðið deginum áður, haft uppi endurteknar dylgjur um það, að heimilislæknar hér á landi væru alls ekki faglega hæfir til að sinna þung- lyndissjúklingum og nefndi því til staðfestingar sjúkling, sem heimilis- læknir hefði stofnað í lífshættu með því að setja hann á sjö mismunandi þunglyndislyf. Samkvæmt frásögn- inni var sjúklingi þessum bjargað með afeitrun. I leiðaranum segir Trausti, að hann gruni, að sumir þunglyndissjúklingar láti sér það nægja að leita aðstoðar hjá heimilis- lækni. Hann segist einnig gruna, að sjúklingar þessir hafi verið settir á lyfjameðferð. Og síðan segir Trausti orðrétt: „Að reiða sig eingöngu á þunglyndislyf er í mörgum tilfellum eins og að setja plástur á sárið. Sár gróa hægt undir plástrum og það er Heilbrígðis- þjónustan hefur bara gott afgagnrýnu aðhaldi Umrœðan Gunnar Ingi Gunnarsson því nauðsynlegt að brýna fyrir fólki að lyf eru ekki lausn, nema kannski fyrir örfáa.” Það er í sjálfu sér auðvitað ekkert athugavert við það að kalla á aukna fagmennsku í heilbrigðisþjónust- unni. Hún hefur bara gott af gagn- rýnu aðhaldi. En þegar menn, svona almennt, en þó sér í lagi ritstjórar dagblaðanna, gagnrýna vinnubrögð í heilbrigðisþjónustunni, þá eiga þeir í fyrsta lagi að forðast órök- studdar dylgjur í garð starfsstéttar, eins og Trausti gerir sig sekan um, og í öðru lagi að láta það vera að fara með glórulaust fleipur um meðferð sára - og annarra sjúkdóma. Höfundurerlæknir

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.